Heildarsöluvirði eigna 17,6 milljarðar á varnarliðssvæðinu

Íslenska ríkið hefur selt stóran hluta af fasteignum sínum á varnarliðssvæðinu til einkaaðila. Ríkið eignaðist eignirnar þegar Bandaríkjaher fór fyrir rúmum áratug.

Ásbrú
Auglýsing

Félagið Íslenskar fast­eignir ehf.  hefur keyp íbúða- og atvinnu­hús­næði á Ásbrú, af félag­inu Kadeco, fyrir um fimm millj­arða króna. 

Kaup­samn­ingur þess efnis var und­ir­rit­aður í gær.  „Þessi eigna­sala er enn eitt skrefið sem Kadeco stígur í átt að þeim mark­miðum sem að var stefnt þegar félagið var stofnað og ríkið tók við eignum varn­ar­liðs­ins hér á Ásbrú. Salan er ekki síður ánægju­efni fyrir sam­fé­lagið hér á Reykja­nesi. Hún er stað­fest­ing á þeim upp­gangi og upp­bygg­ingu sem átt hefur sér stað og framundan er hér á svæð­inu og sýnir að einka­að­ilar eru reiðu­búnir til þess að leggja veru­legt fjár­magn til þeirrar upp­bygg­ingar til fram­tíð­ar,“ segir Kjartan Þór Eiríks­son, fram­kvæmda­stjóri Kadeco.

Heild­ar­sölu­and­virði eign­anna frá upp­hafi nemur sam­tals um 17,6 millj­örðum króna. Þar af hefur Kadeco und­an­farin tvö ár selt eignir fyrir 8,5 millj­arða. Hreinar tekjur Rík­is­sjóðs af sölu eigna á Ásbrú munu á end­anum nema ríf­lega tíu millj­örðum króna, sam­kvæmt áætl­un­um.

Auglýsing

Kjartan segir að mann­lífið á svæð­inu hafi þró­ast vonum fram, en um 2.500 manns búa nú á svæð­inu og fyr­ir­tæki eru vel á annað hund­rað.

Eign­irnar voru settar í opið sölu­ferli síð­ast­liðið vor og tók sölu­ferlið því um hálft ár. Um er að ræða hús­næði sem skráð er á sam­tals 231 fasta­númer eða um 28 pró­sent af heild­ar­fer­metra­fjölda þess hús­næðis sem Kadeco hefur haft umsýslu með fyrir hönd íslenska rík­is­ins, en ríkið eign­að­ist hús­næðið á svæð­inu þegar Banda­ríkja­her fór frá svæð­inu í októ­ber 2006.

Eign­irnar eru í mis­mun­andi ástandi, að því er segir í til­kynn­ingu, og fyrir liggur að leggja þarf veru­lega fjár­muni í við­hald og end­ur­bætur á þeim á næstu árum. Áætlun Kadeco gerði ráð fyrir að fjár­festa þyrfti um tveimur millj­örðum króna í því skyni að koma þeim í notk­un.

Með söl­unni hefur Kadeco lokið við að selja um 93 pró­sent þess hús­næðis sem félagið hefur haft til umsýslu á Ásbrú fyrir hönd rík­is­sjóðs eftir brott­hvarf banda­ríkja­hers frá Mið­nes­heiði. Frá þeim tíma hafa fast­eign­irnar verið seldar til 38 mis­mun­andi aðila í opnu sölu­ferli.

Íslenskar fast­eignir ehf. er fast­eigna­þró­un­ar­fé­lag sem sér­hæfir sig í verk­efna­stjórnun og umsjón við ­þróun fast­eigna, af því er segir á vef þess, en ekki kemur fram hverjir eru eig­endur félags­ins. Félagið tekur að sér sam­kvæmt samn­ingi við fast­eigna­eig­anda að ann­ast alla þætti fram­kvæmda og und­ir­bún­ing að þeim, þ.m.t. skipu­lags­vinnu, hönn­un, útboð verk­þátta, fjár­mögnun og sölu. Jafn­framt tekur ÍF að sér rekstur fast­eigna, við­hald og eft­ir­lit eftir þörfum fast­eigna­eig­anda hverju sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None