Aðstandendur Ásmundarsalar, Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson, greina frá því í yfirlýsingu sem þau sendu á fjölmiðla í dag að ekki hafi verið brotið gegn reglum um fjöldatakmarkanir í salnum á Þorláksmessu á síðasta ári.
Enn fremur segir í tilkynningunni að ekki hafi verið brotið gegn reglum um opnunartíma umrætt kvöld og að ekkert samkvæmi hafi verið haldið í listasafninu umrætt kvöld. Aftur á móti hafi verið brotið gegn ákvæði um grímuskyldu.
Þetta komi fram í niðurstöðu lögreglurannsóknar vegna listasýningar umrætt kvöld í Ásmundarsal. „Við höfum áður gengist við því að ekki var nægilega gætt að því að allir gestir bæru grímu öllum stundum í öllum rýmum listasýningarinnar. Munum við því greiða sektina og ljúka málinu, sem nú hefur verið til rannsóknar í um hálft ár, með þeim hætti.“
Fram kom í fjölmiðlum fyrr í dag að ákærusvið lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu væri búið að afgreiða málið og niðurstaða í því lægi fyrir. Lögreglan neitaði hins vegar að upplýsa um hver niðurstaðan væri og bar fyrir sig að hún gæti ekki upplýst um afgreiðslu einstakra mála.
Nefnd um eftirlit með lögreglu tók starfshætti lögreglu til skoðunar
Fram kemur hjá Aðalheiði og Sigurbirni að niðurstaða lögreglu staðfesti að dagbókarfærsla um afskipti lögregluþjóna af fólki á listasýningunni hafi verið efnislega röng.
„Engar ávirðingar um brot á opnunartíma eða fjöldatakmörkunum koma fram í nýfenginni niðurstöðu embættisins vegna málsins. Í niðurstöðunni er aðstandendum safnsins boðið að ljúka máli vegna brots á 4. grein reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar með sektargerð. Umrætt ákvæði snýr að grímuskyldu. Önnur brot á sóttvarnarreglum voru ekki framin umrætt kvöld, líkt og staðfest er í niðurstöðunni.
Niðurstaðan er í samræmi við það sem við höfum bent á allt frá birtingu dagbókarfærslu lögreglu á aðfangadagsmorgun, þar sem fullyrt var að haldið hefði verið samkvæmi, of margir verið á staðnum og lögboðnum lokunartíma ekki sinnt,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá hafi reglur um fjöldatakmarkanir ekki verið brotnar, „enda máttu verslanir taka á móti 5 manns á hverja 10 m² en að hámarki 100 manns umrætt sinn. Enn fremur máttu verslanir hafa opið til klukkan 23 á Þorláksmessu, eins og víða var í miðborg Reykjavíkur.“
Að lokum greina þau frá því að nefnd um eftirlit með lögreglu hafi tekið starfshætti lögreglu til skoðunar og gert alvarlegar athugasemdir við háttsemi lögregluþjóna og vinnubrögð embættisins.