Vinstri græn og Miðflokkurinn sterkust í Norðaustri
Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn eru vinsælustu framboðin í öllum kjördæmum og eiga vísa menn á þing allstaðar. Miðflokkurinn er næst stærstur í Norðausturkjördæmi.
Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn deila yfirráðum í kjördæmunum sex í aðdraganda Alþingiskosninganna 2017, miðað við kosningaspá Baldurs Héðinssonar og Kjarnans.
Sjálfstæðisflokkurinn er vinsælastur í þremur kjördæmum: Suðurkjördæmi, Norðvesturkjördæmi og stærsta kjördæmi landsins í Suðvesturkjördæmi. Vinstri græn eru vinsælust í hinum kjördæmunum: Norðausturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.
Miðflokkurinn er næst vinsælastur í Norðausturkjördæmi þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson reiknast með 100 prósent líkur á því að ná kjöri í þingsætaspánni.
- 7%Arngrímur Viðar Ásgeirsson
- 0.2%Halla Björk Reynisdóttir
- 0%Hörður Finnbogason
- 89%Þórunn Egilsdóttir
- 33%Líneik Anna Sævarsdóttir
- 2%Þórarinn Ingi Pétusson
- 17%Benedikt Jóhannesson
- 0.2%Hildur Betty Kristjánsdóttir
- 0%Jens Hilmarsson
- 99%Kristján Þór Júlíusson
- 68%Njáll Trausti Friðbertsson
- 11%Valgerður Gunnarsdóttir
- 0.3%Arnbjörg Sveinsdóttir
- 22%Halldór Gunnarsson
- 0.9%Pétur Einarsson
- 0%Ástrún Lilja Sveinbjörnsdóttir
- 100%Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
- 81%Anna Kolbrún Árnadóttir
- 18%Þorgrímur Sigmundsson
- 18%Einar Aðalsteinn Brynjólfsson
- 0.4%Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
- 0%Hrafndís Bára Einarsdóttir
- 96%Logi Már Einarsson
- 42%Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
- 2%María Hjálmarsdóttir
- 100%Steingrímur Jóhann Sigfússon
- 99%Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
- 77%Ingibjörg Þórðardóttir
- 17%Edward H. Huijbens
- 0.7%Óli Halldórsson
- 3%Guðlaug Kristjánsdóttir
- 0%Kristín Sigurgeirsdóttir
- 0%Elín Matthildur Kristinsdóttir
- 61%Ásmundur Einar Daðason
- 4%Halla Signý Kristjánsdóttir
- 0.1%Stefán Vagn Stefánsson
- 6%Gylfi Ólafsson
- 0%Lee Ann Maginnis
- 0%Haraldur Sæmundsson
- 100%Haraldur Benediktsson
- 98%Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
- 48%Teitur Björn Einarsson
- 3%Hafdís Gunnarsdóttir
- 44%Magnús Þór Hafsteinsson
- 4%Hjördís Heiða Ásmundsdóttir
- 0%Júlíus Ragnar Pétursson
- 88%Bergþór Ólason
- 16%Sigurður Páll Jónsson
- 0.2%Jón Þór Þorvaldsson
- 54%Eva Pandora Baldursdóttir
- 3%Gunnar I. Guðmundsson
- 0%Rannveig Ernudóttir
- 77%Guðjón S. Brjánsson
- 7%Arna Lára Jónsdóttir
- 0%Jónína Björg Magnúsdóttir
- 100%Lilja Rafney Magnúsdóttir
- 74%Bjarni Jónsson
- 9%Rúnar Gíslason
- 9%Jasmina Crnac
- 0.4%Arnbjörn Ólafsson
- 0%Valgerður Björk Pálsdóttir
- 93%Sigurður Ingi Jóhannsson
- 43%Silja Dögg Gunnarsdóttir
- 3%Ásgerður K. Gylfadóttir
- 18%Jóna Sólveig Elínardóttir
- 0.3%Arnar Páll Guðmundsson
- 0%Stefanía Sigurðardóttir
- 100%Páll Magnússon
- 99%Ásmundur Friðriksson
- 75%Vilhjálmur Árnason
- 18%Unnur Brá Konráðsdóttir
- 34%Karl Gauti Hjaltason
- 3%Heiða Rós Hauksdóttir
- 0%Guðmundur Borgþórsson
- 88%Birgir Þórarinsson
- 26%Elvar Eyvindsson
- 0.9%Sólveig Guðjónsdóttir
- 72%Smári McCarty
- 12%Álfheiður Eymarsdóttir
- 0.3%Fanný Þórsdóttir
- 95%Oddný G. Harðardóttir
- 42%Njörður Sigurðsson
- 3%Arna Ír Gunnarsdóttir
- 97%Ari Trausti Guðmundsson
- 60%Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
- 8%Daníel E. Arnarsson
- 0.2%Dagný Alda Steinsdóttir
- 14%Óttarr Proppé
- 2%Auður Kolbrá Birgisdóttir
- 0%Sunna Jóhannsdóttir
- 24%Lárus Sigurður Lárusson
- 2%Kjartan Þór Ragnarsson
- 0%Tanja Rún Kristmannsdóttir
- 77%Þorsteinn Víglundsson
- 33%Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
- 2%Páll Rafnar Þorsteinsson
- 98%Guðlaugur Þór Þórðarson
- 70%Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
- 15%Birgir Ármannsson
- 0.9%Albert Guðmundsson
- 40%Ólafur Ísleifsson
- 6%Kolbrún Baldursdóttir
- 0.2%Svanberg Hreinsson
- 50%Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir
- 5%Guðlaugur G. Sverrisson
- 0.1%Sólveig Bjarney Daníelsdóttir
- 92%Helgi Hrafn Gunnarsson
- 49%Halldóra Mogensen
- 6%Gunnar Hrafn Jónsson
- 99%Helga Vala Helgadóttir
- 78%Páll Valur Björnsson
- 20%Eva H. Baldursdóttir
- 100%Katrín Jakobsdóttir
- 100%Steinunn Þóra Árnadóttir
- 85%Andrés Ingi Jónsson
- 29%Halla Gunnarsdóttir
- 7%Nicole Leigh Mosty
- 0.3%Hörður Ágústsson
- 0%Starri Reynisson
- 25%Lilja Dögg Alfreðsdóttir
- 1%Alex B. Stefánsson
- 0%Birgir Örn Guðjónsson
- 69%Hanna Katrín Friðriksson
- 19%Pawel Bartoszek
- 0.6%Dóra Sif Tynes
- 100%Sigríður Á. Andersen
- 98%Brynjar Níelsson
- 63%Hildur Sverrisdóttir
- 12%Bessí Jóhannsdóttir
- 27%Inga Sæland
- 3%Guðmundur Sævar Sævarsson
- 0%Linda Mjöll Gunnarsdóttir
- 39%Þorsteinn B. Sæmundsson
- 3%Valgerður Sveinsdóttir
- 0%Baldur Borgþórsson
- 94%Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
- 57%Björn Leví Gunnarsson
- 8%Olga Cilia
- 99%Ágúst Ólafur Ágústsson
- 72%Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir
- 14%Einar Kárason
- 100%Svandís Svavarsdóttir
- 99%Kolbeinn Óttarsson Proppé
- 74%Orri Páll Jóhannsson
- 17%Eydís Blöndal
- 11%Björt Ólafsdóttir
- 1%Karólína Helga Símonardóttir
- 0.1%Halldór Jörgensson
- 53%Willum Þór Þórsson
- 12%Kristbjörg Þórisdóttir
- 0.7%Linda Hrönn Þórisdóttir
- 75%Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
- 32%Jón Steindór Valdimarsson
- 4%Sigríður María Egilsdóttir
- 100%Bjarni Benediktsson
- 100%Bryndís Haraldsdóttir
- 99%Jón Gunnarsson
- 85%Óli Björn Kárason
- 41%Vilhjálmur Bjarnason
- 29%Guðmundur Ingi Kristinsson
- 5%Jónína Björk Óskarsdóttir
- 0.2%Edith Alvarsdóttir
- 91%Gunnar Bragi Sveinsson
- 47%Una María Óskarsdóttir
- 8%Kolfinna Jóhannesdóttir
- 82%Jón Þór Ólafsson
- 34%Oktavía Hrund Jónsdóttir
- 5%Dóra Björt Guðjónsdóttir
- 98%Guðmundur Andri Thorsson
- 67%Margrét Tryggvadóttir
- 18%Adda María Jóhannsdóttir
- 2%Finnur Beck
- 97%Rósa Björk Brynjólfsdóttir
- 71%Ólafur Þór Gunnarsson
- 21%Una Hildardóttir
- 2%Fjölnir Sæmundsson
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á landsvísu
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins miðað við kosningaspána með 23,8 prósent fylgi. Það er önnun kosningaspáin í röð þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur. Vinstri græn, sem voru vinsælasta framboðið framan af kosningabaráttunni eru næst stærst og eru nú með stuðning 21,2 prósent kjósenda.
Líklegast er að Sjálfstæðisflokkurinn fái 16 þingmenn kjörna í kosningunum, miðað við þingsætaspá á landsvísu. Vinstri græn munu fá 15 þingmenn kjörna.
Samfylkingin er enn þriðja stærsta framboðið í aðdraganda kosninganna og er nú með 14,2 prósent stuðning í kosningaspánni. Raunar hafa engir flokkar sætaskipti í kosningaspánni nú miðað við stöðuna 23. október. Fylgi framboða breytist hins vegar lítillega.
Fyrir utan hreyfingar á fylgi Vinstri grænna er helst að merkja breytingar á fylgi Framsóknarflokksins, sem tapar um hálfu prósentustigi, og aukningu í stuðningi við Viðreins um annað eins.
Meirihluti tveggja flokka ólíklegri
Eftir því sem nær dregur kosningum verður það æ ólíklegra að hægt verði að mynda meirihluta á þingi með samanlögðum þingmannafjölda tveggja flokka. Aðeins eru teljandi möguleikar á að tveir stærstu flokkarnir – Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn – geti myndað stjórn. Kosningaspáin metur líkurnar á að slíkt geti orðið 32 prósent.
Þingsætaspáin verður til í 100.000 sýndarkosningum þar sem niðurstöður kosningaspárinnar eru hafðar sem líklegasta kosningaútkoma. Vikmörk, skekkja á milli kjördæma og slíkt er notað til þess að áætla mismunandi dreifingu atkvæða.
Þingmenn | DM | DFM | BD | BDM | BSM | BDSM | BSV | BPSV | PSV | PV | DV | SV |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
>=41 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 13% | 0% | 3% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=40 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 20% | 0% | 6% | 0% | 0% | 1% | 0% |
>=39 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 29% | 0% | 10% | 1% | 0% | 1% | 0% |
>=38 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 39% | 0% | 16% | 1% | 0% | 2% | 0% |
>=37 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 50% | 1% | 24% | 2% | 0% | 4% | 0% |
>=36 | 0% | 0% | 0% | 1% | 0% | 61% | 2% | 34% | 4% | 0% | 7% | 0% |
>=35 | 0% | 0% | 0% | 2% | 0% | 71% | 3% | 45% | 8% | 0% | 12% | 0% |
>=34 | 0% | 1% | 0% | 3% | 0% | 80% | 6% | 56% | 13% | 0% | 18% | 0% |
>=33 | 0% | 1% | 0% | 6% | 0% | 87% | 10% | 67% | 20% | 0% | 27% | 0% |
>=32 | 0% | 3% | 0% | 10% | 0% | 92% | 17% | 77% | 29% | 0% | 38% | 1% |
>=31 | 1% | 5% | 0% | 16% | 0% | 95% | 25% | 84% | 39% | 0% | 49% | 2% |
>=30 | 2% | 9% | 0% | 24% | 0% | 98% | 35% | 90% | 51% | 0% | 62% | 4% |
>=29 | 4% | 14% | 1% | 34% | 1% | 99% | 46% | 94% | 62% | 0% | 73% | 7% |
>=28 | 7% | 22% | 1% | 46% | 2% | 99% | 58% | 97% | 73% | 1% | 82% | 11% |
>=27 | 11% | 31% | 3% | 58% | 3% | 100% | 69% | 98% | 82% | 2% | 89% | 19% |
>=26 | 18% | 42% | 6% | 69% | 6% | 100% | 78% | 99% | 88% | 5% | 94% | 28% |
>=25 | 28% | 54% | 10% | 78% | 11% | 100% | 86% | 100% | 93% | 9% | 97% | 40% |
>=24 | 39% | 66% | 17% | 86% | 17% | 100% | 92% | 100% | 96% | 15% | 99% | 53% |
>=23 | 52% | 76% | 26% | 92% | 26% | 100% | 95% | 100% | 98% | 24% | 99% | 65% |
>=22 | 65% | 84% | 38% | 95% | 37% | 100% | 98% | 100% | 99% | 35% | 100% | 76% |
>=21 | 76% | 90% | 50% | 98% | 49% | 100% | 99% | 100% | 100% | 47% | 100% | 85% |
>=20 | 85% | 95% | 63% | 99% | 61% | 100% | 100% | 100% | 100% | 60% | 100% | 91% |
>=19 | 91% | 97% | 75% | 99% | 72% | 100% | 100% | 100% | 100% | 71% | 100% | 96% |
>=18 | 95% | 99% | 84% | 100% | 81% | 100% | 100% | 100% | 100% | 81% | 100% | 98% |
>=17 | 98% | 99% | 91% | 100% | 88% | 100% | 100% | 100% | 100% | 89% | 100% | 99% |
>=16 | 99% | 100% | 95% | 100% | 93% | 100% | 100% | 100% | 100% | 93% | 100% | 100% |
Í þrjú prósent tilvika þessara sýndarkosninga var hægt að mynda 32 manna meirihluta með samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Vinstri græn og Samfylkingin gátu myndað meirihluta í einu prósent tilvika.
Það er þess vegna mun líklegra að þrír eða fleiri flokkar verði að starfa saman í ríkisstjórn, ef mynda á meirihlutastjórn að kosningum loknum. Þar eru möguleikarnir fleiri en líkurnar ekki hughreystandi fyrir forystumenn flokka sem þurfa að berja saman stefnumálum flokka eftir kosningar.
Píratar, Samfylkingin og Vinstri græn gátu myndað meirihluta í 29 prósent tilvika sýndarkosninganna. Ef Framsóknarflokknum var skipt inn fyrir Pírata urðu tilvikin 17 prósent. Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn eiga svo 10 prósent líkur á því að geta mynda meirihluta miðað við þessa kosningaspá.
Samstarf fjögurra flokka er mun líklegra til þess að ganga upp.
100.000 sýndarkosningar búa að baki
Þingsætaspáin er byggð á reiknilíkani Baldurs Héðinssonar og Stefáns Inga Valdimarssonar. Í stuttu máli er aðferðafræðin sú að fylgi framboða í skoðanakönnunum er talin líklegasta niðurstaða kosninga að viðbættri óvissu sem byggir á sögulegu fráviki kannana frá kosningaúrslitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/vanmeta fylgi flokks í einu kjördæmi og að ofmeta/vanmeta fylgi flokksins í öðrum kjördæmum. Frávikið frá líklegustu niðurstöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjördæma. Ef frávikið er neikvætt í einu kjördæmi fyrir ákveðinn flokk aukast líkurnar á að það sé sömuleiðis neikvætt í öðrum kjördæmum.
Reiknilíkanið hermir 100.000 „sýndarkosningar“ og úthlutar kjördæma- og jöfnunarsætum út frá niðurstöðunum. Líkur frambjóðanda á að ná kjöri er þess vegna hlutfall „sýndarkosninga“ þar sem frambjóðandinn nær kjöri.
Nánar má lesa um aðferðafræði Kosningaspárinnar í kosningamiðstöð Kjarnans.
Tökum ímyndað framboð X-listans í Norðvesturkjördæmi sem dæmi: Framboðið mælist með 20 prósent fylgi. Í flestum „sýndarkosningunum“ fær X-listinn 2 þingmenn en þó kemur fyrir að fylgið í kjördæminu dreifist þannig að niðurstaðan er aðeins einn þingmaður. Sömuleiðis kemur fyrir að X-listinn fær þrjá þingmenn í kjördæminu og í örfáum tilvikum eru fjórir þingmenn í höfn.
Ef skoðað er í hversu mörgum „sýndarkosningum“ hver frambjóðandi komst inn sem hlutfall af heildarfjölda fást líkurnar á að sá frambjóðandi nái kjöri. Sem dæmi, hafi frambjóðandinn í 2. sæti X-listans í Norðvesturkjördæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýndarkosningum“ þá reiknast líkurnar á því að hann nái kjöri í Alþingiskosningunum 90 prósent.
Skoðanakannanir í aðdraganda Alþingiskosninga 2009 og 2013 voru notaðar til að sannprófa þingsætaspánna, þar sem spáin er borin saman við endanlega úthlutun þingsæta. Þingsætaspáin var jafnframt birt í fyrsta sinn í aðdraganda Alþingiskosninga 2016.