Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina. Þetta er meðal efnis reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 9. apríl og byggist á tillögum sóttvarnalæknis. Meginmarkmiðið er að lágmarka eins og kostur er líkur á því að smit berist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sóttvarnalög heimila.
Með reglugerðinni er felld úr gildi reglugerð sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi sem héraðsdómur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.
Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis segir að sú ráðstöfun að skylda ferðamenn í sóttkvíarhús hafi verið ákveðin vegna þess að „talsverð brögð“ voru að því, að ferðamenn í heimasóttkví fylgdu ekki leiðbeiningum um sóttkví sem orsakaði nokkrar hópsýkingar með talsverðri útbreiðslu. Hann segir það sitt mat að ófullnægjandi fylgni við reglur sem gilda um heimasóttkví ferðamanna sé „ein helsta ógn við núverandi smitvarnir á landamærum vegna COVID-19“.
Hann bendir ennfremur á að umfang bólusetningar sé ekki orðið nægilegt hér á landi til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur, víðast erlendis sé faraldurinn í mikilli útbreiðslu sem auki hættuna á að smit berist til landsins. Þá séu ný og meira smitandi afbrigði veirunnar orðin allsráðandi í nálægum löndum sem virðist valda alvarlegri veikindum í yngri aldurshópum, auk þess sem óvissa ríki um hvort þau geti valdið endursýkingum og hve mikla vernd þau bóluefni sem nú eru í notkun veiti gegn þeim.
Samkvæmt reglugerðinni sem taka mun gildi á morgun munu sömu reglur gilda um alla farþega, óháð því hvaðan þeir koma: Sóttvarnaaðgerðir á landamærum taka jafnt til allra, óháð því hvort þeir koma frá löndum sem skilgreind eru sem áhættusvæði eða ekki.
Öllum sem koma til landsins verður sem fyrr skylt að fara í sýnatöku á landamærunum, fimm daga sóttkví og aðra sýnatöku við lok hennar. Á þessu eru tvær undantekningar. Önnur varðar börn og hin fólk sem er með vottorð um fyrri sýkingu af völdum kórónuveirunnar eða hefur þegar fengið bólusetningu. Fólki er heimilt að vera í heimasóttkví að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir sem hafa ekki tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því og er dvölin þar viðkomandi að kostnaðarlausu.
Þeir sem eru í sóttkví þurfa að vera í húsnæði sem uppfyllir skilyrði og umgengnisreglur samkvæmt nýjum leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Í því felst að einstaklingur skuli vera einn á dvalarstað en ef fleiri dveljast þar þurfa þeir að sæta öllum sömu skilyrðum sóttkvíar. Þeir sem ekki geta dvalið í heimasóttkví sem uppfyllir skilyrði sóttvarnalæknis þurfa að dvelja í sóttvarnahúsi.
Í leiðbeiningunum kemur m.a. fram að einstaklingur í sóttkví má ekki fara í skoðunarferðir og má ekki fara út að keyra nema við komuna til landsins, þ.e. þegar mögulega þarf að ferðast milli landamærastöðvar og heimilis sem og í seinni sýnatöku eftir komu til landsins.
Hann má fara í gönguferð en verður að halda tveggja metra fjarlægð. Engin mannamót, engar heimsóknir og engar búðar-eða veitingahúsaferðir eru í boði. Þá má einstaklingur í heimasóttkví ekki dvelja í sameiginlegum rýmum fjölbýlishúsa.
Gerist einstaklingur uppvís að því að brjóta heimasóttkví getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli ljúka sóttkví í sóttvarnahúsi.
Þeir sem ekki hafa tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því. Dvölin er viðkomandi að kostnaðarlausu. Þeim sem dvelja í sóttvarnahúsi verður gert kleift að njóta útiveru og sérstakt tillit verður tekið til barna, s.s. varðandi útiveru og annan aðbúnað.
Börn fædd 2005 eða síðar fara í sýnatöku á landamærunum. Ferðist barn með einstaklingi sem skylt er að sæta sóttkví dvelur barnið þar með honum og losnar úr sóttkví ef síðara sýni úr samferðamanni er neikvætt. Ef samferðamaðurinn er undanþeginn sóttkví er barnið það sömuleiðis. Barn sem ferðast eitt þarf ekki að fara í sóttkví.
Krafa um sýnatöku hjá einstaklingum með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu er sett vegna vísbendinga um að þessir einstaklingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sóttkví en skulu bíða niðurstöðu úr sýnatöku á dvalarstað. Krafan er tímabundin og verður endurskoðuð fyrir 1. maí.
Sóttvarnalæknir leggur til að eftirlit með einstaklingum í heimasóttkví verði aukið í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og jafnframt að sektir fyrir brot á sóttkví verði hækkuð til muna. Heilbrigðisráðherra hefur komið tillögum sóttvarnalæknis varðandi þetta á framfæri við ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra.