Karolina Fund: Á besta veg

Sigurður Sigurðsson munnhörpuleikari og söngvari safnar fyrir útgáfu á sinni fjórðu plötu.

Auglýsing
siggi 1.jpg

Sig­urður Sig­urðs­son munn­hörpu­leik­ari og söngv­ari hefur starfað meira eða minna  í tón­heim­um um ára­tuga­bil. Þar hefur hann m.a. haldið sig í fé­lags­skapi ­Kentára, sem stofnuð var árið 1982. Sig­urður hefur komið víða við, leikið inn á hljóm­plötur og diska hjá fjölda hljóm­sveita og ein­herj­a. 

Sig­urður hefur gefið út þrjá hljóm­diska undir sínu nafni, „ALM­ANAK fyrir Ísland 2008", „At ­my place" sem kom út árið 2009 og „Kvæði" sem kom út haustið 2011. Nú stefnir Sig­urður á útgáfu á sínum fjórða hljóm­disk og mun hann bera nafnið "Á besta veg". 



Hvernig vakn­aði hug­myndin að þessu verk­efni?



„Ég var búinn að vera að rýna í ljóð eftir Krist­ján Hreins­son, bæði á net­inu og í ljóða­bók sem mér áskotn­að­ist hjá hon­um. Ljóðin hans eru þess eðl­is, alla­vega hvað mig varð­ar, að það er mjög auð­velt að finna riþma og lag­línur við ljóðin og það gerð­ist oftar en ekki þegar ég las þau. Þetta safn­að­ist saman og þegar ég var kom­inn með 16 grunna að lögum var ekk­ert annað að gera en að drífa sig í upp­tök­ur. Ég var grimmur við ­sjálfann mig og end­aði með því að velja 11 lög sem ég vann síðan áfram með eðal­tón­list­ar­mönn­um. 



Auglýsing
Þetta eru þeir Björg­vin Gísla­son, nafni hans Björg­vin Ploder, Frið­þjófur Ísfeld, Guð­mundur Pét­urs­son, Pálmi J. Sig­ur­hjart­ar­son, Matth­ías Stef­áns­son, Dan­íel Sig­urðs­son og Jens Hans­son. Auk þeirra naut ég nokk­urra radda úr Karla­kóri Graf­ar­vogs.“



Hvert er þema verks­ins?



„Það er kannski ekk­ert ákveðið þema, og þó, því að það kemur oftar en einu sinni fyrir þau skila­boð að allt muni fara á besta veg eins og Birt­ingur hans Voltaires hélt fram forðum að heim­ur­inn væri ekk­ert annað en dásam­legur og: ".... að allt sé í allra­besta lag­i.“  Alla­vega ríkir ákveðin bjart­sýni í textum Krist­jáns þó hann sé nú aðeins gagn­rýnni en Birt­ingur á til­ver­una. Það átti alla­vega vel við að tit­ill albúms­ins yrði "Á besta veg".



Umslag plötunnar.Upp­tökur fóru fram í stúdíó Soga­veri og voru að nokkru leiti teknar upp "lif­andi" þ.e.a.s. tromm­ur, bassi og gítar voru teknir upp saman í einu rennsli, en síðan var öðrum hljóð­færum bætt við síð­ar. 



Þetta er búið að vera ein­stak­lega gef­andi og skemmti­legt ferli og vil ég nota tæki­færið að þakka öllum sem höfðu nennu í þetta með mér.“



Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk