Í 67 tilfellum af 334 embættisskipunum frá 2009 hefur embættismaður verið skipaður án auglýsingar, ýmist á grundvelli flutningsheimildar í lögum um Stjórnarráð Íslands eða sérstakra lagaheimilda. Í 39 tilfellum af 67 þar sem embættismaður var fluttur í annað embætti, var það gert í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana eða ráðuneyta.
Þetta kemur fram í samantekt forsætisráðuneytisins yfir flutning embættismanna milli embætta á tímabilinu 2009 til 2022. Í um 80% tilfella hefur verið skipað í embætti í kjölfar auglýsingar á umræddu tímabili. Ef flutningar embættismanna sem gerðir voru í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana eða ráðuneyta eru ekki taldir með, fer hlutfall skipana í kjölfar auglýsingar upp í rúm 90%.
Skipan embættismanna hefur ítrekað verið til umræðu í samfélaginu, nú síðast eftir að Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, skipaði Hörpu Þórsdóttur, fyrrverandi safnstjóra Listasafns Íslands, í starf þjóðminjavarðar.
Skipan Hörpu í embætti þjóðminjavarðar vakti hörð viðbrögð þar sem embættið var ekki auglýst laust til umsóknar. Þess í stað nýtti ráðherra sér heimild í lögum sem gerir henni kleift að færa embættismenn til í starfi. Í tilfelli Hörpu taldi Lilja að það væri farsælt að taka safnstjóra úr einu höfuðsafni og færa yfir í það næsta.
Félag fornleifafræðinga og stjórn Félags íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS) sendu nær samstundis frá sér harðorðar yfirlýsingar vegna ákvörðunar Lilju um að skipa Hörpu í embættið.
Síðar sendi Starfsmannafélag Þjóðminjasafnsins frá sér yfirlýsingu þar sem það tók undir gagnrýnina á verklagið og sagði það lýsa „metnaðarleysi ráðuneytisins í garð Þjóðminjasafns Íslands, ber vott um ógagnsæja stjórnsýslu og kastar rýrð á málaflokkinn í heild.“
Í síðustu viku sendi Félag fornleifafræðinga aftur frá sér tilkynningu, þar sem farið er fram á að Lilja færi Hörpu aftur í sitt fyrra starf.
Hlutfallslega flestir flutningar í embætti ráðuneytisstjóra
Í samantekt ráðuneytisins kemur fram að 267 embættisskipana af 334 síðustu 12 ár voru gerðar í kjölfar auglýsingar en í 67 tilfellum var embættismaður fluttur í annað embætti, ýmist á grundvelli flutningsheimildar í lögum um Stjórnarráð Íslands eða sérstakra lagaheimilda. Í 39 tilfellum af 67 þar sem embættismaður var fluttur í annað embætti, var það gert í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana eða ráðuneyta.
Embættum er skipt í þrjá flokka í samantektinni; ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra í ráðuneytum og aðra embættismenn og er hlutfall milli skipunar í embætti í kjölfar auglýsingar og í kjölfar flutnings mismunandi milli tegunda embætta.
Hlutfallslega flestir flutningar áttu sér stað þegar skipað var í embætti ráðuneytisstjóra. Alls voru átta ráðuneytisstjórar skipaðir í kjölfar auglýsingar á tímabilinu en ellefu embættismenn voru fluttir í embætti ráðuneytisstjóra. Tveir af þeim flutningum voru gerðir á grundvelli breytinga á skipan ráðuneyta.
Tæplega tveir af hverjum þremur skrifstofustjórum í ráðuneytum hafa verið skipaðir í kjölfar auglýsingar. Hins vegar var flutningur 30 skrifstofustjóra af 38 gerður í tengslum við breytingar á skipan ráðuneyta eða breytinga á innra skipulagi ráðuneyta. Séu þau tilvik dregin frá hafa tæplega 89% skipana skrifstofustjóra í embætti verið gerðar í kjölfar auglýsingar.
Samkvæmt samantekinni hafa tæplega 92% annarra embættismanna á tímabilinu verið skipaðir í kjölfar auglýsingar. Í 7 af þeim 18 tilfellum þar sem aðrir embættismenn voru fluttir milli embætta var sá flutningur gerður í tengslum við breytingar á skipulagi stofnana. Í flestum tilvikum var um að ræða flutningsheimild í lögum vegna sameiningar stofnana. Sé litið fram hjá þeim tilvikum er hlutfall skipunar í embætti í kjölfar auglýsingar tæplega 95%.
Í samantektinni er ekki að finna upplýsingar um lögreglumenn en afstaða dómsmálaráðuneytisins er sú að almennt komi ekki til skoðunar að flytja lögreglumenn milli starfsstiga án auglýsingar, nema uppi séu sérstakar aðstæður. Þá var sérstakri flutningsheimild í lögum beitt við endurskipulagningu á embættaskipan lögreglu og sýslumanna 2015 en þá fækkaði m.a. sýslumannsumdæmum úr 24 í 9. Þá var ekki kallað eftir upplýsingum um skipanir dómara í samantekt forsætisráðuneytisins.