Buffett heldur áfram að einblína á innviði

h_51879025-1.jpg
Auglýsing

Fjá­fest­inga­fé­lagið Berks­hire Hat­haway, sem War­ren Buf­fett stýrir enn sem stjórn­ar­for­maður og for­stjóri, er við það að kaupa Precisi­on Cast­parts (PC) fyr­ir um það bil 37,2 millj­arða ­Banda­ríkja­dala, sem jafn­­­gild­ir um 4.800 millj­örðum króna.



Fyr­ir­tækið er risi á heims­vísu í fram­leiðslu á ýmsum bún­aði sem snýr að olíu-, gas- og flug­iðn­aði, þar á meðal er fram­leiðsla á pípum sem not­aðar eru til olíu­flutn­inga.

Stærstu kaupin í sög­unni

Þessi kaup verða þau stærstu í sögu Berks­hire Hat­haway en upp­hæðin sem greidd er fyrir félagið jafn­gildir meira en tvö­faldri árlegri lands­fram­leiðslu Íslands. Á und­an­förnum tveimur mán­uður hefur mark­aðsvirði PC lækkað um 19,7 pró­sent. Lækk­unin er meðal ann­ars rakin til erf­iðra mark­aðs­að­stæðna á olíu­mörk­uðum en heims­mark­aðs­verð á olíu hefur lækkað um tæp­lega 60 pró­sent á innan við ári, með til­heyr­andi hlið­ar­verk­unum á ýmsan iðnað sem á allt sitt undir olíu­vinnslu og olíu­sölu. Í þessum aðstæðum sér Buf­fett tæki­færi og lætur til skarar skríða í kjöl­far skarprar lækk­unar á mark­aðsvirð­inu.

Auglýsing

Hvað býr að baki?



En hvað eru for­svars­menn Berks­hire að hugsa, með Buf­fett í broddi fylk­ing­ar, þegar kemur að þessum kaupum og raunar fleirum þar sem fjár­fest er í innviðum sam­fé­laga? Sam­kvæmt frá­sögn Wall Street Journal horfir Buf­fett til þess að fjár­fest­ingar í traustum innvið­um, sem hafa langan líf­tíma, sem trausta fjár­fest­ingu fyrir stóran hluta þeirra lang­tíma­fjár­festa sem eru hlut­hafar í Berks­hire. Þó Buf­fett stjórni því sem hann vill hjá félag­inu, sem hann fjár­festi fyrst í árið 1962, sjö árum eftir stofnun þess, þá verður fjár­fest­inga­stefna félags­ins að taka mið af þörfum hlut­haf­anna.

Eftir hrunið á fjár­mála­mörk­uðum frá 2007 til 2009 og fall á fast­eigna­mark­aði hefur Buf­fett horft í meira mæli til fjár­fest­inga sem telj­ast til inn­viða. Næst­stærsta fjár­fest­ingin í sögu félags­ins voru kaup á lestar- og lestar­teina­frama­leið­and­an­um Burlington Northern fyrir 26 millj­arða Banda­ríkja­dala árið 2009. Hugs­unin að baki þeirri fjár­fest­ingu var svipuð og nú, sam­kvæmt frá­sögnum fjöl­miðla: kaupa traustar lang­tíma­eign­ir, sem hafa traustan rekstur og mögu­leika til þess að auka mark­aðsvirði á grunni hans.

Sterk vöru­merki



En þrátt fyrir að lang­tíma­sýnin hafi verið á inn­viða­fjár­fest­ingar þá hefur Berks­hire einnig horft til þess að eiga eign­ar­hluti í þekktum alþjóð­legum fyr­ir­tækjum sem hafa sterk vöru­merki, sem geta staðið af sér skamm­tíma storma á mörk­uð­um. Þannig á félagið stóra eign­ar­hluti í Coca Cola, IBM, Wells Far­go, Heinz og Amer­ican Express, svo eitt­hvað sé nefnt.

Í fullu fjöri á níræð­is­aldri



Buf­fett, oft nefndur spá­mað­ur­inn frá Oma­ha, er fæddur í Nebr­aska þar sem höf­uð­stöðvar Berks­hire Hat­haway eru. Hann er 84 ára gam­all en slær hvergi af þegar kemur að ákvörð­unum um fjár­fest­inga­stefnu og lyk­il­fjár­fest­ing­ar. Hann hefur minnkað dag­lega vinnu­skyldu sína tölu­vert en leggur þeim mun meira upp úr því að fylgj­ast vel með og hafa yfir­sýn á mörk­uðum og í rekstri Berks­hire. Heild­ar­eignir Buf­fetts eru metnar á 66,7 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 8.870 millj­örðum króna, sem gerir hann að einum af fimm rík­ustu ein­stak­lingum heims. Hann hyggst ráð­stafa þeim að stærstum hluta í þágu góð­gerð­ar­mála, en stærstur hluti eigna hans er þó bund­inn í hlutafé Berks­hire Hat­haway.

Efna­hags­reikn­ingur þess félags er risa­vax­inn, en heild­ar­tekjur félags­ins námu tæp­lega 200 millj­örðum Banda­ríkja­dala í fyrra eða sem nemur tæp­lega 27 þús­und millj­örðum króna. Í ljósi stærðar félags­ins þarf það reglu­lega að fjár­festa til að koma pen­ingum sínum í arð­sama ávöxt­un, og þar mun Buf­fett vafa­lítið halda áfram að láta til sín taka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None