Ekkert fast í hendi en „samtalið er enn í gangi“

Viðræður Arion banka og PCC um möguleg kaup á kísilverksmiðjunni í Helguvík hafa nú staðið í rúmlega átta mánuði. „Samtalið er enn í gangi og ekki ljóst hvenær eða hvernig það endar,“ segir forstöðumaður samskiptasviðs bankans.

Engin starfsemi hefur verið í kísilverinu í Helguvík í fimm ár.
Engin starfsemi hefur verið í kísilverinu í Helguvík í fimm ár.
Auglýsing

„Það er enn sem komið er ekk­ert fast í hendi. Sam­talið er enn í gangi og ekki ljóst hvenær eða hvernig það end­ar. Þó myndi ég halda að við séum að horfa á nokkrar vikur fremur en nokkra mán­uð­i.“

Þetta segir Har­aldur Guðni Eiðs­son, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka, inntur eftir stöðu mála á við­ræðum bank­ans við PCC SE um mögu­leg kaup þess síð­ar­nefnda á kís­il­verk­smiðj­unni í Helgu­vík. Það er Stakks­berg, dótt­ur­fé­lag Arion banka sem á kís­il­verk­smiðj­una en PCC SE er meiri­hluta eig­andi PCC BakkiSil­icon hf., kís­il­vers­ins á Húsa­vík.

Auglýsing

Við­ræð­urnar hófust form­lega með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ingar í byrjun árs og hafa því staðið í rúm­lega átta mán­uði. Til stóð að þeim yrði lokið í sumar en eins og fyrr segir eru þær enn í gangi.

Í byrjun sept­em­ber var greint frá því að Gestur Pét­urs­son hefði verið ráð­inn nýr for­stjóri kís­il­vers­ins á Bakka. Hann tók við því starfi af Rún­ari Sig­ur­páls­syni. Í til­kynn­ingu kom fram að Rúnar myndi halda áfram störfum fyrir PCC sam­stæð­una, líkt og það var orð­að, og ein­beita sér að þró­un­ar­verk­efnum á Íslandi.

Kjarn­inn sendi Rún­ari fyr­ir­spurn um breyt­ing­arnar er þær voru til­kynntar og spurði, í ljósi þess­ara breyt­inga, hver staðan á við­ræðum við Arion banka væri. Þeirri fyr­ir­spurn var ekki svar­að.

Engin starf­semi í fimm ár

Kís­il­verk­smiðjan í Helgu­vík hefur ekki verið í rekstri frá því haustið 2017. Félagið Sam­einað Síli­kon (United Sil­icon) átti verk­smiðj­una en rekstur henn­ar, sem hófst í nóv­em­ber 2016, gekk brös­ug­lega frá upp­hafi og stóð aðeins í tíu mán­uði eða þar til Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina vegna ítrek­aðra bil­ana og kvart­ana íbúa í nágrenni hennar um heilsu­fars­leg óþæg­indi. Sam­einað Síli­kon var tekið til gjald­þrota­skipta í upp­hafi árs 2018 og eign­að­ist Arion banki eignir þrota­bús­ins í kjöl­far­ið.

Síðan þá hefur verið stefnt að því að selja verk­smiðj­una. Árið 2019 hófst mat á umhverf­is­á­hrifum þeirra áforma bank­ans að gera end­ur­bætur á henni, end­ur­ræsa hana og stækka með því að bæta þremur ljós­boga­ofnum við þann eina sem fyrir er. Mat­inu lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar í lok síð­asta árs.

Auglýsing

Vilji bæj­ar­yf­ir­valda og íbúa hefur staðið til þess að verk­smiðjan verði rif­in. Þórður Ólafur Þórð­ar­son, lög­fræð­ingur Arion banka og stjórn­ar­maður í Stakks­bergi, dótt­ur­fé­lagi bank­ans sem á kís­il­verið í Helgu­vík, sagði á fundi umhverf­is- og sam­göngu­nefndar Alþingis í febr­úar að „það tjón sem þarna yrði á hags­munum við það að flytja verk­smiðj­una í burtu, það er bara svo óskap­legt að það er raun­veru­lega ekki efna­hags­lega boð­legur kost­ur“.

Íbúar og stjórn­völd í Reykja­nesbæ telja það hins vegar ekki val­kost að ræsa verið aft­ur, þrátt fyrir þær end­ur­bætur sem fyr­ir­hug­aðar eru á því.

„Okkur er kunn­ugt um þessar við­ræður en erum ekki aðilar að þeim,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nes­bæ, við Kjarn­ann. „Við höfum upp­lýst aðila um óbreytta afstöðu Reykja­nes­bæj­ar.“

Afstaðan er sú að ekki komi til greina af hálfu stjórn­valda í sveit­ar­fé­lag­inu, að kís­il­verið í Helgu­vík verði ræst að nýju.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent