Hópur af meistaranemum í ritlist og hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands hafa sameinað krafta sína með því markmiði að semja, skapa og gefa út bók frá grunni. Útgáfa bókarinnar er afurð námskeiðsins Á þrykk sem kennt er af Sigþrúði Gunnarsdóttur, ritstjóra hjá Forlaginu. Bókin hefur hlotið nafnið Í hverju ertu? Höfundar eru Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir, Brynjólfur Þorsteinsson, Lárus Jón Guðmundsson, María Hjálmtýsdóttir og Þorvaldur S. Helgason. Ritstjórar eru Elín Illugadóttir, Erna Rut Vilhjálmsdóttir og Sigríður Erla Viðarsdóttir. Kápuhönnunin er eftir Elínu Eddu, grafískan hönnuð og hópmyndin á Karolina Fund var tekin af Anítu Björk, ljósmyndara. Kjarninn heyrði í Sigríði Erlu, meistaranema í hagnýtri ritstjórn og útgáfu og tók hana tali.
Þið eruð að vinna að fjármögnun á ritverkinu „Í hverju ertu?“. Er það fyrsta skiptið sem þessi hópur vinnur saman?
„Já, þetta er í fyrsta sinn sem þessi hópur vinnur saman. Við erum öll nemendur í áfanganum „Á þrykk“ sem er námskeið sem er í boði fyrir meistaranema í ritlist og ritstjórn við Háskóla Íslands. Námskeiðið gengur út á að nemendur vinna saman og skapa bók frá grunni. Það er ekki gerð krafa um að bókin sé prentuð og gefin út en við vorum öll sammála um það frá fyrsta degi að við vildum sjá bókina útgefna. Það hefur verið venjan undanfarin ár að bækurnar eru gefnar út. Sigþrúður, leiðbeinandinn okkar, benti okkur brosandi á þegar hún kvaddi okkur fyrir páskafrí að þetta væri mjög óvanalegur síðasti tími þar sem nú er heilmikil vinna eftir, þegar námskeiðinu er formlega lokið. En okkur finnst sem betur fer gaman í skólanum og hlökkum til að deila afrakstrinum með fólki í lok maí þegar bókin kemur út.“
Hvers konar ritverk er „Í hverju ertu?“?
„Textarnir í bókinni eru smásögur, örsögur og ljóð þar sem meðal annars má lesa um ástina á Antonio Banderas, masókíska tannburstun og spurningaþátt sem ákvarðar hvort þátttakendur fari til himnaríkis eða helvítis. Við ákváðum að við vildum ekki að textarnir hefðu ákveðið þema heldur fengu höfundar frjálsar hendur. Útkoman er skemmtilega fjölbreytt og bókin inniheldur efni sem lesendur geta tengt við á mismunandi hátt.“
Hvaðan kemur nafnið á verkinu?
„Nafnið kemur úr einni af sögunum í bókinni. Þar er sögupersónan ávörpuð af tvö hundruð ára gamalli bók með þessari margfrægu spurningu. Það var smá hausverkur að koma sér saman um nafn enda samanstendur hópurinn af átta einstaklingum. En við vorum öll mjög ánægð með þessa niðurstöðu enda geta svörin við spurningunni „í hverju ertu?“ verið ansi fjölbreytt og áhugaverð. Eins og sögur og ljóð bókarinnar. Við náðum því takmarki okkar að fjármagna útgáfu bókarinnar á Karolina Fund í síðustu viku. Það er áfram hægt að tryggja sér eintak af bókinni í gegnum síðuna okkar á Karolina á meðan söfnunin er opin.“