Óvíst hvort skýrslan um bankasöluna verði birt fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins

Skýrsla sem átti að koma út í júní, svo júlí, svo ágúst, svo september, svo október kemur nú út í nóvember. Ekki liggur fyrir hvort hún verði birt opinberlega fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins, þar sem formannsslagur fer fram.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Ráðuneyti hans ber ábyrgð á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Ráðuneyti hans ber ábyrgð á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Auglýsing

Guð­mundur Björg­vin Helga­son rík­is­end­ur­skoð­andi getur ekki svarað af eða á um hvort skýrsla stofn­un­ar­innar um sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka verði birt fyrir kom­andi helgi. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag

Verið er að vinna úr umsögnum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Banka­sýslu rík­is­ins um skýrslu­drög­in, en ráðu­neytið fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og fól und­ir­stofnun sinni, Banka­sýsl­unni, að selja umræddan hlut í Íslands­banka. Frestur til að skila inn umsögnum rann út um miðja síð­ustu viku og fyrir liggur að bæði ráðu­neytið og Banka­sýsla rík­is­ins skil­uðu inn umfangs­miklum umsögn­um. 

Í Morg­un­blað­inu er haft eftir Guð­mundi Björg­vini að hann vilji ekki gefa neinn tímara­mma á það hversu lengi það kunni að taka að vinna úr umsögn­un­um. „Þetta er umfangs­mikil skýrsla um flókið og umfangs­mikið við­fangs­efni. Umsagn­irnar bera þess merki, sem eðli­legt er.“

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun lýkur vinnu sinni mun stofn­unin afhenda for­seta Alþing­is, Birgi Ármanns­syni, skýrslu sína. Þaðan fer hún til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar til kynn­ingar og umfjöll­unar og í kjöl­farið verður hún birt opin­ber­lega. 

Gæti haft áhrif á for­manns­kjör

Stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar snýst í meg­in­at­riðum um hvort fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Banka­sýsla rík­is­ins, und­ir­stofnun þess, hafi staðið til­hlýði­lega að fram­kvæmd söl­unnar á áður­nefndum 22,5 pró­­sent hlut rík­­is­ins í Íslands­­­banka til 207 fjár­­­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­­arða króna í mars síð­­ast­liðn­um. 

Auglýsing
Um liðna helgi til­kynnti Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, að hann muni skora Bjarna á hólm í for­manns­slag í Sjálf­stæð­is­flokknum á lands­fundi sem fram fer um næstu helgi.

Ljóst má vera að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar gæti gagn­ast öðrum hvorum þeirra í bar­átt­unni um for­manns­sætið verði hún birt fyrir fund­inn. Ef engar eða smá­vægi­legar athuga­semdir eru gerðar við aðkomu Bjarna að söl­unni getur það nýst honum til að sækja atkvæði. Ef athuga­semdir eru miklar eða alvar­legar gæti það nýst Guð­laugi Þór.

Átti að birt­ast fyrir júní­lok

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna en hann bað for­m­­­­­lega um gerð hennar 7, apríl síð­­­­­ast­lið­inn og Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoðun sam­­­­­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­­­ferlið var harð­­­lega gagn­rýnt víða í sam­­­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­­­ast um hvort fram­­­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­­­laga­­­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­­­skipta­­­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­­­ar. 

Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­­­ari rann­­­sókn­­­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­­­legt að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­­­enda allra flokka utan eins, Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, voru á þeirri skoð­un. 

Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­­­­­i Bjarna.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­­­­kvæmd úttekt­­­­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­­­­ur­­­­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­­­­greindra laga er rík­­­­­­is­end­­­­­­ur­­­­­­skoð­andi sjálf­­­­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­­­­kvæmt lög­­­­­­un­­­­­­um. Stefnt er að því að nið­­­­­­ur­­­­­­staða úttekt­­­­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­­­­í­mán­uði 2022.“

Eng­inn rík­is­end­ur­skoð­andi til staðar

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­­­­­ar­­­­­son­­­­­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­­­­­neyt­is­­­­­stjóri í nýju við­­­­­skipta- og menn­ing­­­­­ar­ráðu­­­­­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­anda á þingi fyrir maí­­­­­lok. 

Því var sú staða uppi að Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoðun var falið að ráð­­­­­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­­­­­fé­lags­­­­­máli síð­­­­­­­­­ari ára án þess að búið væri að skipa nýjan rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­anda. 

Guðmundur Björgvin Helgason Mynd: Ríkisendurskoðun

Guð­­­­­mundur Björg­vin var starf­andi rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­­­­­ist eftir emb­ætt­in­u. 

Það frestað­ist að ganga frá kosn­­­­­ingu rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­­­­­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­­­­­­­­­banka­­­­­söl­una til Alþingis í síð­­­­­­­­­ustu viku jún­­­­í­mán­að­­­­­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­­­­­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­and­i. 

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­­­­ast­lið­inn var það gert til að þing­­­­menn gætu verið í sum­­­­­­­ar­fríi til 13. sept­­­­em­ber, eða í þrjá mán­uði. For­­­­seti Alþing­is, Birgir Ármanns­­­­son, bað þing­­­­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­­­­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka. 

Júlí, ágúst, sept­em­ber, októ­ber og loks nóv­em­ber

Skýrslu­skilin frest­uð­ust þó fljótt. Þegar fjöl­miðlar spurð­ust fyrir um stöðu mála seinni hluta jún­­í­mán­aðar feng­ust þau svör að búist væri við því að skýrslan yrði til­­­­­búin fyrir lok júlí­mán­að­­­ar, fyrir versl­un­­­ar­­­manna­helg­i. 

Þegar leið að versl­un­­­ar­­­manna­helgi spurð­ist Kjarn­inn fyrir um afdrif skýrsl­unnar og fékk þá þau svör að hún yrði til­­­­­búin fyrri hluta ágúst­mán­að­­­ar. 

Seint í ágúst sagði for­­­seti Alþing­is svo við RÚV að hann bygg­ist við skýrsl­una um kom­andi mán­aða­mót. Skömmu síðar var greint frá því að skýrslan myndi birt­­ast upp úr mán­aða­mót­unum ágúst/sept­­em­ber. 

Í byrjun sept­em­ber fékk Kjarn­inn svo þau svör að vinnan væri „á loka­metr­un­um“ og að skýrslan myndi ber­ast for­­seta Alþingis ein­hvern tím­ann í sept­­em­ber.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, fær skýrsluna afhenta þegar hún er tilbúin. Mynd: Eyþór Árnason

Það stóðst ekki drög að skýrsl­unni bár­ust ekki þeim sem fengu tæki­færi til að skila inn umsögnum um hana fyrr en 12. októ­ber. Upp­haf­lega áttu ráðu­neytið og Banka­sýslan að fá viku til að vinna umsagnir sínar en Banka­sýslan óskaði eftir rýmri tíma, eða viku í við­bót. Síð­ustu umsagnir bár­ust því ekki fyrr en 26. októ­ber. Nú blasir við að um sjö mán­uðir munu hafa verið liðnir frá því að Rík­is­end­ur­skoðun sam­þykkti að taka að sér að gera umrædda skýrslu, og skila henni fyrir júnílok, þar til að skýrslan verður gerð opin­ber. 

Yfir 70 pró­sent treystu ekki Bjarna í apríl

Ástæða þess að Rík­­is­end­­ur­­skoðun var falið að skoða þetta mál er, líkt og áður sagði, mikil gagn­rýni sem kom fram í kjöl­far síð­­­asta hluta sölu­­­með­­­­­ferðar á hlutum í Íslands­­­­­banka.

Auglýsing
Hóp­­­ur­inn sem fékk að kaupa inn­­i­hélt meðal ann­­­ars starfs­­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­­ast fag­fjár­­­­­fest­­­ar, erlenda skamm­­­tíma­­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­­tíma­fjár­­­­­festar í Íslands­­­­­banka, fólk í virkri lög­­­­­reglu­rann­­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

Könnun sem Gallup gerði skömmu eftir að salan var um garð gengin sýnd­i að 87,2 pró­­­­sent lands­­­­manna töldu að staðið hafi verið illa að útboði og sölu á hlut rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka, næstum sjö af hverjum tíu töldu að lög hefðu verið brotin og næstum níu af hverjum tíu töldu að óeðli­­­legir við­­­skipta­hættir hefðu verið við­hafð­­­ir. ­Málið hafði aug­ljós­lega áhrif á stöðu Bjarna í huga lands­manna. Í könnun sem Mask­ína gerði í apríl kom fram að hann naut ein­ungis trausts 18,3 pró­­sent kjós­­enda en 70,7 pró­­sent sögð­ust van­­treysta hon­­um. Engum öðrum ráð­herra var van­treyst jafn mikið og ein­ungis Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra var treyst af færri, eða 17,8 pró­sent svar­enda.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­­ar­hluta rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka. Yfir­­­­lýs­ing for­­­­manna stjórn­­­­­­­ar­­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­­ari hlutum í Íslands­­­­­­­banka að sinni, stendur því enn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar