Það má segja að Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, sé guðfaðir þess íslenska bankakerfis sem við búum við í dag. Neyðarlög ríkisstjórnar hans, sem kynnt voru 6. október 2008, eru grunnur þess.
Það má segja að Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, sé guðfaðir þess íslenska bankakerfis sem við búum við í dag. Neyðarlög ríkisstjórnar hans, sem kynnt voru 6. október 2008, eru grunnur þess.
Auglýsing

1 - Íslensku við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki voru búnir til haustið 2008 eftir hrun banka­kerf­is­ins. Inn í þá voru settar eignir úr slita­búum fall­ina for­vera þeirra og inn­lendar inn­stæð­ur­. Enn þann dag í dag, sjö og hálfu ári eftir stofnun þeirra, eru inn­stæð­ur­ al­menn­ings uppi­staðan í fjár­mögnun þeirra. Sam­an­lagt nema inn­stæður frá við­skipta­vinum þeirra allra 1.622 millj­örðum króna, eða rúm­lega 65 pró­sent af sam­an­lögðum skuldum bank­anna. Þegar inn­stæður Seðla­banka Íslands, sem er hluti af rík­inu, og ann­arra fjár­mála­stofn­anna, sem eru að mestu í rík­i­s­eigu, er bætt við hækkar þetta hlut­fall enn frek­ar. 

2 - Bank­arnir þrí­r hafa sam­tals hagn­ast um 477,7 millj­arðar króna frá árs­lokum 2008. Mestur var ­sam­an­lagður hagn­aður þeirra í fyrra, þegar þeir högn­uð­ust sam­tals um tæpa 107 millj­arða króna. Frá því að þeir voru end­ur­reistir á nýrri kenni­tölu hafa ­bank­arnir þrír greitt 129,4 millj­arða króna í arð til eig­enda sinna. Þorri þeirrar upp­hæðar hefur runnið til íslenska rík­is­ins þar sem Lands­bank­inn, sem er í eigu þess, hefur greitt út 82,6 millj­arða króna í arð á síð­ustu árum. ­Ríkið hefur auk þess átt hluti í Arion banka og Íslands­banka og fengið hluta af arð­greiðslum þeirra.

3 - Um síðust­u ára­mót voru eignir bank­anna þriggja metnar á 3.176 millj­arða króna. Þær eru nú 840 millj­örðum krónum meiri en þær voru í árs­lok 2008 og þegar arð­greiðslum sem greiddar hafa verið út úr bank­anum er bætt við er ljóst að eignir þeirra hafa ­auk­ist að verð­gildi um tæp­lega eitt þús­und millj­arða króna á tíma­bil­inu.

Auglýsing

4 - Eigið fé Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka er sam­an­lagt 669 millj­arðar króna. Það var 302,5 millj­arðar króna í lok árs 2008 og hefur því rúm­lega tvö­faldast ­síðan þá, þrátt fyrir arð­greiðslur til eig­enda.

5 - Bank­arnir þrí­r eru alls­ráð­andi á íslenskum mark­aði. Sam­kvæmt mæl­ingum Gallup er Lands­bank­inn ­með mesta mark­aðs­hlut­deild á ein­stak­lings­mark­aði, eða 36,1 pró­sent. Íslands­banki er með 31 pró­sent en Arion banki er með um 30 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. ­Sam­an­lagt ráða þeir því yfir rúm­lega 97 pró­sent af við­skipta­banka­mark­aðn­um.

6 - Laun hafa hækk­að hraðar hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum en öðrum geirum á Íslandi eftir hrun. ­Með­al­heild­ar­laun full­vinn­andi starfs­manna í geir­anum hækk­uðu um 44,2 pró­sent á ár­unum 2010 til 2014 á meðan að heild­ar­laun allra stétta hækk­uðu um 28,8 ­pró­sent á sama tíma­bili. Auk þess voru starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja með hærri ­laun til að byrja með og því er krónu­tölu­hækkun þeirra mun meiri. Með­al­laun þeirra hækk­uðu um 234 þús­und krónur á tíma­bil­inu á meðan að laun allra stétta hækk­uð­u að með­al­tali um 124 þús­und krón­ur. 

Æðstu stjórn­endur bank­anna eru líka afar vel ­laun­að­ir. Hösk­uldur H. Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, var með tæpar 4,7 millj­ónir á mán­uði í fyrra í laun. Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, var með tæpar 3,7 millj­ónir króna á mán­uði. Laun hennar munu þó lækka á þessu ári vegna eign­ar­halds rík­is­ins á bank­an­um, en kjör Birnu falla þá und­ir­ á­kvörðun Kjara­ráðs. Þar hittir hún fyrir Stein­þór Páls­son, banka­stjóra Lands­bank­ans, sem var með 1,6 millj­ónir króna að með­al­tali í laun í fyrra. Laun hans voru þó hækkuð í des­em­ber 2015 í 1.950 þús­und krónur á mán­uði. Kjör ­stjórn­ar­for­manna bank­anna þriggja eru heldur ekk­ert slor. Tryggvi Páls­son (­for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans) fékk 767 þús­und krónur á mán­uði í fyrra, Frið­rik Soph­us­son, for­maður stjórnar Íslands­banka, 750 þús­und krón­ur, og Mon­ica Canem­an, for­maður stjórnar Arion banka, heil­ar, 1,7 millj­ónir króna á mán­uð­i. ­Stjórn­ar­fundir eru að jafn­aði einu sinni í mán­uði.

7 - Í Arion banka og Ís­lands­banka hafa einnig verið inn­leidd svokölluð kaupauka­kerfi, sem ger­a ­bönk­unum kleift að greiða starfs­fólki sínu bónusa. Sam­an­lagðar bón­us­greiðsl­ur ­sem Arion banki og Íslands­banki skuld­bundu sig til að greiða vegna ­kaupauka­kerfa sinna í fyrra nema 977 millj­ónum króna. Bank­arnir tveir hafa ­sam­an­lagt gjald­fært tæpan tvo og hálfan millj­arð króna vegna bón­us­greiðslna á þremur árum. Lands­bank­inn, sem er að mestu í eigu rík­is­ins, er ekki með­ ár­ang­urstengdar greiðsl­ur. Um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans ­fengu hins vegar hlut í bank­anum gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna þegar hann var afhent­ur.

8 - Bank­arnir borga allir háa skatta. Þeir greiða tekju­skatt, sér­stakan fjár­sýslu­skatt á hagn­að, ­sér­stakan fjár­sýslu­skatt á fjár­mála­fyr­ir­tæki (svo­kall­aðan banka­skatt) og ­sér­stakan skatt á laun starfs­manna. Auk þess greiða þeir í Trygg­inga­sjóð inn­stæðu­eig­enda og fyrir rekstur Umboðs­manns skuld­ara og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í fyrra námu greiðslur bank­anna vegna þess­ara gjalda yfir 30 millj­örðum króna.

9 - Í dag á rík­ið Lands­bank­ann nán­ast að öllu leyti, allt hlutafé í Íslands­banka og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Ríkið er eig­andi að um 80 pró­sent af allri grunn fjár­mála­þjón­ustu lands­ins. Banka­kerfið er líka rekið á ábyrgð skatt­borgar­anna í ljós yfir­lýs­ingar rík­is­stjórnar Íslands um að allar inn­stæður í íslenskum ­bönkum séu tryggðar frá því októ­ber 2008. Yfir­lýs­ingin hefur ekk­ert laga­leg­t ­gildi en stjórn­völd hafa sýnt það í verki að þau muni tryggja inn­stæður reyni á það. Því er kerf­ið, sem er að lang­mestu leyti fjár­magnað af inn­stæð­um, rekið á á­byrgð skatt­greið­enda.

10 - Allir bank­arn­ir á Íslandi eru bestir á Íslandi. Þ.e. þeir hafa allir hlotið alþjóð­leg­ar við­ur­kenn­ingar hjá erlendum tima­ritum sem bestu bankar á Íslandi. Arion Banki er bestur sam­kvæmt tíma­rit­inu The Banker, Íslands­banki bestur sam­kvæmt ­tíma­rit­inu Euromo­ney og Lands­bank­inn bestur sam­kvæmt tíma­rit­inu Global Fin­ance Mag­azine. Vert er að taka fram að sækja þarf um að taka þátt í öllum þessum verð­laun­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None