„Afsakið“ - Markaðsvirði Volkswagen hrynur

volkswagen.jpg
Auglýsing

Stærsti bíla- og véla­fram­leið­andi heims­ins, þýska fyr­ir­tækið Volkswa­gen, glímir við mestu vanda­mál í sögu fyr­ir­tæk­is­ins eftir að yfir­völd í Banda­ríkj­unum gerðu fyr­ir­tæk­inu að inn­kalla 482 þús­und dísel­bíla sem komu á göt­una á árunum 2009 til 2015. Ekki nóg með það heldur var sett á stjórn­valds­sekti, sem umhverf­is­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna ákvað, sem nemur 37.500 Banda­ríkja­dölum á hvert til­vik þar sem ófull­nægj­andi bún­aður fannst. Í heild­ina er talið að Volkswagen þurfi að greiða átján millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 2.340 millj­örðum króna.

Högg ­fyrir hlut­hafa í dag



Það er lítið brot við hlið­ina á högg­inu sem hlut­hafar félags­ins hafa nú þegar þurft á taka á sig, en í dag hefur mark­aðsvirði félags­ins lækkað næstum 17 millj­arða dala, en mark­aðsvirði er í dag 65 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 8.500 millj­arða króna.

Tár­votur á fundi



Martin Winterkorn, þýskur for­stjóri Volkswa­gen, sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær, og las hana upp tár­votur á blaða­manna­fundi. „Af­sak­ið“ sagði hann, og horfði síðan út í sal. Hann sagði við­skipta­vini og birgja fyr­ir­tæk­is­ins eiga skilið að fá afsök­un­ar­beiðni vegna þessa „galla" sem fund­ist hefði í hug­bún­aði í bílum fyr­ir­tæk­is­ins. Sá bún­aður stýrir afl­stýr­ingu í vél­inni, og reynd­ist ýta undir alltof mikla losun á nítrógen oxíði, eða um fjör­tíu­falt meiri losun en leyfi­legt er. Auk þess eru uppi ásak­anir um að fyr­ir­tækið hafa vís­vit­andi svindlað á próf­unum banda­rískra yfir­valda, en engar ákærur hafa verið gefnar út enn­þá. Sam­kvæmt umfjöllun Quartz og BBC er ekki úti­lokað að það verði gert og eru það þá æðstu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins sem þurfa að bera ábyrgð. Winter­korn fékk spurn­ingar frá blaða­mönn­unum á fund­in­um, um hugs­an­legt glæp­sam­legt athæfi, en neit­aði að tjá sig um þær.





Margir Volkswagen bílar á Íslandi



Volkswagen hefur árum saman verið meðal stærstu sölu­að­ila bíla hér á landi, en umboðið er hjá Heklu. Fyr­ir­tækið hefur sagt í frétta­til­kynn­ingum að allir þeir sem eigi bíla sem settir voru á göt­una í Banda­ríkj­unum á árunum 2009 til 2015 eigi að leita til umboðs­að­ila til þess að fá svör við því hvort inn­köll­unin nái til bíls­ins þeirra, en ann­ars eigi eig­endur að fá skila­boð um inn­köllun frá fyr­ir­tæk­inu. Lang­flestir bíl­arnir eru á Banda­ríkja­mark­aði, svo ólík­legt er að margir af þeim bílum sem um ræðir séu á göt­unni utan Banda­ríkj­anna.

Sögu­legt hrun



Höggið sem Volkswagen fékk á sig á mark­aði var að miklu leyti fyr­ir­sjá­an­legt, enda átján millj­arða Banda­ríkja­dala högg fyrir rekst­ur­inn gríð­ar­legt áfall. Raunar er þetta hrun þegar orðið sögu­legt, þar sem mark­aðsvirði stórs bíla­fram­leið­anda hefur ekki lækkað svo hratt og skarpt, frá því að fjár­mála- og hluta­bréfa­mark­aði féllu saman haustið 2008 og fram á byrjun árs 2009.

Í umfjöllun BBC, segir Ric­hard Wescott, sér­fræði­blaða­maður um sam­göngu­mál, að allt bendi til þess að Volkswagen hafi í reynd verið að svind­la, svo háþró­aður hafi bún­að­ur­inn verið sem átti að virka þannig að bíl­arnir kæmust í gegnum ströng öryggis­próf banda­rískra yfir­valda. Erfitt væri að ímynda sér þetta sem galla eða óvilja­verk, þó eng­inn loka­dómur liggi fyrir enn.

Auglýsing

Uppgvöt­unin nú hefur ýtt við evr­ópskum yfir­völdum sem vilja athuga hvort aðrir bíla­fram­leið­endur eru að beita sömu aðferðum til að koma bílum í gegnum próf­an­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None