Ætti að vera jólgjöfin í ár en verður það aldrei

photo-32.jpg
Auglýsing

Fyrir nokkrum mán­uðum síðan kom ein­hver úr hljóm­sveit­inni Elínu Hel­enu fær­andi hendi og gaf rit­stjórn Kjarn­ans vín­yl­plötu hljóm­sveit­ar­inn­ar, Til þeirra er málið varð­ar. Það er átján laga plata, átta á A hlið en tíu á B hlið. Ég hafði beðið eftir þess­ari plötu með nokk­urri eft­i­vænt­ingu, en sökum anna gaf ég mér ekki tíma til þess að hlusta á hana vand­lega fyrr en nýlega. Hér á eftir fylgir síð­bú­inn dómur um Til þeirra er málið varð­ar.

Djöf­uls plebbar eru alls staðar



Það er best að draga sleggj­una upp strax og slengja stóra dómnum á borð­ið. Platan er stór­kost­leg. Elín Hel­ena er illa falið leynd­ar­mál í íslenskri rokksenu. Hún var til­tölu­lega vel falið leynd­ar­mál, en með þess­ari plötu hefur bandið rifið sig úr leynd­ar­hjúpnum og stendur eftir upp­rétt, eig­in­lega öskr­andi á athygli. En það er ekki þar með sagt að hún muni fá það sem hún á skil­ið.

Hver ætlar að borga smjörið?



Elín Hel­ena er kraft­mikið rokk­band, frum­legt og pönk­skot­ið. Því er best lýst þannig. Í það minnsta í mínum huga. Það er ein­hver villi­mennska í gangi í lög­un­um. Samt er það þétt, og hljóð­færa­leik­ur­unum er dauð­ans alvara. Það er verið að nostra við að gera þetta villt. Rauður þráður í lífi Elínar Hel­enu í gegnum tíð­ina, hefur verið að gera fáa hluti vel, frekar en marga hluti sæmi­lega eða illa. Afköstin hafa verið í takt við það. Lítið efni komið út á löngum tíma, og bandið hefur sjaldan spilað á tón­leik­um, sé litið yfir feril sem spannar á annan ára­tug.

Lykkju­föll og göt geta ekki að sínu gert



Ég þekki með­limi Elínar Hel­enu ekki neitt. Nema Skúla, trommara. Ég kann­ast við hann eftir að ég hitti hann í Kaup­manna­höfn fyrir ára­tug ásamt öðrum með­limum Bjór­bands­ins (Addi, Njörð­ur, Böðv­ar), þar sem hann lemur húð­ir. Þá gaf hann mér stutt­skífu Elínar Hel­enu, Skoð­anir á útsölu, sælla minn­inga. Hún er fyrir löngu orðin að goð­sagn­ar­kenndri snilld, einna helst á heima­svæði bands­ins, Suð­ur­landsund­ir­lend­inu. En verður kannski seint talin vera á fyr­nefndum stall­i ­fyrir utan þetta róm­að­asta land­bún­að­ar­svæði lands­ins.

Til þeirra er málið varðar er fyrsta plata Elínar Hel­enu í fullri lengd. Eins og áður sagði er hún stór­kost­leg, og per­sónu­lega vona ég að bandið geri ekki þau mis­tök að koma annarri plötu út strax við fyrsta tæki­færi. Það er öruggt, úr því sem komið er, að Elín Hel­ena mun aldrei eign­ast neinn pen­ing og því væri rétt­ast hjá band­inu að æfa þessi sömu lög, aftur og aft­ur, og spila þau á vel völdum tón­leik­um. Og síðan einir í bústað, eða í æfinga­að­stöð­unni.

Ef eruð að spá í þessum sam­heng­is­lausu milli­fyr­ir­sögnum þá eru þær teknar úr villi­manns­legum textum af plöt­unni. Sú fyrsta úr Raun­særri róm­an­tík, næsta úr lag­inu Einu sinni var og þriðja úr hinu frá­bæra Bil­uðum rennilás.

Auglýsing

Til þeirra sem málið varðar ætti að vera jóla­gjöfin í ár, þó hún sé fyrir löngu komin út, en verður það aldrei. Hugs­an­lega selst hún betur fyrir ferm­ingar næsta vors þegar vín­yll­inn verður búinn að rista sig inn í ein­hverja ferm­ing­ar­pakka á Suð­ur­landsund­ir­lend­inu.

https://www.youtu­be.com/watch?v=7Jx43TeLvUQ

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None