Namibísk samtök boða málsókn gegn Samherja

Namibísku samtökin Affirmative Repositioning hafa boðað að þau ætli sér að höfða einkamál gegn Samherja í samvinnu við breskt fyrirtæki, til að reyna að sækja til baka meintan ólöglegan ágóða af viðskiptum Samherja í Namibíu.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Auglýsing

Félaga- og stjórn­mála­sam­tök í Namibíu sem heita Affir­mative Reposition­ing (AR) hafa boðað að þau ætli sér, í sam­starfi við breskt fyr­ir­tæki sem beitir sér gegn spill­ingu, að reyna að sækja til baka fé sem hafi verið haft af namibísku þjóð­inni vegna spill­ing­ar­mála á borð við Sam­herj­a­máls­ins.

Job Shipu­olo Amup­anda, leið­togi AR, sem einnig er fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og núver­andi borg­ar­full­trúi í höf­uð­borg­inni Wind­hoek, sagði á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag að ýmsir mögu­leikar yrðu skoð­að­ir, en á meðal þess sem standi til sé að ráð­ast lög­sókn á hendur Sam­herja, sem breska fyr­ir­tækið Restitution myndi styðja við.

„Við þurfum að fara á eftir eigum þessa fyr­ir­tæk­is, hvar sem þær eru,“ sagði Amup­anda og átti þar við Sam­herja. „Ef eign­irnar eru í London munum við fara í mál í London. Ef eign­irnar eru á Íslandi munum við höfða mál þar. Það verður að end­ur­greiða Namib­íu­mönnum pen­ing­ana,“ er haft eftir Amup­anda í frétt namibíska blaðs­ins Namibian frá því í gær, en einnig hefur verið fjallað um málið í sjáv­ar­út­vegs­miðl­inum Und­erc­ur­rent News.

Á vef Namibian er haft eftir Amup­anda að sú ákvörðun að reyna að höfða mál gegn Sam­herja hvar sem fyr­ir­tækið geymi eignir sínar stafi af trega namibískra yfir­valda við að sækja mál á hendur alþjóð­legum fyr­ir­tækjum sem hagn­ast hafi vegna Fis­hrot-skandals­ins, eins og málið er oft­ast kallað í Namib­íu.

Auglýsing

Amup­anda lýsti því á blaða­manna­fund­inum að hann myndi leita lið­sinnis namibískra yfir­valda við fyr­ir­hug­aðan mála­rekst­ur. Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namib­íu, Martha Imalwa, kaus að tjá sig ekki um málið þegar Namibian leit­aði eftir því og sagð­ist ekki vita um hvað það snérist.

Jóhannes Stef­áns­son fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Sam­herja í Namibíu og upp­ljóstr­ari fagn­aði hins vegar fram­taki Amup­anda og félaga í AR og kall­aði þetta „stórt og mik­il­vægt skref“ í átt að rétt­læti fyrir namibísku þjóð­ina.

Breska fyr­ir­tækið Restitution, sem kall­ast gæti End­ur­greiðsla upp á íslenska tungu, heldur úti vef­síðu þar sem fram kemur að það helgi sig því að hjálpa stjórn­völdum að berj­ast gegn spill­ingu með því að leggja til fé og stuðn­ing er verið er að reyna að end­ur­heimta ein­hverjar eig­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent