Helgi á Prikinu

Magnea B. Valdimarsdóttir, leikstjóri, er að safna styrkjum á Karolina Fund til að þess að klára heimildarmynd um Helga Hafnar Gestsson, sérlega yndislegan, fastagest á Prikinu

Helgi á Prikinu
Helgi á Prikinu
Auglýsing

„Myndin hverf­ist um fasta­gest­inn Helga Hafnar Gests­son en mig langar til að blanda saman ljós­myndum úr for­tíð og nútíð sem segja mikið um mann­lífið á þessu svæði í miðbæ Reykja­vík­ur­.“ 

Prikið kaffi­hús í miðbæ Reykja­víkur á sér langa og lit­ríka sögu. Í dag er rekið þar kaffi­hús á dag­inn en skemmti­staður á kvöldin og um helg­ar. Prikið er vagga íslenskrar hip hop menn­ingar og þar fá lista­menn að njóta sín hvort sem þeir fást við tón­list, mynd­list eða eitt­hvað ann­að. Prikið er með góðan fastakúnna­hóp en þó er einn mið­bæj­ar­k­arakter og fasta­gestur sem sker sig ávallt úr hópn­um. Það er ljúf­mennið Helgi Hafnar sem mætir á Prikið dag­lega með bros á vör, allir kepp­ast um að faðma hann því hann hefur ein­stak­lega kær­leiks­ríka nær­veru. Hann virð­ist þríf­ast vel á rútínu, sest alltaf á sama stað (sem hann hefur gert ára­tugum sam­an), fær alltaf sama bolla og með bros á vör spjallar hann við unga sem aldna, ferða­menn, pönk­ara og heim­spek­inga. Mið­bær­inn og Prikið væru ekki eins skemmti­leg án Helga sem er krydd í til­ver­una og mik­ill visku­brunnur um sögu eins fyrsta kaffi­húss Reykja­vík­ur. 

Áður hefur Magnea B. Valdi­mars­dótt­ir, leik­stjóri unnið heim­ilda­mynd­irnar Hverf­is­götu, Bónus­konur og Kanarí og er nú að safna styrkjum til þess að klára mynd­ina ,,Helgi á Prik­inu".  

Auglýsing

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­in­u? 

Magnea B. Valdimarsdóttir, leikstjóri.Ég hef verið að vinna myndir um mið­bæ­inn frá 2011. Það er greini­lega úr mörgu að velja og safa­ríkt efni fyrst ég held mig við hann. Kannski vegna þess að ég hef verið búsett hér svo lengi og tek eftir hlutum sem aðrir sjá ekki, líkt og að búa í litlu þorpi úti á landi en vera aðflutt­ur. Raun­veru­leik­inn er svo stór­kost­legt við­fangs­efni.

Hitt er bara froða. Nei, djók.

Við ætlum að reyna að fanga and­rúms­loftið í kringum Helga sem er alveg ein­stakt. Allir virð­ast róast og verða ögn betri og hlý­legri eftir stutta stund í návígi við hann. Það var kona sem þekkir Helga (eins og svo margir) sem sagði við mig að hann væri jafn­vel of góður fyrir þennan heim. Þess vegna er svo mik­il­vægt að kveikja von. Hrað­inn og jafn­vel aukin með­vit­und um stöðu mála í heim­inum er að gera okkur öll örlítið geð­veik­ari og þá eru allir að hugsa um sig í stað þess að taka sér tíma til að horfast í augu, bjóða góðan dag­inn og spjalla örlít­ið. Mynda tengsl og sýna hvort öðru hlýju. Auk þess á Prikið sér merki­lega sögu sem Helgi þekkir vel og gaman að blanda því við list­sköpun ungs fólks í dag, t.d. er hip hop senan á Íslandi og ýmis gras­rót afar tengd Prik­inu.Heimildarmyndin Helgi á Prikinu. Mynd: Ómar Sverrisson.

Þetta er í annað sinn sem Magnea stendur fyrir söfnun á Karolina­fund en hin söfn­unin vegna ,,Kanarí" sem hún gerði með Mörtu Sig­ríði Pét­urs­dóttur gekk vonum fram­ar. ,,Það er bara ósk­andi að maður geti farið að gera þetta að lifi­brauði sínu og að maður þurfi ekki alltaf að reiða sig á gæsku almenn­ings. En er óskap­lega þakk­lát fyrir stuðn­ing­inn. Maður fer nú ekki út í heim­ilda­mynda­gerð til að græða neitt á því eins og vinur Helga á Prik­inu spyr mig reglu­lega um."



Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk