Í maímánuði árið 2015 réð norski flugstjórinn Michael Ingvardsen sig til Primera Air. Í ráðningarsamningi hans stóð að hann myndi fljúga til og frá Danmörku. Ingvardsen bjóst við að launakjör hans fylgdu kjarasamningi sem félagið hafði gengist undir við dönsk samtök starfsfólks í flugrekstri (FPU). Þegar kom að undirritun samnings sá Ingvardsen að hann var frá ráðningarskrifstofu, Flight Crew Solutions, á bresku eyjunni Guernsey á Ermarsundi, en eyjan er þekkt sem skattaskjól. Í samningum stóð að Ingvardsen væri ekki venjulegur launamaður, samkvæmt samningum skyldi hann vera einskonar verktaki sem sjálfur skyldi sjá um lífeyris- og orlofsgreiðslur og fengi einungis greidda tíu veikindadaga á ári. Ingvardsen flugstjóri ímyndaði sér að þetta væri einskonar byrjunarreitur og svona væri þetta í danskri vinnulöggjöf. Fljótlega rann upp fyrir Ingvardsen að ýmislegt væri öðruvísi en hann hafði búist við. Skömmu eftir að hann hóf störf komst hann að raun um hann væri ekki að vinna samkvæmt dönskum samningum. Vinnufélagarnir sögðu honum að þetta væri venjan hjá þessu félagi og eftir eins árs starf yrði gerður samningur um fastráðningu. „Þetta hljómaði ágætlega, þá gæti ég samið um launin og lífeyrisgreiðslur, veikindaleyfi, ef til kæmi, yrði greitt og í fastráðningarsamningi yrði líka kveðið á um sumarleyfi.“
Nei við dönskum kjarasamningi
Þegar Michael Ingvardsen hafði starfað hjá Primera Air í um það bil ár fannst honum tími til kominn að ganga nánar frá sínum málum og óskaði eftir starfssamningi sem væri í samræmi við danska vinnulöggjöf. En það reyndist ekki auðvelt. Hjá flugfélaginu fékk hann alls kyns útskýringar og afsakanir, sem allar gengu út á að hann gæti ekki fengið danskan ráðningarsamning, hann ætti að vinna samkvæmt upphaflega samingnum, frá Guernsey. „Seinna árið sem ég vann hjá félaginu hafði ég reyndar engan samning, mætti bara i vinnuna og vonaðist til að fá útborgað.“ Í maí á síðasta ári hætti Ingvardsen að vinna fyrir Primera Air, hafði þá starfað hjá félaginu í slétt tvö ár.
Tilgangurinn er augljós; minni kostnaður
Í viðtali við danska útvarpið, DR, sagði Michael Ingvardsen að tilgangurinn með því að ráða fólk sem verktaka væri augljós. Semsé minni kostnaður. Hann sagðist sjá eftir að hafa í upphafi samþykkt að vinna sem verktaki því að það hefði fljótlega runnið upp fyrir sér að verktakalaunin væru mun lakari og þannig héldi Primera Air niðri kostnaði. Hann sagðist því miður ekki vera eini maðurinn sem hefur mátt búa við þetta fyrirkomulag. Margir kollegar hans hefðu miklar áhyggjur af „lausamennskunni“ eins og hann orðaði það. Flestir eru með fjölskyldu og því fylgja alls konar skyldur.
Michael Ingvardsen er ekki nýgræðingur í fluginu. Hann hefur mikla reynslu og hefur unnið hjá þekktum flugfélögum, meðal annars Norwegian. Í áðurnefndu viðtali sagði hann að starfsumhverfið hefði á undanförnum árum breyst mjög, til hins verra. Samkeppnin fer sífellt harðnandi og flugfélögin reyna að spara eins og þau geta og þá bitnar það á starfsfólkinu. Ingvardsen sagðist áður hafa unnið sem verktaki en þá setið við sama borð og þeir sem höfðu fastan samning.
Vill fá niðurstöðu dómstóls
Í samvinnu við FPU hefur Michael Ingvardsen nú krafið Primera Air um hálfa milljón danskra króna (8.6 milljónir íslenskar) vegna vangoldinna launa á því tveggja ára tímabili sem hann vann hjá félaginu. Hann hefur jafnframt ákveðið að stefna Primera Air fyrir Félagsdóm í Danmörku (Arbejdsretten). Hann segist vonast til þess að með úrskurði Félagsdóms takist að stöðva undirboð á vinnumarkaðnum. FPU telur að flestir flugmenn sem starfa fyrir Primera Air séu á verktakasamningi gegnum Flight Crew Solutions á Guernsey.
Primera Air vísar öllu á bug
Primera Air hefur í skriflegu svari, með milligöngu Dönsku Atvinnurekendasamtakanna, vísað öllum kröfum Michael Ingvardsen á bug. Í bréfinu segir að flugstjórinn hafi með samningi sínum við ráðningarskrifstofuna á Guernsey samþykkt að hann væri ekki starfsmaður flugfélagsins. Primera Air segir ennfremur í svarbréfi sínu að vinna Michael Ingvardsen á þessu tveggja ára tímabili sem um er deilt, einkum flogið fyrir Primera Air Nordic, systurfélag Primera Air. Primera Air Nordic er skráð í Lettlandi og heyrir þess vegna, að mati Primera Air, ekki undir danska vinnulöggjöf og kjarasamninga.
Christian Højer Schøler, aðjúnkt í vinnurétti við háskólann Syddansk Universitet telur, eftir að hafa skoðað gögn málsins, miklar líkur á að FPU og Michael Ingvardsen vinni málið fyrir dómstólum. Aðjúnktinn nefnir tvennt í því sambandi. Í fyrsta lagi að Michael Ingvardsen hafi eingöngu unnið fyrir Primera Air á umræddu tveggja ára tímabili og að í samningum stóð að hann skyldi sjálfur sitja í flugstjórnarklefanum. Sjálfstæður verktaki getur falið öðrum verkefni (til dæmis að fljúga) en það gat Michael Ingvardsen ekki.
Samtök starfsfólks í flugrekstri (FPU) búast við að málið gegn Primera Air verði tekið fyrir í Félagsdómi í lok þessa ár, eða snemma á næsta ári.