Búist er við því að ársfundur OPEC ríkjanna í Vín í lok mánaðarsins verði sögulegur, þar sem svo gæti farið að samkomulag náist milli ríkjanna um að draga úr olíuframleiðslu. Ekkert er þó öruggt í þeim efnum, en einhver leiðsögn um hvernig framleiðslu verður háttað næstu mánuði og ár, gæti komið fram.
Áhrifamesta ríkið innan OPEC er Sádí-Arabía, en til samtakanna tilheyra fjórtán olíuframleiðsluríki. Auk Sádí-Arabíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Nígería, Sameinuðu arabísku furstadæmin, og Venesúela. Saman standa ríkin undir meira en 33 prósent af heimsframleiðslunni. Olíuframleiðsluríki eins og Brasilía, Bandaríkin, Rússland og Noregur standa utan OPEC.
Eitt af því sem hefur vakið umtal og forvitni greinenda að undanförnu, er hvort OPEC-ríkin sendi frá sér einhvers konar skilaboð í ljósi þess að Donal Trump var kosinn forseti Bandaríkjanna. Einkum og sér í lagi eru það áherslur hans í lofslagsmálum sem gætu komið til
Samráð um olíuframleiðslu
Fundur OPEC eru um margt óvenjulegir, þar sem ríkin hafa í reynd með sér samráð á risavöxnum markaði með olíu, sem síðan hefur mikil og djúp afleidd áhrif á gang efnahagsmála í heiminum.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur sveiflast á bilinu 47 til 50 Bandaríkjadalir á tunnu síðastliðna sex mánuði eftir að það hækkaði um ríflega helming frá því að það náði lágmarki í janúar síðastliðnum. Þá var það komið í 26 Bandaríkjadali, eftir að hafa verið rúmlega ári fyrr í 110 Bandaríkjadölum. Undanfarin tvö ár á olíumarkaði hafa því verið mikil rússíbanareið fyrir olíuframleiðsluríki. Mörg þeirra, einkum þau sem voru með veika innviði fyrir, hafa farið illa út úr verðfallinu, og má sérstaklega benda á Brasilíu og Venesúela í þeim efnum.
Hefur komið sér vel fyrir Íslandi
Þetta mikla verðfall á olíu hefur hins vegar komið sér vel fyrir mörg önnur ríki eins og Ísland. Dregið hefur úr verðbólguþrýstingi erlendis frá, sökkum þessa, og þá hafa útgerðarfyrirtæki og flugfélög notið góðs af því að stór kostnaðarliður í rekstrinum, olíukaup, hefur orðið hagstæðari.
Í nýjustu Peningamálum Seðlabanka Íslands er fundurinn gerður að umtalsefni. „OPEC-ríkin funda á ný í þessum mánuði en mikil óvissa er um niðurstöðu þess fundar og áhrif hennar á heimsmarkaðsverð á olíu. Horfur eru á hærra verði en í ágúst og því búist við minni lækkun á þessu ári en þá var áætlað og meiri hækkunum á næstu árum,“ segir í Peningamálum.
Tunnan af hráolíu á Bandaríkjamarkaði kostar nú 45 Bandaríkjadali og hefur lækkað lítillega í verði undanfarna daga.
Fylgjast má með þróun bensínverðs á Íslandi á bensínvakt Kjarnans.