Tryggingafélög
Auglýsing

Ætl­aðar arð­greiðsl­ur ­trygg­inga­fé­lag­anna, upp á tæpa tíu millj­arða króna, hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farna dag­anna. Þær hafa verið gagn­rýndar mjög, sér­stak­lega í ljósi þess að iðgjöld trygg­inga­taka hafa ver­ið hækkuð und­an­farin miss­eri. Gagn­rýnin hófst hjá reiðum almenn­ingi á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far frétta fjöl­miðla af arð­greiðsl­unum og Félagi íslenska bif­reiða­eig­enda (FÍB) sem hefur sagt fyr­ir­tækin merg­sjúga almenn­ing með bless­un Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Arð­greiðsl­urnar urðu svo hápóli­tískar í gær þegar efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis ákvað að fjalla sér­stak­lega um þær á fundi sínum og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagð­i þær óskilj­an­leg­ar. Á Alþingi sagði Bjarni: „Trygg­inga­fé­lögin eru undir sömu sök seld eins og önn­ur at­vinnu­starf­semi á land­inu þegar kemur að því að taka þátt í því með okk­ur, ­þing­inu, vinnu­mark­aðnum í heild sinni, sveit­ar­fé­lög­un­um, rík­is­vald­inu, að end­ur­heimta traust sem rofn­aði hér á árunum 2008 og 2009 vegna hruns á fjár­mála­mark­aði. Maður kallar ein­fald­lega eftir því að til­lögur sem það­an ber­ast um rekstr­ar­á­form, um það hvernig ráð­stöfun hagn­aðar eða eigna fer fram, ­séu í eðli­legum takti við það ákall sem við vitum að er enn í sam­fé­lag­inu eft­ir þá atburði sem eru nýskeð­ir.

Ljóst er að mörgum hlut­höfum og stjórn­endum trygg­inga­fé­lag­anna finn­st um­fjöllun und­an­far­inna daga vera mjög ósann­gjörn. Þeir benda á að ­Trygg­inga­mið­stöðin (TM) hafi greitt fjóra millj­arða króna í fyrra í arð, auk þess sem félagið hafi keypt bréf af eig­endum sín­um, þrátt fyrir að hagn­að­ur­ ­fé­lags­ins hafi verið mun lægri en það. Þá hafi engin sagt neitt. Hin tvö­ ­fé­lög­in, VÍS og Sjó­vá, hafi ein­fald­lega verið að gera slíkt hið sama nú. Þau hafa nú bæði dregið í land með arð­greiðsl­urnar vegna umræð­unnar og „orð­spors­á­hætt­u“ ­sem til­lögur um arð­greiðsl­urnar höfðu skap­að.

Auglýsing

Fréttir hafa verið sagðar af því að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, ­sem eru líka stærstu eig­endur íslensku trygg­inga­fé­lag­anna, ætl­uðu ekki að ­styðja arð­greiðsl­urnar og berj­ast gegn þeim á kom­andi aðal­fund­um. Þessi fram­setn­ing þeirra þykir mörgum vera tölu­verð hræsni, þar sem arð­greiðsl­urn­ar voru í fullu sam­ræmi við arð­greiðslu­stefnu félag­anna og þau mark­mið um fjár­magns­skipan sem sam­þykkt höfðu verið í stjórn þeirra. Þar sitja nefni­lega m.a. full­trúar líf­eyr­is­sjóða og þeir, sem langstærstu fag­fjár­festar á Ísland­i, eru í öllum til­vikum full­kom­lega með­vit­aðir um hver arð­greiðslu­stefn­an ­sé.

Það sé því ódýrt hjá stjórn­endum líf­eyr­is­sjóð­anna að ætla sér að flýja á­byrgð á eigin ákvörð­unum þegar þær valda úlfúð og reiði í sam­fé­lag­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None