Tólf smit innanlands í gær

Af þeim tólf sem greindust smituð af COVID-19 í gær voru fimm í sóttkví. Ekki er vitað hvert hlutfall bólusettra er í hópnum.

Sýnataka – Suðurlandsbraut
Auglýsing

Tólf ein­stak­lingar greindust smit­aðir af COVID-19 inn­an­lands í gær en þar af voru fimm í sótt­kví. Ekki er vitað hvert hlut­fall bólu­settra er í þess­ari tölu en á síð­ustu dögum hefur hátt hlut­fall þeirra sem greinst hafa með COVID-19 verið bólu­sett. Á síð­ustu fimm dögum hafa 36 greinst smituð af COVID-19 inn­an­lands.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum stendur smitrakn­ing enn yfir. „Ekki er enn vitað hvert hlut­fall bólu­settra er í þess­ari tölu. Eins og síð­ustu daga þá stendur smitrakn­ing yfir, eftir dag­inn í gær eru 340 manns í sótt­kví og 97 í ein­angr­un, búast má við að enn fleiri fari í sótt­kví eftir dag­inn í dag.“

Á landa­mær­unum greindust einnig tólf smit­aðir af COVID-19.

Auglýsing

Breyt­ingar á sótt­vörnum vænt­an­legar

Fram kom í frétt Vísis í gær að Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hygð­ist leggja til breyt­ingar á sótt­vörnum á landa­mær­unum vegna þeirrar auk­ins smits. Hann vildi ekki gefa upp hverjar til­lögur hans til ráð­herra yrðu en sagði að minn­is­blað væri í smíð­um.

65 manns höfðu greinst með delta-af­brigði kór­ónu­veirunnar hér á landi þann 13. júlí. Líkt og áður segir stendur rað­grein­ing yfir á smitum síð­ustu daga svo talan kann að vera hærri. Þórólfur sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans að til greina komi að hefja skimanir á bólu­settum ferða­mönnum fari svo að delta-af­brigðið haldi áfram að grein­ast í miklum mæli. Hætt var að skima bólu­setta ferða­menn við kom­una tili lands­ins þann 1. júlí.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent