Tónleikagestum föstudagsins boðið í aðra skimun og þeir hvattir til að fara varlega

Ákveðið hefur verið að bjóða öllum þeim sem voru á tónleikum í Hörpu síðastliðið föstudagskvöld að mæta í aðra skimun fyrir COVID-19, til öryggis. Hópurinn er hvattur til að takmarka samskipti við aðra þar til niðurstaða liggur fyrir.

Það var margt um manninn í Hörpu síðasta föstudagskvöld. Gestir tónleika sem þar voru haldnir í Eldborgarsal eru hvattir til að mæta aftur í sýnatöku.
Það var margt um manninn í Hörpu síðasta föstudagskvöld. Gestir tónleika sem þar voru haldnir í Eldborgarsal eru hvattir til að mæta aftur í sýnatöku.
Auglýsing

Ákveðið hefur verið að bjóða bæði gestum og starfs­fólki á tón­leikum sem fram fóru í Hörpu síð­asta föstu­dags­kvöld að mæta í aðra skimun fimmtu­dag­inn 11. mars. Hópnum var einnig boðið upp á sýna­töku í gær, en er þau sýni voru tekin voru innan við þrír sól­ar­hringar síðan tón­leik­arnir fóru fram.

Skimunin er sögð var­úð­ar­ráð­stöf­un, í til­kynn­ingu frá almanna­vörn­um. Allir tón­leika­gestir og starfs­fólk eru ein­dregið hvött til að mæta og jafn­framt hvött til þess að huga vel að per­sónu­legum smit­vörnum og tak­marka sam­skipti við aðra þar til nið­ur­staða liggur fyr­ir­.

Kjarn­inn spurði Þórólf Guðna­son sótt­varna­lækni út í það í gær hvort öruggt væri að kór­ónu­veiran myndi grein­ast í sýna­tökum gær­dags­ins, ef fólk hefði smit­ast á tón­leik­unum á föstu­dag. Það sagði hann ekki alveg öruggt, en taldi þó ekki þörf á að skima allan hóp­inn aft­ur.

„Ég held að það sé nú kannski ekki þörf á því,“ sagði Þórólfur í sam­tali við Kjarn­ann, en und­an­farið ár, frá því að veiru­far­ald­­ur­inn hóf að raska venju­­legu lífi, hefur oft komið fram að það getur tekið nokkra daga frá því að fólk verður útsett fyrir veirunni og þar til ein­stak­l­ingar grein­­ast jákvæðir fyrir COVID-19 í próf­­um.

Í grein á Vís­inda­vefnum frá því í októ­ber segir að það taki um 3-4 daga að jafn­­aði frá því að fólk byrjar að verða smit­andi með COVID-19 eftir að hafa smit­­ast sjálft. „Þetta passar við þá stað­­reynd að það tekur einnig nokkra daga fyrir sýni að verða jákvætt fyrir SAR­S-CoV-2 úr stroki frá upp­­hafi smits,“ segir í grein­inni.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent