Til rannsóknar hvort Johnson hafi afvegaleitt þingmenn vegna partýstands

Breska þingið hefur samþykkt að sérstök rannsóknarnefnd meti hvort Boris Johnson forsætisráðherra hafi af ásettu ráði villt um fyrir þingmönnum í umræðum um veisluhöld í Downingstræti á tímum heimsfaraldurs.

Partygate-hneykslið svokallaða hefur vakið mikla reiði meðal kjósenda og talið hafa veikt stöðu forsætisráðherra sem heldur ótrauður áfram.
Partygate-hneykslið svokallaða hefur vakið mikla reiði meðal kjósenda og talið hafa veikt stöðu forsætisráðherra sem heldur ótrauður áfram.
Auglýsing

Rann­sókn­ar­nefnd á vegum breska þings­ins mun rann­saka hvort Boris John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi sem haldin voru á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á tímum strangra sótt­varna­regla vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Þetta var ákveðið á breska þing­inu í gær í sér­stakri umræðu um Par­tyga­te-hneykslið svo­kall­aða. Þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar gerðu hvað þeir gátu til að tefja atkvæða­greiðslu um hvort vísa ætti máli for­sæt­is­ráð­herra til rann­sókn­ar­nefndar en hættu því skyndi­lega og varð skipan rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar því sam­þykkt. Rann­sókn nefnd­ar­innar mun þó ekki hefj­ast fyrr en rann­sókn lög­reglu á tíðum veislu­höldum í Down­ingstræti 10 lýkur en lög­reglan er með tólf sam­kvæmi til rann­sókn­ar.

Auglýsing

„Ef stjórn­ar­and­staðan vill ein­blína á þetta og ræða frekar er það í góðu lagi mín vegna,“ sagði John­son, sem er staddur í opin­berri heim­sókn á Ind­landi. John­son var að minnsta kosti við­staddur þrjú sam­kvæmi á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, ýmist þegar útgöngu­bann eða strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna útbreiðslu COVID-19 voru í gildi. Hann hefur ítrekað beðist afsök­unar en telur sig ekki þurfa að segja af sér emb­ætti.

Rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara, lög­reglu­rann­sókn og nú rann­sókn þing­nefndar

Sue Gray, sér­stakur sak­sókn­ari, er með 16 sam­kvæmi til rann­sókn­ar, en hennar rann­sókn felst í að meta eðli og til­­­gang veislu­hald­anna ásamt því að taka saman hverjir voru við­stadd­­ir. Um innri rann­­sókn er að ræða frekar en sjálf­­stæða rann­­sókn og er hún fyr­ir­­skipuð af John­­son sjálf­­um. Kraf­ist er hlut­­leysi af hálfu Gray og ber henni að skila nið­­ur­­stöðum sínum til for­­sæt­is­ráð­herra. Hún skil­aði bráða­birgða­skýrslu í lok jan­úar en loka­skýrsla er vænt­an­leg þegar rann­sókn lög­reglu lýk­ur.

John­­son ávarp­aði þing­­menn í fyrsta sinn í vik­unni eftir að lög­­regla sektaði hann, Carrie John­­son eig­in­­konu hans og Rishi Sunak, fjár­­­mála­ráð­herra Bret­lands, fyrir að vera við­­stödd afmæl­is­­veislu for­­sæt­is­ráð­herra sem fram fór í Down­ing­stræti 10 19. júní 2020.­Fyrstu 20 sekt­­­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­­­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­­­um.

John­­­son var búinn að gefa það út að hann ætl­aði að upp­­­lýsa um það yrði hann sektað­­­ur. Það gerði hann og í gær gaf hann út að hann hafi ekk­ert að fela, ætli ekki að standa í vegi fyrir rann­sókn og er hann sann­færður um að Íhalds­flokk­ur­inn vilji hann áfram sem leið­toga.

Tveir þing­menn flokks­ins voru hins vegar allt annað en sáttir í umræðum í þing­sal í dag. Steve Baker, fyrr­ver­andi ráð­herra, krafði John­son um afsögn og William Wragg, þing­maður flokks­ins, hefur lagt fram van­traust­s­til­lögu á for­mennsku John­son.

Litlar líkur á að nið­ur­staða nefnd­ar­innar hafi áhrif á störf for­sæt­is­ráð­herra

Rann­sókn nefnd­ar­innar mun fel­ast í því sem stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arnir hafa haldið statt og stöðugt fram: Að John­­son hafi afvega­­leitt þing­­menn af ásettu ráði þegar hann sagði að gild­andi sótt­­varna­­reglum hafi ávallt verið fylgt í for­­sæt­is­ráðu­­neyt­inu og í við­­burðum á vegum þess.

Þegar nefndin hefur kom­ist að nið­ur­stöðu mun hún leggja fram til­lögur sem þing­menn greiða atkvæði um, em gætu meðal ann­­ars falist í ein­hvers konar refsi­að­­gerðum gegn for­­sæt­is­ráð­herra. Litlar líkur eru þó taldar á því að mál­inu verði vísað til nefnd­­ar­innar í ljósi tryggs meiri­hluta Íhalds­­­manna á þing­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent