Gerir kvikmynd um ástir indíána og víkinga

human wolf
Auglýsing

Jimmy Sal­inas flutti hingað fyrir 11 árum sem flótta­maður frá Kól­umbíu. Nú er hann nemi við Kvik­mynda­skóla Íslands og stefnir á að gera metn­að­ar­fulla mynd að nafni Human Love.

Myndin fjallar um White Wolf, indíána sem finnur ást­ina í röðum vík­inga en báðir þjóð­flokk­arnir taka illa í það og hefst þá ævin­týri þar sem White Wolf þarf að berj­ast fyrir sínum heittelskaða. Ferð hennar mun taka hana úr hinum ver­ald­lega heimi yfir í þann and­lega, allt fyrir ást­ina.

En hann gerir þetta verk­efni ekki einn því annar Kól­umbíu­mað­ur, Juan Camilo, er með honum í því ferli að skapa mynd­ina. Einnig hafa vinir hans innan og utan skól­ans fylkst liði til að aðstoða við gerð hennar svo draumur Jim­mys um þessa mynd verði að veru­leika. 

Auglýsing

Kjarn­inn hitti Jimmy til að ræða um mynd­ina og sýn sína á kvik­mynda­gerð.

Um hvað fjallar stutt­myndin Human Love?

„Human Love fjallar um ást­ina sem er milli fólks og hvernig við sem mann­eskjur verð­metum og virðum aðra útfrá upp­runa þeirra, tungu­máls og útlits. Hér er á ferð ætt­bálkur frá suð­ur­hveli jarðar sem upp­götvar nýjan þjóð­flokk í heim­inum og hvernig þeirra upp­lifun er í þessum aðstæð­um. Við þekkjum öll Vín­lands­sögu og hvernig fór fyrir þeim sam­skipt­um. Við hræð­umst alltaf það sem er óþekkt. Karakt­er­arnir í mynd­inni munu koma því skila hversu erfitt það er stundum að treysta á aðra sem og að treystu sjálfum okkur og okkar eigin fólki. 

Heim­ur­inn er mjög sundr­aður og myndin er gerð til þess að benda á hvernig við getum unnið í okkar málum til þess að vera á betri stað and­lega og lík­am­lega og aðal­inni­haldið í þeirri upp­skrift er ást.“

Hvað telur þú vera mik­il­væg­ast varð­andi sög­una?

„Í sög­unni erum við að reyna að skapa ást­ar­sam­band milli tveggja mann­eskja frá ólíkum heimum og þeirra sam­band er ekki bara í lif­andi lífi heldur einnig í dauð­anum þegar hinn heittelskaði fellur frá. Því ást er ekki bara til í lík­am­legu formi, við viljum túlka þetta í gegnum fantasíu heim þar sem allt er leyfi­legt og það væri hægt að segja að þetta sé ráð­gáta því það er ekki allt alveg raun­veru­legt í mynd­inni.

Þetta sam­band milli þeirra er saga hjart­ans og mark­miðið er að sýna dæmi um ómögu­lega ást.

Einnig að ástin er eitt­hvað sem sam­einar okkur öll, sama frá hvaða sam­fé­lagi við erum. Við elskum börnin okkar rétt eins og fólk í Asíu eða Afr­íku elskar sín börn. Færnin til þess að elska er það sem sam­einar okkur öll.“

Hvaða karakter í mynd­inni tengir þú best við?

„Meira og minna White Wolf sem er aðal­karakt­er­inn sem er mjög mikið byggður á minni eigin reynslu sem inn­flytj­andi í þessum heimi og hvernig ég hef kom­ist að því að kynn­ast öðrum og upp­götva ást­ina sem verður á milli ein­stak­linga við þær aðstæð­ur. Við erum flest í þeim sporum sem gengur um víðan völl og allan heim­inn með þessa spurn­ing í brjóst­inu, hvern elska ég eða þekki ég ást­ina? Hvað er það sem við erum til­búin að fórna, gera eða deyja fyr­ir?

White Wolf er sá karakter sem veit að það er eitt­hvað sem passar ekki alveg í þennan raun­veru­leika en þarf ást­ina til átta sig á því að hvað um þetta allt snýst.

Því hver kann­ast ekki við að vera í þeim aðstæðum að hugsa aftur og segja, ég vildi að ég hefði getað verið ákveðn­ari þegar þetta gerð­ist og barist meira fyrir þess­ari mann­eskju eða þess­ari vin­áttu sem ég átti þegar ég var ung­ur. White Wolf eltir inn­sæi sitt og gerir allt sem hún getur til að láta drauma sína verða að veru­leika að áttað sig meira um hvað allt snýst.“

Verk­efnið er að finna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None