Karolina Fund: Namm! - 100% vegan eldhús

Alda Villiljós stendur fyrir hópfjármögnun á eldhúsaðstöðu sem mun vera nýtt í 100 prósent vegan matarframleiðslu.

Vegankaka
Auglýsing

Alda Villi­ljós stendur þessa dag­ana fyrir hóp­fjár­mögnun á eld­hús­að­stöðu sem mun vera nýtt í 100% vegan mat­ar­fram­leiðslu. Alda fók­usar sjálft á bakst­ur, eft­ir­rétti og sæt­indi, en hán byrj­aði að selja slíkt undir nafn­inu Namm! fyrr á þessu ári. Ný eld­hús­að­staða myndi veita Öldu mun meira svig­rúm til að fram­leiða sæt­ind­in, en hán vill líka að eld­húsið verði aðgengi­legt til leigu fyrir aðra sem vilja nýta sér slíka aðstöðu.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Þetta byrj­aði á síð­asta ári, en þá hafði ég verið að vinna á Kaffi Vínyl í u.þ.b. eitt ár sem bak­ar­inn þeirra. Í vinn­unni þar fékk ég mikið frelsi til að prófa mig áfram bæði með eigin upp­skriftir og ann­arra, og allt veg­an. Vör­urnar sem ég gerði urðu mjög fljótt gríð­ar­lega vin­sælar meðal vegan sam­fé­lags­ins og í byrjun síð­asta árs fór ég að fá þessa spurn­ingu frá fólki, hvort ég ætl­aði ekki bara að byrja með eigið fyr­ir­tæki og fram­leiða og selja kökur og sæt­indi. Ég mald­aði í móinn frekar lengi, en í lok síð­asta árs tók ég þá ákvörðun að demba mér í sjálf­stæðan atvinnu­rekst­ur. Ég hætti í vinn­unni hjá Vínyl og byrj­aði að aug­lýsa fyr­ir­tækið og taka við pönt­un­um. Það tók ekki langan tíma þar til ég var komið í sam­starf við Linneu og Krumma hjá Veganæs, en ég fæ að nota eld­húsið þeirra þegar þau eru ekki að nota það. Það kom samt eig­in­lega strax í ljós að það myndi ekki nægja mér  svo ég verð að stækka við mig fljót­lega. Mér líður líka alltaf frekar illa að þurfa að keyra niður í miðbæ vegna þess að ég þurfi að ferja fullt af hrá­efnum á milli eld­húsa til að hafa í við pant­an­irn­ar; helst vildi ég að sjálf­sögðu labba eða taka strætó!“

Auglýsing

Hver eru und­ir­stöðu­at­riðin fyrir verk­efn­ið?

„Ég veit að ég er ekki eitt um að finn­ast það góð til­hugsun að vegan mat­ur­inn sem ég borða sé ekki fram­leiddur þar sem einnig er verið að mat­reiða og með­höndla kjöt eða osta. Vegan­ism­inn er sér­stakur að því leyti að þetta er ekki bara mat­ar­kúr, það er svo margt annað sem getur spilað inn í það af hverju fólk verður eða er vegan, og þó að ofnæmi geti átt sinn stað þar (vegan fólk þróar líka oft­ast með sér ofnæmi fyrir kjöti og mjólk­ur­vörum eftir ein­hvern tíma) þá eru sið­ferð­is­á­stæð­urnar oft ráð­andi. Þess vegna eru mörg okkar lík­leg til að fara úr vegi okkar eða borga aðeins meira fyrir vörur sem eru fram­leiddar af vegan fyr­ir­tækjum og í vegan umhverfi. Að sama skapi myndi ég vilja geta sett upp krók af eld­hús­inu með sér tækjum til að fram­leiða vörur sem væru ekki með hnet­um, og seinna meir einnig fyrir glút­en­lausar vör­ur.“

Af hverju ætti fólk að styðja við verk­efnið þitt?

„Það eru nokkrar ástæð­­ur! Fyrst og fremst vegna þess að það er góð til­finn­ing að styðja við far­sælt verk­efni - og miðað við hversu vel hefur gengið hingað til veit ég að Namm! er komið til að vera. Vegan­ism­inn hefur vaxið ótrú­lega hratt á Íslandi á síð­ustu árum og ég er viss um að við þekkjum núorðið öll a.m.k. eina vegan mann­eskju; og er þá ekki frá­bært að geta pantað veganköku eða snarl fyrir veislur á verði sem er sam­keppn­is­hæft við annað bakk­elsi?  Mér finnst mjög mik­il­vægt að vegan vörur séu aðgengi­legar og því er það draum­ur­inn að geta boðið upp á ódýrar vörur án þess að slá af gæða­kröf­um.. Síð­ast en ekki síst, þá eru mjög girni­leg verð­laun í boði fyrir öll þau sem leggja til pen­ing í verk­efn­ið; konfekt­kass­ar, kök­ur, inn­eign í veislu­bakka og fleira.“

Hér er hægt að styrkja Namm!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk