Fimmtungur embættisskipana frá 2009 án auglýsingar

Á síðustu tólf árum hefur embættismaður 67 sinnum verið fluttur í annað embætti án auglýsingar, samkvæmt samantekt forsætisráðuneytisins yfir flutning embættismanna milli embætta frá 2009 til 2022.

Frá 2009 hefur embættismaður verið fluttur til í annað embætti, án þess að starfið sem um ræðir sé auglýst.
Frá 2009 hefur embættismaður verið fluttur til í annað embætti, án þess að starfið sem um ræðir sé auglýst.
Auglýsing

Í 67 til­fellum af 334 emb­ætt­is­skip­unum frá 2009 hefur emb­ætt­is­maður verið skip­aður án aug­lýs­ing­ar, ýmist á grund­velli flutn­ings­heim­ildar í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands eða sér­stakra laga­heim­ilda. Í 39 til­fellum af 67 þar sem emb­ætt­is­maður var fluttur í annað emb­ætti, var það gert í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta.

Þetta kemur fram í sam­an­tekt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins yfir flutn­ing emb­ætt­is­manna milli emb­ætta á tíma­bil­inu 2009 til 2022. Í um 80% til­fella hefur verið skipað í emb­ætti í kjöl­far aug­lýs­ingar á umræddu tíma­bili. Ef flutn­ingar emb­ætt­is­manna sem gerðir voru í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta eru ekki taldir með, fer hlut­fall skip­ana í kjöl­far aug­lýs­ingar upp í rúm 90%.

Skipan emb­ætt­is­manna hefur ítrekað verið til umræðu í sam­fé­lag­inu, nú síð­ast eftir að Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Hörpu Þórs­dótt­ur, fyrr­ver­andi safn­stjóra Lista­safns Íslands, í starf þjóð­minja­varð­ar.

Auglýsing

Skipan Hörpu í emb­ætti þjóð­minja­varðar vakti hörð við­brögð þar sem emb­ættið var ekki aug­lýst laust til umsókn­­ar. Þess í stað nýtti ráð­herra sér heim­ild í lögum sem gerir henni kleift að færa emb­ætt­is­­menn til í starfi. Í til­­­felli Hörpu taldi Lilja að það væri far­­sælt að taka safn­­stjóra úr einu höf­uð­safni og færa yfir í það næsta.

­Fé­lag forn­­­­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­­­­manna (FÍSOS) sendu nær sam­­­stundis frá sér harð­orðar yfir­­­­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju um að skipa Hörpu í emb­ætt­ið.

Síðar sendi Starfs­­­manna­­­fé­lag Þjóð­minja­safns­ins frá sér yfir­­­lýs­ingu þar sem það tók undir gagn­rýn­ina á verk­lagið og sagði það lýsa „metn­að­­­­ar­­­­leysi ráðu­­­­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­­­­sæja stjórn­­­­­­­sýslu og kastar rýrð á mála­­­­flokk­inn í heild.“

Í síð­ustu viku sendi Félag forn­leifa­fræð­inga aftur frá sér til­kynn­ingu, þar sem farið er fram á að Lilja færi Hörpu aftur í sitt fyrra starf.

Hlut­falls­lega flestir flutn­ingar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra

Í sam­an­tekt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að 267 emb­ætt­is­skip­ana af 334 síð­ustu 12 ár voru gerðar í kjöl­far aug­lýs­ingar en í 67 til­fellum var emb­ætt­is­maður fluttur í annað emb­ætti, ýmist á grund­velli flutn­ings­heim­ildar í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands eða sér­stakra laga­heim­ilda. Í 39 til­fellum af 67 þar sem emb­ætt­is­maður var fluttur í annað emb­ætti, var það gert í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta.

Emb­ættum er skipt í þrjá flokka í sam­an­tekt­inni; ráðu­neyt­is­stjóra, skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum og aðra emb­ætt­is­menn og er hlut­fall milli skip­unar í emb­ætti í kjöl­far aug­lýs­ingar og í kjöl­far flutn­ings mis­mun­andi milli teg­unda emb­ætta.

Hlut­falls­lega flestir flutn­ingar áttu sér stað þegar skipað var í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Alls voru átta ráðu­neyt­is­stjórar skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ingar á tíma­bil­inu en ell­efu emb­ætt­is­menn voru fluttir í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Tveir af þeim flutn­ingum voru gerðir á grund­velli breyt­inga á skipan ráðu­neyta.

Tæp­lega tveir af hverjum þremur skrif­stofu­stjórum í ráðu­neytum hafa verið skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ing­ar. Hins vegar var flutn­ingur 30 skrif­stofu­stjóra af 38 gerður í tengslum við breyt­ingar á skipan ráðu­neyta eða breyt­inga á innra skipu­lagi ráðu­neyta. Séu þau til­vik dregin frá hafa tæp­lega 89% skip­ana skrif­stofu­stjóra í emb­ætti verið gerðar í kjöl­far aug­lýs­ing­ar.

Sam­kvæmt sam­an­tek­inni hafa tæp­lega 92% ann­arra emb­ætt­is­manna á tíma­bil­inu verið skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ing­ar. Í 7 af þeim 18 til­fellum þar sem aðrir emb­ætt­is­menn voru fluttir milli emb­ætta var sá flutn­ingur gerður í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana. Í flestum til­vikum var um að ræða flutn­ings­heim­ild í lögum vegna sam­ein­ingar stofn­ana. Sé litið fram hjá þeim til­vikum er hlut­fall skip­unar í emb­ætti í kjöl­far aug­lýs­ingar tæp­lega 95%.

Í sam­an­tekt­inni er ekki að finna upp­lýs­ingar um lög­reglu­menn en afstaða dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er sú að almennt komi ekki til skoð­unar að flytja lög­reglu­menn milli starfs­stiga án aug­lýs­ing­ar, nema uppi séu sér­stakar aðstæð­ur. Þá var sér­stakri flutn­ings­heim­ild í lögum beitt við end­ur­skipu­lagn­ingu á emb­ætta­skipan lög­reglu og sýslu­manna 2015 en þá fækk­aði m.a. sýslu­manns­um­dæmum úr 24 í 9. Þá var ekki kallað eftir upp­lýs­ingum um skip­anir dóm­ara í sam­an­tekt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent