Félagið Íslenskar fasteignir ehf. hefur keyp íbúða- og atvinnuhúsnæði á Ásbrú, af félaginu Kadeco, fyrir um fimm milljarða króna.
Kaupsamningur þess efnis var undirritaður í gær. „Þessi eignasala er enn eitt skrefið sem Kadeco stígur í átt að þeim markmiðum sem að var stefnt þegar félagið var stofnað og ríkið tók við eignum varnarliðsins hér á Ásbrú. Salan er ekki síður ánægjuefni fyrir samfélagið hér á Reykjanesi. Hún er staðfesting á þeim uppgangi og uppbyggingu sem átt hefur sér stað og framundan er hér á svæðinu og sýnir að einkaaðilar eru reiðubúnir til þess að leggja verulegt fjármagn til þeirrar uppbyggingar til framtíðar,“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco.
Heildarsöluandvirði eignanna frá upphafi nemur samtals um 17,6 milljörðum króna. Þar af hefur Kadeco undanfarin tvö ár selt eignir fyrir 8,5 milljarða. Hreinar tekjur Ríkissjóðs af sölu eigna á Ásbrú munu á endanum nema ríflega tíu milljörðum króna, samkvæmt áætlunum.
Kjartan segir að mannlífið á svæðinu hafi þróast vonum fram, en um 2.500 manns búa nú á svæðinu og fyrirtæki eru vel á annað hundrað.
Eignirnar voru settar í opið söluferli síðastliðið vor og tók söluferlið því um hálft ár. Um er að ræða húsnæði sem skráð er á samtals 231 fastanúmer eða um 28 prósent af heildarfermetrafjölda þess húsnæðis sem Kadeco hefur haft umsýslu með fyrir hönd íslenska ríkisins, en ríkið eignaðist húsnæðið á svæðinu þegar Bandaríkjaher fór frá svæðinu í október 2006.
Eignirnar eru í mismunandi ástandi, að því er segir í tilkynningu, og fyrir liggur að leggja þarf verulega fjármuni í viðhald og endurbætur á þeim á næstu árum. Áætlun Kadeco gerði ráð fyrir að fjárfesta þyrfti um tveimur milljörðum króna í því skyni að koma þeim í notkun.
Með sölunni hefur Kadeco lokið við að selja um 93 prósent þess húsnæðis sem félagið hefur haft til umsýslu á Ásbrú fyrir hönd ríkissjóðs eftir brotthvarf bandaríkjahers frá Miðnesheiði. Frá þeim tíma hafa fasteignirnar verið seldar til 38 mismunandi aðila í opnu söluferli.
Íslenskar fasteignir ehf. er fasteignaþróunarfélag sem sérhæfir sig í verkefnastjórnun og umsjón við þróun fasteigna, af því er segir á vef þess, en ekki kemur fram hverjir eru eigendur félagsins. Félagið tekur að sér samkvæmt samningi við fasteignaeiganda að annast alla þætti framkvæmda og undirbúning að þeim, þ.m.t. skipulagsvinnu, hönnun, útboð verkþátta, fjármögnun og sölu. Jafnframt tekur ÍF að sér rekstur fasteigna, viðhald og eftirlit eftir þörfum fasteignaeiganda hverju sinni.