Stjórnarflokkarnir hafa allir tapað fylgi síðan í fyrra

Þegar kosningar eru á næsta leyti er gott að taka stöðuna miðað við síðustu skoðanakannanir.

Síðast var kosið til Alþingis fyrir tæpu ári síðan.
Síðast var kosið til Alþingis fyrir tæpu ári síðan.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ákveðið að boða til kosn­inga eins fljótt og auðið er. Sam­kvæmt kosn­inga­lögum verða að líða um það bil sex vikur frá því að þing er rofið og kosn­ingar eru haldn­ar.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, mun taka á moti Bjarna á Bessa­stöðum klukkan 11:00 á morg­un, laug­ar­dag. Bjarni mun eflaust ræða um þing­rof við for­set­ann. Guðni mun svo, ef öllum hefðum verður fylgt, óska eftir því við Bjarna að ráðu­neyti hans sitji áfram í starfs­stjórn þar til mynd­aður verður nýr meiri­hluti á Alþingi.

Það er þess vegna tíma­bært að taka punkt­stöðu á fylgi flokka sem sitja á Alþingi.

Auglýsing

Síð­asti þjóð­ar­púls 4. sept­em­ber

Þjóð­ar­púls Gallup er alla jafna gerður á mán­að­ar­fresti. Síð­asti þjóð­ar­púls var birtur 4. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur allra flokka með 26,3 pró­sent fylgi á lands­vísu.

­Rík­is­stjórnin hafði 34 pró­sent fylgi, það lægsta sem rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hafði mælst með síðan hún tók við 11. jan­ú­ar. Það var í sam­ræmi við sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­ana þriggja, Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar.

Við­reisn mæld­ist með 4,8 pró­sent fylgi í þess­ari nýj­ustu könnun Gallup og Björt fram­tíð með 2,8 pró­sent fylgi. Til sam­an­burðar þá er miðað við að flokkur þurfi að fá fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að ná kjöri á Alþingi.

Vinstri græn eru stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem fyrr með 19,5 pró­sent fylgi. Píratar eru næstir með 13,1 pró­sent fylgi, þá Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,8 pró­sent.

Flokkur fólks­ins mæld­ist með 10,6 pró­sent fylgi í þess­ari könn­un, meira en Sam­fylk­ingin sem mæld­ist með 9,7 pró­sent fylgi.

Könn­unin sem bjó að baki nýj­ustu nið­ur­stöðum var gerð dag­ana 10. til 30. ágúst síð­ast­lið­inn.

Myndin svipuð hjá MMR

Nið­ur­stöður nýj­ustu könn­unar MMR var birt 18. ágúst síð­ast­lið­inn. Þar mæld­ist fylgi flokk­ana svipað og hjá Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var stærstur með 24,5 pró­sent atkvæða, Vinstri græn næst stærst með 20,5 pró­sent, þá Píratar með 13,5 pró­sent, Sam­fylk­ingin með 10,6 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,1 pró­sent.

Stjórn­ar­flokk­arnir Við­reisn og Björt fram­tíð mæld­ust með minnst fylgi þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Við­reisn mæld­ist með 6,0 pró­sent fylgi, og Björt fram­tíð með 3,6 pró­sent.

Miðað við kosn­ingar fyrir ári

Séu nýj­ustu kann­an­irnar bornar saman við nið­ur­stöðu kosn­ing­anna 2016 má sjá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur minnkað aðeins, eins og sést á töfl­unni hér að neð­an. Það sama má segja um hina flokk­ana sem setið hafa í rík­is­stjórn.

Á sama tíma hafa Vinstri græn og Sam­fylk­ingin bætt við sig fylgi síðan í kosn­ing­un­um.

Flokkur Kosn­ingar 2016 MMR Gallup
Sjálf­stæð­is­flokkur 29,0% 24,5% 26,3%
Vinstri græn 15,9% 20,5% 19,5%
Píratar 14,5% 13,5% 13,1%
Fram­sókn­ar­flokkur 11,5% 10,1% 10,8%
Við­reisn 10,5% 6,0% 4,8%
Björt fram­tíð 7,2% 3,6% 2,8%
Sam­fylk­ingin 5,7% 10,6% 9,7%

Nið­ur­stöður kosn­inga 2016, nýjasta könnun MMR og Gallup



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar