Um 14,8 prósent kjósenda í forsetakosningunum í fyrra voru á kjörskrá í Suðurkjördæmi – alls tæplega 37.500 manns. Nú styttist í alþingiskosningar og flokkarnir eru byrjaðir að stilla upp listum sínum. Sumir þeirra eru klárir með efstu frambjóðendur, en aðrir flokkar munu draga það inn í sumarið að komast að endanlegri niðurstöðu.
Á landsvísu er staðan þannig, og hefur verið í nokkurn tíma samkvæmt könnunum, að flókið gæti orðið að mynda starfhæfa ríkisstjórn eftir kosningar. Stjórnarflokkarnir hafa allir tapað fylgi, stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir ekki bætt nægilega miklu við sig til að gera afgerandi kröfu á stjórnarmyndun og nýir flokkar sem hafa ekki átt sæti á Alþingi áður eru að banka á dyrnar.
Ekki er útilokað að flokkarnir á þingi verði níu talsins eftir að atkvæði haustsins verða talin, og hafa þá aldrei verið fleiri.
Kjarninn fékk gögn frá MMR úr könnunum fyrirtækisins á fylgi stjórnmálaflokka síðustu þrjá mánuði. Á meðal upplýsinga sem þar er að finna er fylgi flokka eftir landsvæðum. Tölur MMR miða ekki við kjördæmi í öllum tilvikum og því gefa þær fyrst og síðast vísbendingu um hver staða stjórnmálaflokkanna er í hverju kjördæmi fyrir sig.
Hvað Suðurkjördæmi varðar má segja að vísbendingarnar sem fást úr niðurstöðum MMR séu ágætlega sterkar, enda vantar einungis Sveitarfélagið Hornafjörð inn í mælinguna á Suðurlandi og Suðurnesjum sem Kjarninn horfir til.
Páll leiðir ekki Sjálfstæðisflokkinn
Niðurstaða 2017 - 7.056 atkvæði - 25,2 prósent
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins, sem átti fleiri en eitt af hverjum fjórum atkvæðum sem fóru ofan í kjörkassa í Suðurkjördæmi haustið 2017, fer fram í lok maí. Í dag á flokkurinn þrjá þingmenn í kjördæminu og sá sem skipaði þriðja sæti listans síðast, Vilhjálmur Árnason, hefur boðið sig fram til þess að leiða listann.
Hann hefur fengið áskoranda – Guðrúnu Hafsteinsdóttur, markaðsstjóra Kjöriss og fyrrverandi formann Samtaka iðnaðarins, sem margir telja að gæti átt góðu gengi að fagna í prófkjörinu sem er framundan.
Óljóst er hvort fleiri blanda sér í slaginn um oddvitasætið, en framboðsfrestur rennur út á fimmtudag. Raunar hafði oddvitinn Páll Magnússon einnig boðað að hann ætlaði að sækjast eftir fyrsta sætinu á ný, en á páskadag tilkynnti hann að honum hefði snúist hugur – honum einfaldlega langar ekki til þess að vera lengur í landsmálapólitíkinni, að eigin sögn.
Staða flokksins í kjördæminu í síðustu könnunum MMR hefur verið svipuð og fyrir kosningarnar 2017 – en fylgið hefur verið um 20 prósent að meðaltali.
Framsókn heldur prófkjör í sumar
Niðurstaða 2017 - 5.230 atkvæði - 18,6 prósent
Í Suðurkjördæmi fer fram lokað prófkjör hjá Framsóknarflokknum laugardaginn 19. júní. Fastlega má reikna með því að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður flokksins leiði listann í Suðurkjördæmi að nýju. Silja Dögg Gunnarsdóttir skipaði annað sæti á lista 2017 og er hinn þingmaður Framsóknar í kjördæminu.
Jóhann Friðrik Friðriksson bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og framkvæmdastjóri Keilis hefur boðað að hann sækist eftir 2. sætinu í prófkjörinu í sumar.
Framsókn mælist með næst mest fylgi allra flokka á Suðurlandi í síðustu þremur könnunum MMR, eða yfir 17 prósent að meðaltali. Það er svipað og í aðdraganda kosninga 2017.
Miðflokkurinn hvergi að mælast með meira fylgi
Niðurstaða 2017 - 3.999 atkvæði - 14,3 prósent
Miðflokkurinn er hvergi með meira fylgi en í Suðurkjördæmi samkvæmt síðustu könnunum MMR, en fylgi flokksins þar hefur að meðaltali mælst 16 prósent á meðan að það hefur mælst undir 9 prósentum á landsvísu.
Þar gæti stefnt í oddvitaslag, en þeir Birgir Þórarinsson og Karl Gauti Hjaltason eru þingmenn flokksins í kjördæminu.
Karl Gauti var þó alls ekkert kjörinn á þing fyrir Miðflokkinn – heldur var hann oddviti Flokks fólksins í kjördæminu árið 2017 og skipti um flokk eftir Klausturmálið. Líklegt er talið að þeir keppist um oddvitasætið í prófkjöri meðal flokksfólks.
Margir vilja leiða Vinstri græn
Niðurstaða 2017 - 3.321 atkvæði - 11,8 prósent
Það er áhugaverð forvalsbarátta í gangi um þessar mundir hjá Vinstri grænum. Ari Trausti Guðmundsson ætlar ekki að gefa kost á sér til þingstarfa á ný og eftir forystusæti á listanum sækjast hvorki fleiri né færri en fimm manns.
Það eru þau Kolbeinn Óttarsson Proppé, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, Róbert Marshall, Hólmfríður Árnadóttir og Almar Sigurðsson. Forval í kjördæminu fer fram dagana 10.-12. apríl.
Fylgi flokksins í síðustu könnunum MMR hefur verið tæp 12 prósent á Suðurlandi og Suðurnesjum, eða á svipuðum slóðum og kjörfylgið árið 2017.
Uppstilling og óánægja hjá Samfylkingunni
Niðurstaða 2017 - 2.689 atkvæði - 9,6 prósent
Samfylkingin hefur ekki kynnt framboðslista sinn í Suðurkjördæmi, en þar hefur Oddný Harðardóttir fyrrverandi formaður flokksins og ráðherra verið í oddvitasætinu og er hún eini þingmaður flokksins í kjördæminu í dag. Samkvæmt könnunum MMR er fylgið á Suðurnesjum og Suðurlandi á svipuðum slóðum og í síðustu kosningum, eða rúm 9 prósent.
Óánægju hefur orðið vart hjá nokkrum þeirra sem gáfu kost á sér í efstu sæti á lista með störf uppstillingarnefndar, þrátt fyrir að enn hafi listinn ekki verið kynntur. Vísir fjallaði um svekkelsið nýlega, en í frétt miðilsins sagði einnig að nöfn bæði Björgvins G. Sigurðssonar fyrrverandi ráðherra og Inger Erlu Thomsen formanns ungliðahreyfingar flokksins á Suðurlandi hefðu verið nefnd sem möguleg ofarlega á listanum.
Hvergerðingurinn Njörður Sigurðsson, sem skipaði annað sæti á listanum 2017, fékk að eigin sögn boð um að vera í fjórða sæti á lista, hafnaði því og sagði sig í kjölfarið frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
Páll Valur Björnsson fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar og núverandi varaþingmaður Samfylkingar vildi fyrsta eða annað sæti á lista en ljóstraði því upp fyrir um tveimur vikum síðan að það hefði honum ekki staðið til boða. „Það verður að segjast eins og er að þessi aðferð Samfylkingarinnar við að raða upp á lista er eiginlega alveg glötuð,“ skrifaði Páll Valur á Facebook við það tækifæri.
Ástþór Jón Ragnheiðarson, sem sóst hafði eftir 2.-3. sæti á lista flokksins, fékk boð um að vera mun neðar á lista, að eigin sögn. Hann var ósáttur við uppstillingarnefndina. „Þeir sem skipa efstu sætin mun vera fólk sem hafði hvergi gefið út að það væri að sækjast eftir því. Það var því mitt mat að standa ekki á bakvið lista sem veitir fólki framgang sem hefur hvergi sóst eftir því eða unnið í því að fá framgang. Það kallast klíka og slíku tek ég ekki þátt í,“ skrifaði Ástþór.
Oddvitinn horfinn úr Flokki fólksins
Niðurstaða 2017 - 2.509 atkvæði - 8,9 prósent
Flokkur fólksins hefur ekki kynnt framboðslista sína. Karl Gauti Hjaltason, sem leiddi flokkinn í Suðurkjördæmi árið 2017, situr nú á þingi fyrir Miðflokkinn eftir Klausturmálið og deilur innan Flokks fólksins.
Ljóst er að flokkurinn gæti eygt von um þingsæti í Suðurkjördæmi, en fylgið samkvæmt síðustu þremur mælingum MMR liggur á milli 8 og 9 prósentustiga.
Á vef flokksins hefur verið sagt frá því að þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Tommi á Hamborgarabúllunni (Tómas Andrés Tómasson) muni fara í framboð fyrir flokkinn og má reikna með því að þau raðist í oddvitasæti í einhverjum kjördæmum.
Smári hættir á þingi fyrir Pírata
Niðurstaða 2017 - 1.985 atkvæði - 7,1 prósent
Smári McCarthy leiddi lista Pírata í Suðurkjördæmi og er uppbótarþingmaður kjördæmisins. Hann ætlar ekki fram að nýju, en Álfheiður Eymarsdóttir varaþingmaður varð efst í prófkjöri flokksins sem fram fór nýlega.
Fylgi Pírata á Suðurlandi og Suðurnesjum er að mælast svipað í síðustu könnunum MMR og í aðdraganda síðustu kosninga, eða innan við 6 prósent, sem er talsvert undir fylgi flokksins á landsvísu.
Bæjarmálamaður úr Reykjanesbæ leiðir Viðreisn
Niðurstaða 2017 - 871 atkvæði - 3,1 prósent
Viðreisn sá ekki til sólar í Suðurkjördæmi árið 2017, er Jóna Sólveig Elínardóttir leiddi listann. Hún hafði náð kjöri árið 2016 en gengi Viðreisnar í kjördæminu árið 2017 var dapurt og einungis 871 atkvæði skilaði sér í hús.
Í síðustu mælingum þremur mælingum MMR hefur flokkurinn mælst með 6,5 prósent að meðaltali. Búið er að „afhjúpa“ nýjan oddvita, en það er Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Hann leiddi lista framboðsins Beinnar leiðar til síðustu sveitarstjórnarkosninga og fékk framboðið 13,5 prósent fylgi í Reykjanesbæ árið 2018.
Sósíalistaflokkurinn
Lítið hefur spurst af framboðsmálum Sósíalistaflokksins. Á Suðurlandi og Suðurnesjum hefur fylgi flokksins mælst innan við fjögur prósent að meðaltali í síðustu þremur könnunum MMR.