Guðni hættir sem formaður KSÍ

Ákvörðun liggur fyrir: Guðni Bergsson mun ekki halda áfram sem formaður KSÍ en hann hefur gegnt embættinu síðan 2017.

Guðni Bergsson, fráfarandi formaður KSÍ.
Guðni Bergsson, fráfarandi formaður KSÍ.
Auglýsing

Guðni Bergs­son mun hætta sem for­maður KSÍ, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Nú stendur yfir fundur með starfs­mönnum KSÍ þar sem greint er frá þess­ari ákvörð­un.

Stjórn KSÍ fund­aði stíft í gær frá hádegi fram á kvöld. Hún hitt­ist síðan aftur í morg­un.

Mikið hefur verið fjalla um KSÍ og for­mann sam­bands­ins í fjöl­miðlum eftir atburða­rás síð­ustu daga og vikna þar sem frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borð­ið. Þjar­mað var að KSÍ í kjöl­farið en sam­bandið neit­aði ítrekað að slík mál hefðu „komið á þeirra borð“. Guðni sagði sjálfur við Frétta­blaðið að þau hefðu ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á þeirra borð síðan hann tók við for­mennsku en hins vegar væru þau með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðl­um.

Auglýsing

Ung kona steig hins vegar fram í við­tali við RÚV á föstu­dags­kvöldið og greindi frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi og grófri kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu lands­liðs­manns í knatt­spyrnu árið 2017. Hún sagði einnig frá sam­skiptum við KSÍ á sínum tíma og furð­aði sig á að for­maður KSÍ full­yrti að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot leik­manna. Konan sagði að lög­maður á vegum KSÍ hefði boðið henni þagn­ar­skyldu­samn­ing sem hún hafn­aði.

KSÍ neit­aði síðar um kvöldið að umræddur lög­maður hefði verið á þeirra vegum en hún stóð föst á sínu.

Fram kom í fréttum RÚV í dag að Hanna Björg Vil­hjálms­dótt­ir, kyn­fræð­ing­ur, og Stein­unn Gyðu- og Guð­jóns­dótt­ir, tals­kona Stíga­móta, hefðu í dag átt klukku­stund­ar­langan fund með konum úr stjórn KSÍ. Hanna Björg sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV að þær hefðu verið beðnar um ráð um næstu skref sem stjórn KSÍ gæti tek­ið. Kon­urnar sátu fund­inn fyrir hönd allrar stjórn­ar­inn­ar.

KSÍ greinir frá ákvörðun Guðna á Twitt­er-­síðu sinni og segir að frek­ari upp­lýs­inga sé að vænta frá sam­band­inu síðar í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent