Ýmislegt gekk á árinu. Kosningar og Covid. Eldgos og Euróvisjón. Blóðmerar og bitmý. Næsta ár verður vonandi betra. Árið 2021 er ár heilbrigðisstarfsfólks. Aftur! Heilbrigðisstarfsmaðurinn var maður ársins í fyrra, og líka nú. Enn og aftur sér þjóðin hversu mikilvægt það er að búa að þeim mannauð sem býr í íslensku heilbrigðisstarfsfólki. Ítrekað sjáum við hvað opinberir innviðir eru okkur mikilvægir. Hvort sem það er í heimsfaraldri eða þegar við eigum okkar viðkvæmustu stundir. Þá viljum við og þurfum á góðu og færu heilbrigðisstarfsfólki að halda.
Seinþreytt til vandræða
Sjúkraliðar eru þeir sem standa með ykkur þegar þið þurfið á okkur að halda. Við sinnum nærhjúkrun og aðstoðum sjúklinga við athafnir daglegs lífs. Við virðum þarfir fólks og leggjum áherslu á að bæta líðan hvers og eins. Við erum bæði í nærþjónustunni og í framlínunni. Árið í ár sýndi það vel.
Við erum með kollegum okkar, hjúkrunarfræðingum, læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki uppistaðan í hinu svokölluðu heilbrigðiskerfi. Við erum ekki hít, og við kvörtum ekki að ástæðulausu. Við erum seinþreytt til vandræða enda erum við þjálfuð í að vera lausnamiðuð og að vinna undir álagi. Við viljum vel, sem endurspeglast í þjónustuviðhorfi okkar. Við viljum að allir fái heilbrigðisþjónustu í samræmi við þörfina hverju sinni.
Mannanna verk
Okkur finnst sjúkraliðastarfið skipta máli. Okkur finnst það krefjandi en jafnframt afar gefandi á sama tíma. En hvað vantar? Jú, það vantar fleiri sjúkraliða til vinnu. Sjúkraliða sem eru nú þegar til, þar sem um helmingur okkar sem útskrifast kýs að starfa við annað en fagið. Hinn margumtalaði mönnunarvandi er því ekki skortur á menntuðum sjúkraliðum, heldur skortur á fjármagni og betri aðstæðum til vinnu.
Hinn kynskipti vinnumarkaður með sínum kynbundna launamun er mannanna verk og við getum leyst þetta saman. En það gerist ekki af sjálfu sér. Stuðningur og þrýstingur almennings gagnvart stjórnvöldum skiptir hér máli.
Samfélagsleg samstaða
Við sem sinnum hjúkrun stöndum vaktir í Covid og höldum okkur til hlés í jólakúlum og sumarbúbblum, á sama tíma og aðrir í samfélaginu ferðast um og njóta viðburða. Við erum reiðubúin að standa vörð um heilbrigðiskerfið og höfum lagt okkar að mörkum. Nú er komið að því að samfélagið standi með okkur.
Með vísindin að vopni munum við ráða niðurlögum þessarar veiru. En þörfin fyrir gott heilbrigðiskerfi verður enn við lýði. Við munum enn veikjast og slasast, og ef við erum heppin fáum við að eldast, og þá er eins gott að einhver standi vaktina.
Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands.