Ísland knattspyrna fólk
Auglýsing

1.       Hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru Íslend­ingar 332.529, ­sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hag­stofu Íslands. Þeim fjölg­aði um 3.429 á einu ári, eða um sem nemur eitt pró­sent. Á ára­tug, eða frá árinu 2006, hefur lands­mönn­um ­fjölgað um tæp­lega 33 þús­und manns, en 1. jan­úar 2006 voru lands­menn tæp­lega 300 þús­und

2.       Kynja­hlut­föll lands­manna eru næstum jöfn. Í byrjun þessa árs voru karlar 2.011 fleiri en kon­ur. Af lands­mönnum eru 51 ­pró­sent karl­ar, og 49 pró­sent kon­ur.

3.       Fólks­fjölg­unin und­an­farin ár hefur að mestu leyt­i verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Íbúar þar voru 2.333 fleiri í byrjun þessa árs, en árið 2015. Það er um 1,1 pró­sent fjölgun milli ára, en hlut­falls­lega varð mest­a ­fjölg­unin á Suð­ur­nesjum en þar fjölg­aði fólki um 2,2 pró­sent eða 483 frá því í fyrra. Á Suð­ur­landi fjölg­aði fólki um 1,8 pró­sent, eða 445 ein­stak­linga.

Auglýsing

4.       Fólks­fækkun varð á þremur svæðum á land­inu. Á Vest­fjörðum fækk­aði íbúum um 87 ein­stak­linga, eða 1,2 pró­sent, og á Aust­ur­land­i ­fækk­aði íbúum um 44. Á Norð­ur­landi vestra varð einnig lít­ils­háttar fækk­un, eða um 0,1 pró­sent. Á Norð­ur­landi eystra, þar sem Akur­eyri er stærsti stað­ur­inn, ­fjölg­aði fólki lítið eitt, eða um 0,3 pró­sent.

5.       Fjöldi sveit­ar­fé­laga á land­inu breytt­ist ekk­ert. Þau eru 74 og eru mis­stór. Sex sveit­ar­fé­lög eru með færri en 100 íbúa, en 41 sveit­ar­fé­lag er með meira en þús­und íbúa. Ein­ungis níu sveit­ar­fé­lög – nær öll á höf­uð­borg­ar­svæð­inu – er með fleiri íbúa en fimm þús­und.

Reykjavík er stærsta sveitarfélag landsins, en íbúar þar 1. janúar sl. voru 122.460. Mynd: Birgir.

6.       Hinn 1. jan­úar 2016 voru 61 þétt­býl­is­staður með 200 íbú­a eða fleiri á land­inu og hafði þeim fjölgað um einn frá fyrra ári. Auk þeirra voru 35 smærri staðir með 50–199 íbúa sem er fækkun um tvo frá fyrra ári. Í þétt­býli bjuggu 311.850 manns 1. jan­úar 2016 og hafði þá fjölgað um 3.335 á ár­inu. Í dreif­býli og smærri byggða­kjörnum bjuggu 20.679 manns.

7.       Kjarna­fjöl­skyldur voru 79.870 í byrjun árs­ins en 79.356 í byrjun árs 2015. Skipt­ingu heildar­í­búa­fjölda eftir fjöl­skyldu­mynstri má sjá hér á með­fylgj­andi mynd.

Fjölskyldumynstur Íslendinga, sést hér.

8.    Til kjarna­fjöl­skyldu telj­ast hjón og fólk í óvígðri sam­búð, börn hjá þeim 17 ára og yngri, ein­hleypir karlar og konur sem búa með börnum 17 ára og yngri.

9.        Fram­færslu­hlut­fall var 68,1% í árs­byrjun 2016 en 68,4% ári áður. Fram­færslu­hlut­fall er hlut­fall ungs fólks (19 ára og yngra) og eldra fólks (65 ára og eldra) af fólki á vinnu­aldri (20–64 ára). Hækkun þessa hlut­falls stafar einkum af því að fólki á vinnu­aldri fækk­ar.

10.   Stærsta sveit­ar­fé­lagið á Íslandi er Reykjvík­, vita­skuld, en íbúar þar voru 122.460 1. jan­úar 2016. Stærsta sveit­ar­fé­lag­ið utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er Akur­eyr­ar­bær, en þar voru íbúar 18.294.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None