Sony framleiðir vínylplötur á ný

30 árum eftir að hafa hætt útgáfu á vínyl rúlla retró plötur af færibandinu á ný.

Fjölmargir listamenn kjósa að gefa tónlist sína út á vinylplötu samhliða útgáfu í streymisþjónustum á vefnum.
Fjölmargir listamenn kjósa að gefa tónlist sína út á vinylplötu samhliða útgáfu í streymisþjónustum á vefnum.
Auglýsing

Sony ætlar að hefja fram­leiðslu vín­ylplatna á ný eftir nærri þrjá­tíu ára hlé. Vín­yl­platan hefur ekki selst betur síðan geisla­disk­arnir ruddu sér inn á mark­að­inn á níunda ára­tug síð­ustu ald­ar.

­Sony Music Enterta­in­ment hætti að fram­leiða vín­yl­plötur árið 1989 þegar tón­list­ar­menn og tón­list­arunn­endur höfðu valið geisla­diska fram yfir hefð­bundið útgáfu­form vín­ylplatna. Þá var kom­inn tími til að nútíma­væð­ast og segja skilið við deyj­andi útgáfu­form.

Fyrsta vín­yl­plata Sony í nærri 30 ár mun renna af færi­band­inu í Tokyo í Japan í mars á næsta ári. Sony ætlar að gefa út jap­anska popptón­list, bæði gamla og nýja, á þessu gamla formi. Jap­anski tón­list­ar­mark­að­ur­inn fram­leiddi nærri 200 milljón plötur á ári um miðjan átt­unda ára­tug­inn, þegar vín­yl­plötu­mark­að­ur­inn var sem stærstur þar í landi.

Auglýsing

Sony átti stóran þátt í því að geisla­platan ruddi sér til rúms, með fram­leiðslu geisla­spil­ara og geislaplatna. Með net­væð­ingu höf­und­ar­verka og til­komu streym­is­þjón­usta hefur geisla­plötu­sala fallið hratt.

Vínylplötur hafa ekki selst jafn vel í áratugi og þær gera um þessar mundir.

Vín­yll­inn hefur hefur hins vegar snúið aftur sem upp­á­hald tón­list­arunn­enda og hip­stera. „Sánd­ið“ og gæðin eru sögð betri undir nál­inni, að þeirri stað­reynd und­an­skildri að skemmti­legra getur verið að með­höndla við­kvæma hluti en að smella á snert­iskjái.

Sam­kvæmt AFP leitar Sony nú að starfs­krafti sem kann á tækin sem þarf að gang­setja í fyrsta sinn í 30 ár.

Selj­ast eins og heitar lummur

Vín­yl­plötur selj­ast nú betur en þær hafa gert í ald­ar­fjórð­ung. Sem dæmi má nefna að í Bret­landi voru meira en 3,2 millj­ónir vín­ylplatna seldar árið 2016. Það var 53 pró­sent meiri sala en árið áður og besta sala vín­ylplatna síðan 1991. Þá var Simply Red-­platan Stars mest selda platan í Bret­landi.

Aug­ljóst er að vín­yl­platan eld­ist betur en Simply Red.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiMenning