Karolina Fund: Hjaltalín – Ný plata á vínyl

Nýir tímar kalla á ný verkefni. Hljómsveitin Hjaltalín vinnur nú að sinni fjórðu breiðskífu.

Hjaltalín
Hjaltalín
Auglýsing

Hljóm­sveitin Hjalta­lín vinnur nú hörðum höndum að því að leggja loka­hönd á fjórðu breið­skífu sína, sem hefur verið í vinnslu í meira en fimm ár. Auk þess heldur hún tón­leika í Eld­borg, þann 7. sept­em­ber næst­kom­andi. Liður í þessu er fjár­mögnun á Karol­ina fund, en þar gefst fólki á að kaupa nýju plöt­una á vínyl og/eða staf­rænu formi, auk þess sem það er hægt að fá miða á tón­leik­ana og annað bita­stætt.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Verk­efnið á sér langan aðdrag­anda. Eftir að hafa gefið frá sér plöt­una Enter 4, þá hóf­umst við handa við að gera nýja plötu í byrjun árs 2014. Eftir fimm ár í fram­leiðslu er loka­sprett­ur­inn haf­inn. Okkur fannst upp­lagt að fara í sam­starf við Karol­ina fund af því til­efni.

Auglýsing

Það hefur alltaf skipt mestu máli fyrir okkur að end­ur­taka okkur ekki og finna nýjar víddir í sam­starf­inu. Þetta verður því hægeld­uð, en von­andi á end­anum ljúf­feng mál­tíð. List­inn af lögum sem hafa verið unn­inn er lang­ur, lík­lega á milli 30-40 lög ef allt er talið. Mörg þeirra hafa tekið mörgum kúvend­ingum og við höfum grín­ast með að gefa út ep plötur sem inni­halda 3-4 útgáfur af sama lag­inu. Við munum auð­vitað bara velja þau lög sem passa sam­an, alveg eins og kokkur setur ekki öll kryddin í sama rétt­inn. Platan hefur verið samin og unnin í Reykja­vík, Berlín, Búda­pest, Lunda­reykja­dal, Amster­dam og örugg­lega fleiri stöðum sem við erum búin að gleyma. Ótal­margir hafa lagt hönd á plóg­inn og enn fleiri munu gera það á kom­andi vik­um. Þema plöt­unnar er í raun­inni bara lífið sjálft með öllum þeim flækjum og smá­sigrum sem það bíður uppá.

Sigríður Thorlacius Mynd: Aðsend

Við erum bara geysi­lega ánægð og full til­hlökk­unar að 2019 sé árið þar sem allt erf­iði síð­ustu ára ber ávöxt, bæði hvað varðar lif­andi tón­list­ar­flutn­ing og útgáfu. Á tíma­bili fengum við starfs­laun lista­manna, sem við erum þakk­lát fyrir og hjálp­aði í ferl­inu. Fyrsta smá­skífan af plöt­unni, Bar­o­nesse, kom út í jan­ú­ar, við góðar und­ir­tektir og við getum ekki beðið eftir því að fylgja því eftir með nýju efni. Það hafa vissu­lega skipst á skin og skúrir í ferl­inu, en þannig er lífið og loka­af­urðin verður þeim mun dýr­mæt­ari fyrir vik­ið. Á meðan þessi plata hefur verið í fram­leiðslu hafa með­limir hljóm­sveit­ar­innar eign­ast 4 börn sam­tals (og fleiri á leið­inn­i). Þetta hefur verið ógleym­an­legt ferða­lag, sem brátt tekur enda, en þá tekur við eitt­hvað nýtt.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk