Alls fengu 115 flóttamenn hæli á Íslandi á fyrstu ellefu mánuðum ársins. Það eru fimm fleiri en fengu hæli hérlendis á öllu árinu 2016, þegar 110 manns fengu slíkt. Alls hafa 1.033 sótt um hæli hérlendis það sem af er ári en þeir voru 1.130 í fyrra. Það stefnir því í að fjöldi hælisleitenda hérlendis verði nánast sá sami 2017 og hann var árið 2016. Þetta kemur fram í tölum sem Útlendingastofnun birti í gær.
Af þeim 115 sem hafa fengið hæli hérlendis það sem af er ári komu 25 frá Afganistan, 34 frá Írak og 13 frá Sýrlandi. Það þýðir að tæplega tveir af hverjum þremur sem fengið hafa hæli hérlendis á fyrstu ellefu mánuðum ársins hafa komið frá þessum þremur löndum.
Þeim hælisleitendum sem eru í þjónustu sveitarfélaga eða Útlendingastofnunar hefur fækkað mikið á þessu ári. Þeir voru 820 í byrjun desember 2016 en 559 í byrjun yfirstandandi mánaðar. Það þýðir að hælisleitendum sem eru á forræði ríkis eða sveitarfélaga hefur fækkað um tæpan þriðjung á einu ári. Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá framfærslueyri. Hann er átta þúsund krónur fyrir einstakling á viku en 23 þúsund krónur hjá fjögurra manna fjölskyldu. Auk þess fær hver fullorðinn hælisleitandi 2.700 krónur í vasapening á viku og foreldrar fá viðbótar þúsund krónur fyrir hvert barn.
2,7 milljarðar til hælismála á næsta ári
Fjöldi hælisleitenda hérlendis jókst mikið í fyrra. Í uppgjöri ríkissjóðs vegna fyrstu sex mánaða ársins 2017 kom fram að hrein útgjöld vegna réttinda einstaklinga hafi verið 2,2 milljarðar króna sem var 1.251 milljónum meira en áætlað var. Þar sagði: „Í fjárheimildum vegna ársins 2017 voru verulega vanáætlaðar í fjárlagagerð fyrir árið 2017 í ljósi fordæmalausrar fjölgunar hælisumsókna á síðustu mánuðum ársins 2016. Kostnaður vegna þessara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfirstandandi ári.“ Hluti þess viðbótarkostnaðar var því vegna kostnaðar sem féll til á árinu 2016 en hafði ekki verið gert ráð fyrir í fjárlögum.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði grein í Morgunblaðið í október þar sem hann sagði að kostnaður vegna hælisleitenda hérlendis gæti farið í sex milljarða króna á ári og jafnvel í 220 milljarða króna á ári miðað við sviðsmyndir sem settar hefðu verið fram.
Samkvæmt fjárheimild til útlendingamála í fjárlagafrumvarpi ársins 2018 er reiknað með að heildarframlög til hælismála verði um 2,7 milljarðar króna á næsta ári, sem er helmingi lægri upphæð en lægri mörk þess bils sem Ásmundur nefndi í grein sinni.