Fjárfestingafélagið PAI Partners SAS gerði í dag nýtt yfirtökutilboð í hollenska drykkjavöruframleiðandann Refresco. Tilboðið hljóðar er upp á 1,6 milljarða evra og er 14 prósent hærra en fyrra yfirtökutilboð, sem hafnað var í apríl síðastliðnum. Miðað við gengi evru í dag er tilboðið upp á um 200 milljarða íslenskra króna.
Stærsti einstaki hluthafi Refresco eru Stoðir, sem áður hétu FL Group. Verði yfirtökutilboðið samþykkt myndu Stoðir fá um 17,7 milljarða króna í sinn hlut. Hluturinn var metinn á 12,7 milljarða króna um síðustu áramót í bókum Stoða og því ljóst að hluthafar Stoða munu fá mun meira en það fyrir hann verði tilboðið samþykkt.
Greint er frá yfirtökutilboðinu í tilkynningu frá Refresco til markaðarins í Hollandi í dag.
Græða milljarða á nokkrum mánuðum
Refresco er eina eftirstandandi eign Stoða. Í vor áttu sér stað umtalsverð viðskipti með hluti í félaginu. Tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., eignuðust meirihluta í Stoðum. Samanlagt eiga þessi tvö félög 50,15 prósent hlut.
Fyrirliggjandi upplýsingar úr fyrirtækjaskrá benda til þess að félögin tvö hafi greitt 4,8 milljarða króna fyrir 48,73 prósent hlut. Miðað við það verð má ætla að markaðsvirði Stoða væri um tíu milljarðar króna þegar viðskiptin áttu sér stað.
Miðað við yfirtökutilboðið virðist ljóst að hópurinn sem keypti hlutinn í Stoðum snemma á þessu ári, í viðskiptum sem litlar upplýsingar fást um, hefur hagnað mjög vel á fjárfestingu sinni. Og verði yfirtökutilboðinu tekið munu þeir geta leyst það fé út. Alls ætti hlutur þeirra að verða 8,9 milljarðar króna. Hópurinn hefur því tæplega tvöfaldað fjárfestingu sínu á örfáum mánuðum miðað við þær tölur sem gefnar eru upp í gögnum sem skilað var inn til fyrirtækjaskráar.
Gamlir lykilmenn úr FL og stjórnarmenn TM
En hverjir eru í þessum hópi? S121 og S122 eru í eigu fjögurra einkahlutafélaga og eins skráðs félags, Tryggingamiðstöðvarinnar. Félögin fjögur heita Helgarfell ehf., Esjuborg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hluthafar í Tryggingarmiðstöðinni. Og eigendur þeirra voru margir hverjir lykilmenn í FL Group á árunum fyrir hrun.
Esjuborg er í 50 prósent eigu félags sem heitir Jöklaborg. Það er skráð í 100 prósent eigu Jóhanns Arnars Þórarinssonar, forstjóra og eins stærsta eiganda veitingarisans Foodco. Hinn helmingurinn í Esjuborg er í eig Riverside Capital SARL, félags sem er skráð í Lúxemborg. Samkvæmt Panamaskjölunum er það félag í endanlegri eigu Fortown Corp, félags skráð á Möltu. Eigandi þess félags er Örvar Kærnested. RiversideCapital á líka 2,63 prósent hlut í Tryggingamiðstöðinni í gegnum íslenska félagið Riverside Capital ehf. Hann situr einnig í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar. Örvar var yfir starfsemi FL Group í London um tíma fyrir bankahrun og þar áður hjá Kaupþingi í níu ár. Hann er nú umsvifamikill fjárfestir. Hann settist í stjórn Stoða á síðasta aðalfundi félagsins, se fór fram 21. apríl síðastliðinn.
Stærsti einstaki eigandi að hlutum í Tryggingamiðstöðinni, að undanskildum lífeyrissjóðum og sjóðs í stýringu Stefnis, er félag sem heitir Helgarfell ehf. með 6,34 prósent hlut. Helgarfell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Tryggingarmiðstöðinni á síðustu mánuðum.
Eigendur Helgarfells eru Björg Fenger, Kristín Fenger Vermundsdóttir og Ari Fenger. Björg er eiginkona Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra FL Group/Stoða. Jón tók við sem stjórnarformaður Stoða á síðasta aðalfundi félagsins fyrir tæpum mánuði síðan.
Fjórða félagið sem er stór eigandi í S122 og S121 heitir GGH ehf. Eigendur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hollenska félagsins Golden Gate Management BV, sem tengist Magnúsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magnúsar Ármann), og BNB Consulting (félag í eigu Bernhards Bogasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra lögfræðissviðs FLGroup) sem á eitt prósent hlut. Magnús Ármann var á meðal hluthafa í FL Group fyrir hrun og sat í stjórn félagsins.
Samstarfsaðili hópsins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hollensk fjárfestis.
Tengsl við fortíðina
Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórnir. Í S121 er Gunnar Sturluson lögmaður í stjórn. Hann var lengi vel náinn samstarfsmaður Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, var lögmaður hans, sat í stjórnum og var skráður framkvæmdastjóri félaga í eigu Hannesar. Gunnar er líka í stjórn S122. Þar situr hann ásamt Þorsteini M. Jónssyni, sem á árum áður var oftast kenndur við kók. Þorsteinn átti hlut í FL Group fyrir bankahrunið, sat í stjórn félagsins og tók við sem stjórnarformaður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfirráðum yfir bankanum.
Bæði Jón Sigurðsson og Þorsteinn M. Jónsson hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eigenda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.
GlitnirHoldco seldi
Stærsti seljandi þeirra hluta sem félögin tvö keyptu í vor var GlitnirHoldco, eignarhaldsfélag utan um eftirstandandi eignir Glitnis, banka sem FL Group og tengdir aðilar voru með tögl og haldir í á lokametrum íslenska góðærisins fyrir hrun.
Félagið sjálft átti 32 prósent hlut í Glitni. Banka sem lánaði FL Group samstæðunni tugi milljarða króna sem leiddi svo til þess að kröfuhafar bankans eignuðust stærstan hluta í félaginu eftir að það fór í gegnum nauðasamning sumarið 2009.
GlitnirHolco hefur ekkert viljað gefa upp um hvað hefði verið greitt fyrir hlutinn í Refresco sem félagið seldi, en það hafði átt 40,28 prósent hlut. Raunar hafa ekki fengist upplýsingar um hvenær hópurinn sem nú á meirihluta í Stoðum hóf uppkaup sín á bréfum, hvað hann greiddi fyrir hlutinn né hvernig þau kaup voru fjármögnuð utan þeirra upplýsinga sem hægt er að nálgast í skráningarskjölum félaganna í fyrirtækjaskrá,sem fjallað er um hér að ofan.