Hvað er barnamenningarhátíð?

Viðburðir eru víða um höfuðborgarsvæðið í tilefni Barnamenningarhátíðarinnar sem haldin er í sjöunda sinn í ár.

Auglýsing
Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi.
Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi.

Varst þú að setja barna­mynd af þér á Face­book vegna þess að allir voru að gera það í til­efni barna­menn­ing­ar­há­tíð­ar? Hélstu að þátt­töku þinni í hátíð­inni væri þar með lokið og ekk­ert meira hægt að gera? Ef svo er þá hafðir þú rangt fyrir þér því einnig er hægt að taka þátt í hátíð­inni í raun­heimi.

Barna­menn­ing­ar­há­tíð er sam­vinnu­verk­efni á vegum menn­ing­ar- og ferða­mála­sviðs ásamt skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar. Höf­uð­borg­ar­stofa heldur utan um við­burði hátíð­ar­innar sem fara fram víðs vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ekki bara á Face­book. 

Hátíðin hefur verið haldin árlega síðan 2010 hófst hún í ár þriðju­dag­inn 25.apríl og stendur yfir til og með sunnu­deg­inum 30.apr­íl. Hægt er að vera vitni af og taka þátt í fjöl­breyttum upp­á­komum sem fara fram skólum og frí­stunda­mið­stöðv­um. 

Auglýsing

Einnig er dag­skrá í Ráð­húsi Reykja­vík­ur, Hörpu og lista- og menn­ing­ar­húsum borg­ar­inn­ar. Mark­mið hátíð­ar­innar er að efla menn­ing­ar­starf barna og ung­menna í borg­inni þar sem þátt­taka þeirra gegnir lyk­il­hlut­verki. 

Þátt­taka og áhorf í bland

Meðal ann­ars er í boði að fara í Grasa­garð Reykja­víkur þar sem 5. bekkur Laug­ar­nes­skóla stendur fyrir sýn­ing­unni Rann­sókn­ar­stofa: Hvað leyn­ist í nátt­úr­unni? Þar sem lögð er áhersla á virkt sam­spil þátt­tak­enda við umhverfi Grasa­garðs­ins og umræðum um hvernig hægt er að byggja sann­gjarnt sam­fé­lag og stuðla að sjálf­bærn­i. 

Einnig stendur Þjóð­laga­sveitin Þula og barna­hópur Þjóð­dansa­fé­lags Reykja­víkur stendur fyrir við­burði í Ráð­húsi Reykja­víkur þar sem gestum gefst tæki­færi á að taka þátt í söng og leik. Mark­mið upp­á­kom­unnar er að auka þekk­ingu barna á íslenskri þjóð­lagatón­list og þjóð­döns­um.

Fyrir utan þátt­töku­verk­efnin eru einnig fjöl­margar sýn­ing­ar. Í Ráð­húsi Reykja­víkur verður sýn­ingin Augun mín hafa svo margt að segja. Á sýn­ing­unni eru verk sem gerð hafa verið með augn­stýri­bún­aði. Bún­að­ur­inn er í eigu Kletta­skóla og er not­aður af þeim sem af ein­hverjum ástæðum geta ekki tjáð sig með orð­um. Í vetur hafa nem­endur unnið mynd­verk með bún­að­inum þar sem augn­hreyf­ingar nem­enda skapa lista­verk. 

Í Tjarn­ar­bíói verður brúðu­sýn­ing ætluð tveggja ára og eldri sem kall­ast Á eigin fót­um. Sýn­ingin fjallar um sex ára upp­á­tækja­sama stelpu sem býr í Reykja­vík milli­stríðs­ár­anna. Hún er send ein í afskekkta sveit sum­ar­langt. Þar þarf hún að takast á við fram­andi umhverfi sem er alger and­stæða þess sem hún þekki. Tón­list leik­verks­ins er frum­samin og verður flutt í lif­andi flutn­ingi með sýn­ing­unni. Eftir sýn­ing­una gefst áhorf­endum tæki­færi á að hitta leik­ar­ana ásamt því að skoða brúð­urnar og leik­mynd­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None