Félag fornleifafræðinga vill að Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, færi Hörpu Þórsdóttur, fyrrverandi safnstjóra Listasafns Íslands sem skipuð var þjóðminjavörður fyrir rúmum mánuði síðan, aftur í sitt fyrra starf. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag.
Skipan Hörpu í embætti þjóðminjavarðar vakti hörð viðbrögð þar sem embættið var ekki auglýst laust til umsóknar. Þess í stað nýtti ráðherra sér heimild í lögum sem gerir henni kleift að færa embættismenn til í starfi. Í tilfelli Hörpu taldi Lilja að það væri farsælt að taka safnstjóra úr einu höfuðsafni og færa yfir í það næsta.
Félag fornleifafræðinga og stjórn Félags íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS) sendu nær samstundis frá sér harðorðar yfirlýsingar vegna ákvörðunar Lilju um að skipa Hörpu í embættið.
Síðar sendi Starfsmannafélag Þjóðminjasafnsins frá sér yfirlýsingu þar sem það tók undir gagnrýnina á verklagið og sagði það lýsa „metnaðarleysi ráðuneytisins í garð Þjóðminjasafns Íslands, ber vott um ógagnsæja stjórnsýslu og kastar rýrð á málaflokkinn í heild.“
Þá sagði Friðrik Jónsson, formaður BHM, við RÚV í samhengi við þessa skipun að tryggja þyrfti heilindi og traust til stjórnsýslunnar og ræða heimild ráðamanna til að færa embættismenn til í starfi.
Segist ekki harma skipan Hörpu
Fréttablaðið greindi frá því á forsíðu sinni í morgun að Lilja harmaði skipan þjóðminjavarðar. Þar var haft eftir Ólöfu Gerði Sigfúsdóttir, formanni Íslandsdeildar alþjóðaráðs safna, að Lilja hefði harmað að hafa fært Hörpu til í starfi með þeim hætti sem hún gerði. Lilja sagði hins vegar við Vísi eftir ríkisstjórnarfund í dag að hún harmi ekki skipan Hörpu í stöðu þjóðminjavarðar. Hins vegar hafi mátt auglýsa stöðuna til að halda sátt um skipanina. Lilja sagði enn fremur að það stæði ekki til að draga skipunina til baka.
Á fundinum var stofnaður samráðshópur ráðuneytisins og umræddum fagfélögum sem á að hittast aftur strax í næstu viku. Þar mun Félag fornleifafræðinga leggja til að nýlega skipaður þjóðminjavörður verði færður aftur í sitt fyrra starf. „Önnur lausn sem félagið mun leggja til er að skipaður verði ráðgjafahópur fagfólks sem gengið var framhjá við skipanina til þess að ræða framtíðarstefnu safnsins og hlutverk þjóðminjavarðar.“
Á dagskrá stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á morgun
Lilja ræddi þessa skipan við Kjarnann um síðustu mánaðamót og sagði þá meðal annars að almennt væri hún fylgjandi því að öll störf væru auglýst. Það væri hins vegar heimild í lögum um opinbera starfsmenn sem gerði ráðherra kleift að færa þá til í starfi. Í tilfelli Hörpu taldi Lilja að það gæti verið farsælt að taka safnstjóra úr einu höfuðsafni og færa yfir í það næsta.
Hún sagði hins vegar að viðbrögðin hafi verið slík við skipan þjóðminjavarðar „að maður hugsar um það hvort það sé skynsamlegt að nýta þessa heimild yfir höfuð. [...] Ef það er þannig að umræða í kringum flutninginn sætir gagnrýni og sé þá kannski til þess fallin að það geti verið ákveðin áskorun fyrir viðkomandi forstöðumann að hefja störf, að þá er ég bara eins og allir aðrir og hugsa: Ég hefði nú getað gert þetta öðruvísi.“
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjallaði á fundi sínum þann 5. september um skipun embættismanna í störf án þess að þau væru auglýst laus til umsóknar. Umfjöllunin var á almennum nótum, en ekki sértækt vegna ákveðinnar skipunar en skipun nýs þjóðminjavarðar í síðasta mánuði hefur vakið hörð viðbrögð.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður nefndarinnar, sagði í samtali við Kjarnann eftir fundinn að ákveðið hafi verið að hefja frekari gagnaöflun og ræða svo næstu skref. Á meðal þess sem liggur fyrir að hægt sé að gera sé að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefji frumkvæðisathugun á skipunum sem átt hafa sér stað án þess að störf eða embætti hafi verið auglýst laus til umsóknar.
Til þess að hefja frumkvæðisathugun þurfa þrír nefndarmenn að vera sammála um að gera það, en níu þingmenn sitja í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Skipun embættismanna án auglýsingar er á dagskrá fundar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem fer fram á morgun, 28. september. Heimildir Kjarnans herma að nefndin sé enn að bíða eftir gögnum frá forsætisráðuneytinu um skipanir embættismanna án auglýsingar.
Meginreglan í lögum að auglýsa skuli laus embætti
Allt frá árinu 1954, þegar lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins voru sett, hefur það verið meginregla í lögum á Íslandi að auglýsa skuli opinberlega laus embætti og störf hjá ríkinu.
Þegar lögin voru endurskoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um auglýsingaskylduna. Í þessum reglum er það meginreglan að auglýsa skuli laus störf en þau tilvik þegar ekki er skylt að auglýsa störf eru afmörkuð sérstaklega. Þessar undanþágur frá auglýsingaskyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mánuði eða skemur, störf sem eru tímabundin vegna sérstakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veikinda, fæðingar- og foreldraorlofs, námsleyfis, leyfis til starfa á vegum alþjóðastofnana og því um líkt, enda sé ráðningunni ekki ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt.
Þá eru undanþágur frá reglunum sem fela í sér að störf sem hafa verið auglýst innan síðustu sex mánaða ef þess er getið í auglýsingunni að umsóknin geti gilt í sex mánuði frá birtingu hennar. Að endingu er að finna undanþágur um störf vegna tímabundinna vinnumarkaðsúrræða á vegum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og hlutastörf fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu.
Engar fleiri undanþágur er að finna í lögunum.
Meirihluti ráðuneytisstjóra skipaðir án auglýsingar
Það hefur hins vegar færst verulega í vöxt hérlendis að ráðherrar skipi í embætti án þess að þau séu auglýst. Það leiddi meðal annars til þess að umboðsmaður Alþingis tók upp frumkvæðisathugun á málinu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrravor.
Í bréfi þar sem þá settur umboðsmaður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri forsvaranlegt að nýta takmarkaðan mannafla embættisins til að ljúka frumkvæðisathuguninni í ljósi þess að ráðamenn færu hvort eð er ekkert eftir skýrum reglum og vilja löggjafans í þessum málum.
Kjarninn greindi frá því í fréttaskýringu í síðasta mánuði að sjö af tólf starfandi ráðuneytisstjórum hefðu verið skipaðir án þess að embættin hafi verið auglýst laus til umsóknar. Á yfirstandandi kjörtímabili hafa þrír af þeim fjórum ráðuneytisstjórum sem hafa verið skipaðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið auglýstar lausar til umsóknar.