Nefndin aflar frekari gagna áður formleg skref vegna skipana án auglýsingar verða stigin

Skipun menningar- og viðskiptaráðherra á nýjum þjóðminjaverði án þess að starfið væri auglýst hefur vakið hörð viðbrögð. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoðar hvort hún ráðist í frumkvæðisathugun á skipun embættismanna án auglýsingar.

Þórrunn Sveinbjarnardóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Þórrunn Sveinbjarnardóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Auglýsing

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd fjall­aði á fundi sínum í morgun um skipun emb­ætt­is­manna í störf án þess að þau væru aug­lýst laus til umsókn­ar. Umfjöll­unin var á almennum nót­um, en ekki sér­tækt vegna ákveð­innar skip­unar en skipun nýs þjóð­minja­varðar í síð­asta mán­uði hefur vakið hörð við­brögð.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­maður nefnd­ar­inn­ar, segir í sam­tali við Kjarn­ann að ákveðið hafi verið að hefja frek­ari gagna­öflun og ræða svo næstu skref á fundi nefnd­ar­innar eftir viku. Á meðal þess sem liggur fyrir að hægt sé að gera sé að stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hefji frum­kvæð­is­at­hugun á skip­unum sem átt hafa sér stað án þess að störf eða emb­ætti hafi verið aug­lýst laus til umsókn­ar. Þór­unn segir að ákvörðun um næstu form­legu skref gæti verið tekin á næsta fundi nefnd­ar­inn­ar. 

Til þess að hefja frum­kvæð­is­at­hugun þurfa þrír nefnd­ar­menn að vera sam­mála um að gera það, en níu þing­menn sitja í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eru fleiri en þrír nefnd­ar­menn til­búnir í að ráð­ast í slíka athug­un, verði það lagt til.

Auglýsing
Hver þau skref verða veltur á ýmsu. Til dæmis hvað Umboðs­maður Alþingis ákveður að gera en Félag forn­leifa­fræð­inga sendi ábend­ingu til hans vegna skip­unar þjóð­minja­varðar fyrir helgi. Í þeirri ábend­ingu sagði meðal ann­ars að stjórn félags­ins teldi að „ráð­herra menn­ing­ar- og við­skipta hafi sýnt af sér óvand­aða stjórn­sýslu­hætti. Við skipun stórra emb­ætta eins og for­stöðu­manns rík­is­stofn­unar er að mati stjórnar nauð­syn­legt að gæta þess að allir hafi jafnan mögu­leika á fá verð­leika sína metna og að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi. Þannig er líka tryggt að aðil­inn sem ráð­inn er í starf sé raun­veru­lega sá hæf­asti sem völ er á.“

Skipan Hörpu vakti hörð við­brögð

Sú atburða­rás sem ýtti þessum bolta af stað var ákvörðun Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, að skipa Hörpu Þórs­dóttur í emb­ætti þjóð­minja­varðar án þess að það væri aug­lýst laust til umsókn­ar. 

Félag forn­­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­­manna (FÍSOS) sendu nær sam­stundis frá sér harð­orðar yfir­­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju um að skipa Hörpu í emb­ætt­ið. 

Lilja D. Alfreðsdóttir skipaði Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar 25. ágúst. Mynd: Stjórnarráðið

Síðar sendi Starfs­manna­fé­lag Þjóð­minja­safns­ins frá sér yfir­lýs­ingu þar sem það tók undir gagn­rýn­ina á verk­lagið og sagði það lýsa „ metn­að­­ar­­leysi ráðu­­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­­sæja stjórn­­­sýslu og kastar rýrð á mála­­flokk­inn í heild.“ 

Þá sagði Frið­­rik Jóns­­son, for­­maður BHM, við RÚV í sam­hengi við þessa skipun að tryggja þyrfti heil­indi og traust til stjórn­­­sýsl­unnar og ræða heim­ild ráða­­manna til að færa emb­ætt­is­­menn til í starf­i. 

„Ég hefði nú getað gert þetta öðru­vísi“

Lilja ræddi þessa skipan við Kjarn­ann fyrir helgi og sagði meðal ann­ars að almennt væri hún fylgj­andi því að öll störf væru aug­lýst. Það væri hins vegar heim­ild í lögum um opin­bera starfs­menn sem gerði ráð­herra kleift að færa þá til í starfi. Í til­felli Hörpu taldi Lilja að það gæti verið far­sælt að taka safn­stjóra úr einu höf­uð­safni – en Harpa var áður yfir Lista­safni Íslands – og færa yfir í það næsta. 

Hún sagði hins vegar að við­brögðin hafi verið slík við skipan þjóð­minja­varðar „að maður hugsar um það hvort það sé skyn­­sam­­legt að nýta þessa heim­ild yfir höf­uð. [...] Ef það er þannig að umræða í kringum flutn­ing­inn sætir gagn­rýni og sé þá kannski til þess fallin að það geti verið ákveðin áskorun fyrir við­kom­andi for­­stöð­u­­mann að hefja störf, að þá er ég bara eins og allir aðrir og hugsa: Ég hefði nú getað gert þetta öðru­­vísi.“ 

Meg­in­reglan í lögum að aug­lýsa skuli laus emb­ætti

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­­­­manna rík­­­­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­­­­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­­­­in­u. 

Auglýsing
Þegar lögin voru end­­­­ur­­­­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­­­­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­­­­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­­­­stak­­­­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­­­­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­­­­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­­­­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ing­­­­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­­­­leyf­­­­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­­­­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­­­­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­­­­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­­­­­­­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu henn­­­­ar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinn­u­­­­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­­­­­­­valda og aðila vinn­u­­­­mark­að­­­­ar­ins og hluta­­­­störf fyrir ein­stak­l­inga með skerta starfs­­­­get­u. 

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­­­­un­­­­um.

Meiri­hluti ráðu­­­neyt­is­­­stjóra skip­aðir án aug­lýs­ingar

Það hefur hins vegar færst veru­­­lega í vöxt hér­­­­­lendis að ráð­herrar skipi í emb­ætti án þess að þau séu aug­lýst. Það leiddi meðal ann­­­ars til þess að umboðs­­­maður Alþingis tók upp frum­­­kvæð­is­at­hugun á mál­inu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrra­vor. 

Í bréfi þar sem þá settur umboðs­­­maður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri for­svar­an­­­legt að nýta tak­­­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­­­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­­­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­­­gjafans í þessum mál­u­m. 

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­­­skýr­ingu í síð­­­asta mán­uði að sjö af tólf starf­andi ráðu­­­neyt­is­­­stjórum hefðu verið skip­aðir án þess að emb­ættin hafi verið aug­lýst laus til umsókn­­­ar. Á yfir­­­stand­andi kjör­­­tíma­bili hafa þrír af þeim fjórum ráðu­­­neyt­is­­­stjórum sem hafa verið skip­aðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið aug­lýstar lausar til umsókn­­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent