Pólsk stjórnvöld verði að snúa þróuninni við og styðja hinsegin fólk

Yfirvöld í Póllandi verða að láta af skaðlegri orðræðu gegn hinsegin fólki og vernda það gegn hatri og mismunun. Þetta er niðurstaða skýrslu Amnesty International um aðförina að hinsegin fólki í Póllandi sem staðið hefur yfir síðastliðin fimm ár.

Hinsegin fólk er sagt fá litla vernd frá lögreglu er það mótmælir og verði jafnvel fyrir harkalegum aðgerðum lögregluyfirvalda.
Hinsegin fólk er sagt fá litla vernd frá lögreglu er það mótmælir og verði jafnvel fyrir harkalegum aðgerðum lögregluyfirvalda.
Auglýsing

Sam­kvæmt nýrri skýrslu Amnesty International hafa pólsk yfir­völd gert sam­fé­lag hinsegin fólks að skot­spóni með orð­ræðu sinni og gert hvers kyns mót­mæli hinsegin fólks og banda­manna þeirra nærri ómögu­leg.

Í skýrsl­unni segir meðal ann­ars að sund­ur­lausar hömlur hafi verið settar á mót­mæli hinsegin fólks, sem geri skipu­lagn­ingu þeirra og leyf­is­veit­ingu flókna. Þegar mót­mæli eigi sér stað fái mót­mæl­endur úr hópi hinsegin fólks og banda­manna þeirra oftar en ekki litla sem enga vernd frá árásum hómó­fó­bískra and­mót­mæl­enda, sem telj­ast heldur ekki til hat­urs­glæpa sam­kvæmd pólskum lög­um. Í verstu til­fellum séu jafn­vel hart tekið á mót­mæl­endum af hálfu lög­reglu­yf­ir­valda.

Auglýsing

Anna Bła­szczak-­Banasi­ak, yfir­maður Amnesty í Pól­landi, segir pólsk yfir­völd alger­lega hafa brugð­ist hinsegin sam­fé­lag­inu í land­inu. Með því að tak­marka rétt þeirra til mann­rétt­inda hafi þau skapað and­rúms­loft ótta.

Skýrslan tekur til síð­ast­lið­inna fimm ára, en þar er ástandið sagt hafa versnað til muna árið 2019 þegar mikil aukn­ing varð á skað­legri orð­ræðu gegn hinsegin fólki, meðal ann­ars frá hátt­settum emb­ætt­is­mönn­um, auk þess sem fjöldi sveit­ar­fé­laga yfir­lýstu sig svokölluð „hinseg­in­laus svæði“ (e. LGBT­I-free zones).

For­dómar fái að standa óáreittir

Fjöldi fólks sem hefur barist gegn þess­ari aft­ur­för og fyrir auknum rétt­indum hinsegin fólks hefur svo verið dregið fyrir dóm með til­heyr­andi kostn­aði og umfangi, sem gerir þeim mun erf­ið­ara með að halda áfram bar­áttu sinni. Á meðan fær fólk að flagga hat­urs­fullum skila­boðum gegn hinsegin sam­fé­lag­inu óáreitt.

„Pólska rík­is­stjórnin verður að snúa þessu ömur­lega ástandi við,“ segir Anna Bła­szczak-­Banasi­ak. „Í stað þess að ráð­ast gegn hinsegin fólki og þeim sem vilja vernda rétt­indi þess ættu yfir­völd að virða, vernda og efla rétt­indi þeirra og bregð­ast skjótt við til þess að tryggja enda­lok hvers kyns mis­mun­unar vegna kyn­hneigðar eða kyn­vit­undar fólks.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent