Ólympíufimleikar ekki lengur unglingakeppni

Þegar elsta fimleikakonan sem skráð er til leiks í Tókýó fór á sína fyrstu Ólympíuleika voru flestar sem hún keppir við nú ekki fæddar. Í fyrsta sinn í áratugi eru táningar ekki í meirihluta í fimleikakeppni kvenna og meðalaldur er nærri 22 ár.

Oksana Chusovitina keppir fyrir Úsbekistan í fimleikum á Ólympíuleikunum. Hún er 46 ára og kemur til með að setja nýtt met sem elsta konan til að taka þátt í fimleikakeppninni.
Oksana Chusovitina keppir fyrir Úsbekistan í fimleikum á Ólympíuleikunum. Hún er 46 ára og kemur til með að setja nýtt met sem elsta konan til að taka þátt í fimleikakeppninni.
Auglýsing

Oks­ana Chusovit­ina var í sig­ur­liði leik­anna í Bar­selóna 1992 og býr sig nú undir að taka þátt í sínum átt­undu Ólymp­íu­leik­um. Hún er 46 ára og verður elst til að taka þátt í fim­leika­keppni Ólymp­íu­leik­anna, slær eigið met frá því í Ríó þegar hún keppti 41 árs. Chusovit­ina keppir nú fyrir heima­land sitt Úsbekist­an.

Hóf fer­il­inn fyrir Sov­ét­ríkin

Þegar Chusovit­ina hóf sinn keppn­is­feril í fim­leikum keppti hún undir merkjum Sov­ét­ríkj­anna. Eftir að þau liðu undir lok keppti hún í eitt skipti fyrir Sam­veldi sjálf­stæðra ríkja, en fyrrum Sov­étlýð­veldin sendu lið undir því nafni á Ólymp­íu­leik­ana 1992, þá fyrstu sem Chusovit­ina keppti á. Á árunum 1993 til 2005 keppti hún fyrir Úsbekistan en flutti svo til Þýska­lands og keppti með þýska lands­lið­inu í nokkur ár áður en hún sneri aftur í úsbeska lands­liðið sem hún hefur keppt fyrir frá 2013.

Chusovit­ina státar af níu gull­verð­launum á stór­mót­um, 14 silf­ur­pen­ingum og níu brons­medal­í­um. Og hún er ekki hætt að kom­ast á pall, hún vann til dæmis silfur í stökki á Asíu­leik­unum árið 2018, þá 43 ára. Stökk er hennar sér­grein og hún hefur sagt í við­tölum að hún telji sig eiga góða mögu­leika á að keppa um verð­laun í Tókýó. Hún varð sjö­unda í keppni á stökki í Ríó, þannig að hún er sann­ar­lega enn á meðal þeirra allra bestu. Besti ein­stak­lings­ár­angur hennar á Ólymp­íu­leikum er silfur á stökki á leik­unum 2008.

Auglýsing

Fer­ill hennar spannar lengri tíma en ævi flestra fim­leika­kvenna sem Chusovit­ina etur kappi við. Simone Biles, besta fim­leika­kona heims, er til dæmis fædd árið 1997. Chusovit­ina hafði þegar keppt á tvennum Ólymp­íu­leikum þegar Biles kom í heim­inn og býr sig nú undir sína átt­undu og síð­ustu. Raunar voru aðeins þrjár fim­leika­konur sem skráðar eru til leiks á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó fæddar þegar Chusovit­ina tók þátt í sínum fyrstu Ólympu­leik­um, engu að síður er hóp­ur­inn nú eldri en oft­ast áður.

Ólympíuhringirnir tákna heimsálfurnar og eiga að vera til marks um einingu og frið. MYND/EPA

Með­al­aldur fer hækk­andi

Með­al­aldur kvenn­anna 98 sem taka þátt í fim­leika­keppni á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó er 21 ár og 11 mán­uð­ir. Á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó 2016 var með­al­aldur fim­leika­kvenna 20 ár og níu mán­uðir og er um tölu­vert stökk að ræða. Með­al­aldur í þess­ari vin­sæl­ustu keppni hverra Ólymp­íu­leika hefur ekki verið svona hár frá árinu 1964, ef marka má frétt NBC Sports um mál­ið.

Oft hefur ungur aldur fim­leika­kvenna verið gagn­rýnd­ur, en svo virð­ist sem margar þjóðir sendi nú eldri fim­leika­konur til leiks en áður. Frá árinu 2000 hefur reglan verið sú að til að fá að keppa á Ólymp­íu­leikum þurfi fim­leika­kona að hafa náð 16 ára aldri þegar hún kepp­ir.

Áður var til­hneig­ingin sú að senda sífellt yngri stúlkur til leiks. Margir muna til dæmis eftir því þegar banda­ríska kvenna­liðið vann gull í fyrsta sinn á Ólymp­íu­leik­um. Það var á leik­unum í Atl­anta árið 1996, en margir muna eftir til­finn­inga­þrung­inni stund þegar ljóst var að Kerri Strug hefði meiðst. Hún lauk engu að síður keppni, með slitin lið­bönd, og liðið náði Ólymp­íugulli og hlaut heims­frægð í kjöl­far­ið. Sú elsta í banda­ríska lið­inu var á þessum tíma 19 ára og sú yngsta aðeins 14 ára.

Ljóst er því að margt hefur breyst frá því þegar alsiða var að senda ung­linga á Ólymp­íu­leika til að keppa í fim­leikum kvenna. Með­al­aldur kvenna í fim­leika­keppn­inni á Ólymp­íu­leik­unum var 20 ár á leik­unum í Mexík­ó­borg árið 1968, hann féll svo niður í 18 ára 1972 og á átt­unda, níunda og tíunda ára­tugnum var með­al­ald­ur­inn jafnan á bil­inu 16 til 18 ár, en hann hefur farið hækk­andi frá árinu 2012.

Simone Biles er verðlaunaðasta fimleikakona allra tíma. Þegar hún fæddist hafði Chusovitina, elsti keppandi í fimleikum kvenna í Tókýó, keppt á tvennum Ólympíuleikum. Mynd/EPA

Fim­leika­konur yfir tví­tugu í meiri­hluta

Oks­ana Chusovit­ina hífir með­al­talið vissu­lega upp, en það er ekki bara hennar aldur sem hefur áhrif. Í Tókýó verða konur 20 ára og eldri í meiri­hluta en tán­ing­ar, 16 til 19 ára, í minni­hluta. Það hefur ekk­ert gerst frá árinu 1968.

Tíð­indum þykir sæta að tvö kvenna­lið sem skráð eru í ár, lið Hollands og Þýska­lands, eru alfarið skipuð konum 20 ára og eldri. Síð­ast þegar þjóð sendi lið án tán­inga til keppni í fim­leikum kvenna var árið 1964. Banda­ríska liðið er einnig með óvenju háan með­al­aldur en engin hinna banda­rísku fim­leika­kvenna er yngri en 18 ára og fjórar eru yfir tví­tugu. Ald­urs­for­setar liðs­ins, Simone Biles og MayKa­yla Skinn­er, eru 24 ára gaml­ar. Fari þær að for­dæmi Chusovit­inu gætu þær enn verið í fullu fjöri á Ólymp­íu­leik­unum árið 2040.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent