G20: Trump og Pútín funda í dag

Leiðtogaráðstefna G20-ríkjanna hefst í dag. Donald Trump og Vladimír Pútín hittast þar í fyrsta sinn sem forsetar.

Leiðtogar G20 ríkjanna komu til Hamborgar í gær. Leiðtogafundurinn hefst í dag. Trump og Pútín funda saman kl. 13:45 í dag.
Leiðtogar G20 ríkjanna komu til Hamborgar í gær. Leiðtogafundurinn hefst í dag. Trump og Pútín funda saman kl. 13:45 í dag.
Auglýsing

Leið­toga­fundur 20 stærstu iðn­velda heims, G20-­ríkj­anna, hefst í Ham­borg í dag. Þar mun Vla­dimír Pútín, for­seti Rúss­lands, hitta starfs­bróður sinn frá Banda­ríkj­un­um, Don­ald Trump, í fyrsta sinn eftir að sá síð­ar­nefndi var svar­inn í emb­ætti.

Trump var í opin­berri heim­sókn í Pól­landi í gær. Í ávarpi sem hann flutti var hann gagn­rýn­inn á stjórn­völd í Kreml og sagð­ist ætla að leggja áherslu á að Rússar myndu láta af öllum vöðva­sýn­ingum við landa­mæri grann­ríkja sinna, hætta afskiptum sínum í átök­unum í Úkra­ínu og hætta stuðn­ingi sínum við óvin­veitt stjórn­völd í Sýr­landi og Íran.

Fyrir fund­inn hafði Ang­ela Merkel, kansl­ari Þýska­lands og gest­gjafi þjóð­ar­leið­tog­anna í Ham­borg, lagt til að á dag­skrá fund­ar­ins yrði fjallað um lofts­lags­mál og flótta­manna umfram ann­að. Þetta væru stærstu verk­efnin sem þessi 20 öfl­ug­ustu hag­kerfi heims ættu við að etja.

Auglýsing

Gert er ráð fyrir að Don­ald Trump muni fá að heyra gagn­rýni á lofts­lags­stefnu sína úr mörgum hornum á ráð­stefn­unni. Merkel hefur sagst telja mis­mun­andi leiðir færar þegar kemur að úrlausn ágrein­ings­ins þar á milli.

Mótmælendur eru mættir til Hamborgar og vönduðu leiðtogunum ekki kveðjurnar.

„Við erum enn að semja,“ sagði Merkel þegar hún var spurð um hver umræðu­efni ráð­stefn­unnar yrðu í gær. „Það eru mörg mál sem við eigum mögu­leika á að ræða. Við vitum að Banda­ríki hafa dregið sig úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Allir aðr­ir, í það minnsta sem mér og fleirum er kunn­ugt um, standa enn með sam­komu­lag­inu. Hvernig þetta fer allt saman er eitt­hvað sem við látum ykkur svo vita þegar við höfum lokið okkar sam­skipt­u­m.“

Lög­gæslan í Ham­borg er gríð­ar­lega mikil og hefur verið í aðdrag­anda ráð­stefn­unn­ar. Auk þess að þjóð­ar­leið­togar efna­hags­lega öfl­ug­ustu ríkja heims leggi land undir fót, hafa mót­mæl­endur og and­kap­ít­al­ískar hreyf­ingar flykkst til Ham­borg­ar. Lög­reglan gerir ráð fyrir að nærri því 100.000 mót­mæl­endur muni láta sjá sig á götum borg­ar­innar um helg­ina.

Lögregla og mótmælendur tókust á í Hamborg í gær.

Nú þegar hefur hlaupið í kekki milli lög­reglu og mót­mæl­enda. Í gær, fimmtu­dag, spraut­uðu lög­reglu­menn úr bruna­slöngum að mót­mæl­endum til að dreifa þeim.

Frí­verslun stór­mál

Annað mál sem Merkel mun þurfa að koma á dag­skrá eru við­fangs­efni frí­versl­unar í heim­in­um. For­seti Banda­ríkj­anna hefur talað fyrir frek­ari ein­angrun Banda­ríkj­anna í efna­hags­legum skiln­ingi. Merkel mun þurfa að beita öllum ráðum til það láta ekki bit­urð eða heift ráða ferð­inni í sam­ræðum leið­tog­anna.

Merkel tók á móti Don­ald Trump á flug­vell­inum í Ham­borg og ræddi við hann um ráð­stefn­una fram und­an, Norð­ur­-Kóreu, Mið-Aust­ur­lönd og átökin í Úkra­ínu.

Kjarn­inn mun segja frá fram­vindu ráð­stefn­unnar hér á vefnum um helg­ina.

Leiðtogar G20 ríkjanna komu til Hamborgar í gær. Leiðtogafundurinn hefst í dag. Trump og Merkel hittust í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiErlent