Risarnir þrír lækka verulega

Þrátt fyrir að flestir hagvísar séu jákvæðir á Íslandi þessa dagana þá hefur markaðsvirði stærstu félaganna í kauphöllinni lækkað verulega að undanförnu.

kauphöll
Auglýsing

Mark­aðsvirði þriggja stærstu fyr­ir­tækj­anna í kaup­höll Ís­lands, Mar­els, Öss­urar og Icelanda­ir, hefur fallið um tugi millj­arða á síð­ustu mán­uð­um. Frá því um mitt ár hefur sam­an­lagt mark­aðsvirði þess­ara félaga ­lækkað um 126 millj­arða króna. Mest er fallið hjá Icelanda­ir, um 71 millj­arð­ur­, en mark­aðsvirði þess er nú 118 millj­arðar króna.

Öss­ur, sem lækk­aði um 6,25 pró­sent í við­skiptum dags­ins í dag, hefur einnig lækkað mik­ið. Félagið er nú 166 millj­arða króna virði en hefur lækkað um 41 millj­arð frá því um mitt ár. Þá hefur virði Mar­els einnig ­lækk­að. Lækk­unin nemur um 14 millj­örðum króna. Fyr­ir­tækið er nú verð­mætasta ­fé­lagið í kaup­höll­inni, og nemur mark­aðsvirði þess 172 millj­örðum króna.

Gera upp í erlendri mynt

Sam­an­lagt virði þess­ara félaga er 456 millj­arðar króna, miðað við loka­gengi dags­ins í dag. Eig­in­fjár­staða félag­anna er sterk, og ­rekstr­ar­tölur hafa verið ásætt­an­leg­ar, sé mið tekið af til­kynn­ingum til­ ­kaup­hallar vegna upp­gjöra.

Auglýsing

Eigið fé Icelandair nam 582 millj­ónum Banda­ríkja­dala, í lok sept­em­ber, eða sem nemur um 64 millj­örðum króna. Eigið fé Mar­els var á sama ­tíma 505 millj­ónir evra, eða sem nemur um 62 millj­örðum króna. Össur var með­ 465 millj­ónir Banda­ríkja­dala í eigið fé í lok sept­em­ber, eða sem nemur um 51 millj­arði króna.

Á þessari mynd frá Keldunni, sést hvernig gengið krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum hefur þróast.

Gengið styrk­ist og styrk­ist

Á þessum tíma sem félögin hafa lækkað umtals­vert hefur geng­i krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum styrkst veru­lega. Félögin eru öll með­ efna­hags­reikn­ing sinn í erlendum mynt­um, og því kemur styrk­ing krón­unnar illa við mark­aðsvirði félag­anna, mælt í krón­um. Össur og Icelandair eru með­ efna­hags­reikn­ing í Banda­ríkja­dal en Marel í evr­um.

Á einu ári hefur gengi krón­unnar gagn­vart evru og Banda­ríkja­dal ­styrkst veru­lega. Fyrir rúm­lega ári kost­aði Banda­ríkja­dalur 136 krónur en hann ­kostar nú ríf­lega 111 krón­ur. Evran kost­aði 150 krónur fyrir ári en kostar nú 123 krón­ur.

Þessi þrjú fyrr­nefndu félög mynda um helm­ing alls ­mark­aðsvirðis á skráðum mark­aði á Íslandi, og munar því tölu­vert um sveifl­ur þeirra upp og nið­ur, fyrir eig­endur hluta­bréfa á íslenskum mark­aði. Stærst­u ­eig­endur hluta­bréfa eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, en þeir eiga á bil­inu 40 til­ 50 pró­sent af öllum skráðum hluta­bréf­um. Stærstu eig­endur Öss­urar eru þó d­anskir hlut­haf­ar, sem eiga meira en tvo þriðju af hluta­bréfum í félag­inu.

Eigna­verð hækk­ar...en ekki hluta­bréf

Flestar hag­spár gera ráð fyrir að hag­vöxtur hér á landi verði á bil­inu 4 til 5 pró­sent á þessu ári, og þá hefur fast­eigna­verð hækkað hratt að und­an­förnu og útlit fyrir að sú þróun haldi áfram. Á und­an­förnum þremur árum hefur fast­eigna­verð hækkað um meira en 30 pró­sent að með­al­tali, og gera spár ráð fyrir 20 til 30 pró­sent hækkun á næstu tveimur til þremur árum. 

Á hluta­bréfa­mark­aði hefur reyndin verið önn­ur, eins og áður sagði, einkum og sér í lagi hjá þremur fyrr­nefndu félög­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None