Viðskiptahugmynd nýsköpunarfyrirtækisins Mulier er í senn einföld og snjöll, en fyrirtækið hefur hannað nýja nærfatalínu fyrir konur sem væntanleg er á markað næsta sumar.
Markmið fyrirtækisins er að hrista upp í undirfatamarkaðnum, sem Jónína de la Rosa, stofnandi Mulier, segir að hafi lengi verið heldur staðnaður og leiðinlegur. Kjarninn hitti Jónínu að máli og forvitnaðist um hina nýju byltingarkenndu nærfatalínu.