Kaupþing
Auglýsing

Við­skipta­Mogg­inn birti í morgun lista yfir þau fyr­ir­tæki sem voru á lista ­Arion banka sem ýmsir hafa kallað „dauða­list­ann“ í umræð­unni á und­an­förn­um ár­um. Lán fyr­ir­tækj­anna, sem voru 40 tals­ins, voru færð til Arion banka á mjög lágu verði. Þegar bank­inn var afhentur kröfu­höfum gamla Kaup­þings árið 2009 var ­samið um að þau yrðu afmörkuð (e. ring-­fenced) þannig að 80 pró­sent af við­bóta­inn­heimt­u lán­anna myndi renna til slitabú Kaup­þings en 20 pró­sent til Arion banka.

Á list­anum sem birtur var í Við­skipta­Mogg­anum kemur fram að um m.a. sé að ræða lán til fyrrum móð­ur­fé­lags Íslenskra aðal­verk­taka, félaga tengdum Exista, ­fé­lög tengdum Gaumi (m.a. 1998, Baugur og Hag­ar), lán til Gift­ar, Kjal­ars (í eigu Ólafs Ólafs­son­ar), Sam­son (í eigu Björg­ólfs­feðga), Landic Proper­ty, FL Group/­Stoða, Sam­herja, Sund, Nor­vik­ur-­sam­stæð­unn­ar, Sunds, Vif­ils­fells og Öss­ur­ar. Með öðrum orðum er um að ræða stærstu inn­lendu skuld­ara Kaup­þings ­fyrir hrun.

„Dauða­list­inn“ er hug­tak sem fyrst skaut upp koll­inum í fjöl­miðlum þeg­ar Víglundur Þor­steins­son hélt ítrek­aða blaða­manna­fundi þar sem hann hélt því fram að harðar hafi verið gengið fram gegn honum en öðrum skuld­urum Arion banka, en ­fyr­ir­tæki Víg­lund­ar, BM Val­lá, var eitt þeirra sem var afmarkað í skila­sam­komu­lagi slita­bús Kaup­þings og rík­is­ins vegna Arion banka. Víglund­ur ­sagði að „dauða­list­inn“ væri listi yfir líf­væn­leg fyr­ir­tæki sem Arion banki hefði, af óbil­girni, tekið af eig­endum sín­um. BM Vallá var úrskurðað gjald­þrota í maí 2010. Skuldir þess þá voru um tíu millj­arðar króna og eigið féð nei­kvætt um 2,5 millj­arða króna. ­Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins höfðu lagt fram end­ur­reisn­ar­hug­mynd sem í fólu í sér­ að lána­stofn­anir ættu að afskrifa 4.725 millj­ónir króna af skuldum félags­ins auk þess sem gefin yrðu út 2,6 millj­arðar króna af nýjum skulda­bréf­um, sem ­Arion banki og líf­eyr­is­sjóðir áttu að kaupa til að tryggja BM Vallá lausa­fé. En af óbil­girni hafn­aði Arion banki þessu kosta­boði.

Auglýsing

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, ­fyrr­ver­andi aðal­eig­andi 365 miðla og núver­andi eig­in­maður aðal­eig­anda 365 miðla, tók undir með Víglundi í aðsendri grein í Frétta­blað­inu 1. sept­em­ber 2012. Þar sagði hann að fjöl­skylda hans hefði misst smá­söluris­ann Haga vegna þess að þau hafi verið á list­an­um. Gjald­þrot Baugs, helsta fjár­fest­inga­batt­er­ís Jóns Ásgeirs, er eitt stærsta gjald­þrot einka­fyr­ir­tækis í Íslands­sög­unn­i. Lýstar kröfur í búið voru um 400 millj­arðar króna og sam­þykktar kröfur námu um 240 millj­örðum króna. Af þeim feng­ust sjö millj­arðar króna, eða 2,9 pró­sent af ­sam­þykktum kröf­um, greidd­ar. Félagið 1998 ehf., sem átti Haga, skuld­aði á sjötta tug millj­arða króna í lok árs 2010.

Þótt að „dauða­list­inn“ hljómi spenn­andi sem hug­tak þá er ekk­ert nýtt við þann lista sem Við­skipta­Mogg­inn birti í morgun né hefur leynd hvílt yfir því hvaða fyr­ir­tæki voru á hon­um. Í lána­bók ­Kaup­þings, sem Wiki­leaks lak á sínum tíma, og í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþing­i, ­sem er aðgengi­leg öllum á net­inu, er hægt að nálg­ast þessar upp­lýs­ing­ar. Þar eru birt yfir­lit yfir stærstu skuld­ara Kaup­þings sem allir röt­uðu síðan á þennan lista, vegna þess að ómögu­legt var að átta sig á hversu mikið af lán­um þeirra myndu inn­heimt­ast þegar Arion banka var skilað til kröfu­hafa árið 2009.

Það er einnig hægt að lesa um list­ann í skýrslum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um stöðu mála á Íslandi frá því síðla árs 2009 og í efna­hags­reikn­ingum Arion banka. Sam­bæri­legt sam­komu­lag var við lýði í báðum hinum nýju bönk­un­um, þótt munur hafi verið á útfærsl­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None