Umsvifamiklir fjárfestar með stöðu sakbornings

Fjórir fjárfestar sem hafa stöðu sakbornings eiga stóra hluti í mikilvægum fjármálafyrirtækjum hérlendis og auka við sig á meðan að rannsókn stendur yfir á málum þeirra.

Eitt dómsmálanna tengist meintum umboðssvikum í Skeljungi.
Eitt dómsmálanna tengist meintum umboðssvikum í Skeljungi.
Auglýsing

Fjórir ein­stak­lingar sem allir hafa stöðu sak­born­ings í yfir­stand­andi dóms­málum hafa á und­an­förnum vikum kom­ist til auk­inna áhrifa innan umsvifa­mik­illa fjár­mála­fyr­ir­tækja á meðan rann­sókn stendur yfir. Eng­inn þeirra er enn orð­inn virkur eig­andi neins fyr­ir­tækis en í þremur til­vikum eru þeir með stærstu ein­stak­lings­fjár­festum skráðra fyr­ir­tækja. 

Hugs­an­lega umfangs­mestu skatta­laga­brot Íslands

Í Frétta­blað­inu var greint frá dóms­máli Sig­urðar Gísla Björns­son­ar, stofn­anda og eig­anda fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæmark ehf., en hann er grun­aður um stór­felld skattaund­an­skot sem eru til rann­sóknar hjá Skatt­rann­sókn­ar­stjóra og Hér­aðs­sak­sókn­ara. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri sagði rann­sókn­ina snú­ast um eitt af umfangs­mestu skatta­laga­brotum sem upp hafa komið hér á land­i. 

Í frétt­unum var greint frá því að lög­maður Sig­urðar Gísla, Andri Gunn­ars­son, hafði fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu, en hús­leit var fram­kvæmd á heim­ili hans annan maí síð­ast­lið­inn. 

Auglýsing

Andri er einn af eig­endum eign­ar­halds­fé­lags­ins Óska­beins ehf. ásamt öðrum fjár­fest­um, en félagið á 2,05% í VÍS, auk þess sem það á um 10% hlut í Korta­þjón­ust­unni. Sömu­leiðis veitti Arion banki Óska­beini fullt umboð til að fara með atvæð­is­rétt rúmra 4% af VÍS við síð­asta hlut­hafa­fund, en á þeim fundi ákvað fyr­ir­tækið að lækka hlutafé sitt um 1,8 millj­arða króna sem það greiðir með hluta­bréfum í Kviku. 

Skelj­ungs­flétt­an 

Annað mál sem er til skoð­unar hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara er hið svo­kall­aða Skelj­ungs­mál, sem Kjarn­inn hefur áður fjallað um. Skelj­ungs­málið snýst um meint umboðsvik, meint skila­svik, mögu­leg mútu­brot og mögu­leg brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Meðal þeirra sem gegna stöðu sak­born­ings í því máli eru Einar Örn Ólafs­son auk hjón­anna Svan­hildi Nönnu Vig­fús­dóttur og Guð­mundar Arnar Þórð­ar­son­ar.  Hjónin Guð­mundur og Svan­hildur voru hand­tekin 31. maí síð­ast­lið­inn, en Einar Örn var einnig boð­aður til skýrslu­töku sama dag. 

Einar Örn er meðal stærstu eig­enda Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar (TM), en eign­ar­hlutur hans í félag­inu nær 2,8%, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið sitt Einir ehf.. Auk þess er Einar í hópi eig­enda eign­ar­halds­fé­lags­ins S121, sem á um 59% í Stoðum ehf., sem áður var þekkt sem FL Group. S121 jók nýverið við  hlut sinn í Stoð­um, en félagið keypti 4,6 pró­senta hlut af öðrum hlut­höfum fyr­ir­tæk­is­ins seint í maí síð­ast­liðn­um. Líkt og Kjarn­inn greindi frá nýverið keyptu Stoðir 0,6% hlut í Arion banka og eru þar með orðnir stærstu íslensku einka­fjár­fest­arnir í bank­an­um. Stoðir skráðu sig fyrir átta sinnum stærri hlut í útboði bank­ans, en fengu ekki að kaupa hann all­an.

Hjónin Svan­hildur Nanna og Guð­mundur Örn eiga svo sam­an­lagt um 7 pró­senta hlut í VÍS í gegnum eign­ar­halds­fé­lögin sín, Heddu ehf. og K2B ehf, og eru því með stærstu ein­stak­lings­fjár­festum félags­ins. Þar að auki eiga þau 7,4% beinan eign­ar­hlut í Kviku og 6,7% hlut í Korta­þjón­ust­unn­i. 

Hlutir í Kviku í boði VÍS

Á hlut­hafa­fundi VÍS þann 27. júní síð­ast­lið­inn var sam­þykkt að 1,8 millj­arðar króna verði greiddar til hlut­hafa í formi hluta­bréfa í Kviku banka. Þar sem eign­ar­hlut­deild VÍS í Kviku var 23,57% og metin á uþb. 2,6 millj­arða króna sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi félags­ins má gróf­lega áætla að hlut­deildin sem þeir gefi eftir verði um 16% í Kviku. 

Þar sem Andri, Svan­hildur og Guð­mundur eru öll hlut­hafar í VÍS er því víst að með hluta­fjár­lækk­un­inni muni þau einnig fá hærri hlut­deild í Kviku. Sam­kvæmt for­send­unum hér að ofan  fengju Svan­hildur og Guð­mundur uþb 1,1% eign­ar­hlut í Kviku til við­bótar við 7,4% hlut sinn og ættu því u.þ.b. 8,5% eign­ar­hlut sam­an­lagt í því fyr­ir­tæki. Einnig, þar sem Kvika á 41% í Korta­þjón­ust­unni myndu eigna­hlutur hjón­anna í fyr­ir­tæk­inu aukast um 2,9% og því sam­an­lagt ná allt að 9,6 pró­sent­u­m. 

Við hluta­fjár­lækkun VÍS myndi eigna­hlutur Óska­beins einnig aukast lít­il­lega fyr­ir­tækj­unum tveim­ur, þ.e. 0,3% í Kviku og 0,14% í Korta­þjón­ust­unni. Þannig gæti óbeinn hlutur Óska­beins í Korta­þjón­ust­unni náð yfir tíu pró­sent­um, séu útreikn­ingar rétt­ir. 

Fylgist með virkum eign­ar­hluti

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans greindi Fjár­mála­eft­ir­litið frá því að fylgst væri með hvort mynd­ast hafi virkur eign­ar­hlutur í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, en með því sé átt við beina eða óbeina hlut­deild í félagi sem nemur 10% eða meira af hluta­fé. Þó geti eign­ar­hlutur einnig verið tal­inn virkur ef jafna megi áhrifum eig­anda við slíkan eign­ar­hlut. 

Enn fremur gerir Fjár­mála­eft­ir­litið ekki athuga­semd við virkan eign­ar­hlut hafi hann gott orð­spor, en við mat á því styðst FME eftir ákvæði laga um vátrygg­inga­starfs­semi og við­miðum evr­ópskra eft­ir­lits­stofn­anna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnJónas Atli Gunnarsson
Meira úr sama flokkiInnlent