Einar Óli – „Mind like a maze“

Húsvíkingur safnar fyrir sinni fyrstu plötu.

Einar Óli
Auglýsing

Ein­ar Óli er laga og texta­smiður frá Húsa­vík sem er að vinna að sinni fyrstu plötu. Hann stundar nám við Tón­list­ar­skól­ann á Akur­eyri og þar er hann á braut sem kall­ast skap­andi tón­list. Einar hefur verið að skapa tón­list síð­ast­liðin fjögur ár og er kom­inn með góðan slatta af lögum í bunk­ann. Með honum í liði eru þeir Krist­ján Edel­stein sem sér um alls­konar und­ir­leik, upp­tökur og hljóð­blönd­un, Haukur Pálma­son sér um hljóð­jöfn­un, Guð­jón Jóns­son píanisti og Bergur Einar Dag­bjarts­son trommu­leik­ari svo ein­hverjir séu nefnd­ir. Söfnun fyrir útgáfu­kostn­aði er hafin inni á Karolina­fund.is og þar er hægt að leggja Ein­ari lið. Kjarn­inn tók Einar að tali.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Hún vakn­aði bara eig­in­lega strax þegar ég byrj­aði að kenna sjálfum mér á gít­ar. Mér hefur alltaf fund­ist jafn gaman að skapa eitt­hvað nýtt og nota í­mynd­un­ar­aflið, og um leið og ég byrj­aði að semja, þá var þetta strax eitt­hvað sem ég vildi gera af fullum krafti en hafði kannski ekki kjarkinn í það þá. En ég held að ég sé að gera þetta á hár­réttum tíma. Ég þurfti þennan tíma til að verða betri og læra á rödd­ina mína, en þessi hug­mynd hefur kallað á mig í þónokkur ár.

Auglýsing

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Þema plöt­unnar í stuttu máli er eitt stórt völ­und­ar­hús.

En á góðri íslensku, þá heitir platan „Hugur eins og völ­und­ar­hús“.

Það glíma allir við ein­hverjar þrautir og erf­ið­leika á lífs­leið­inni og stundum er eins og að þrautin sé ómögu­leg að leysa. Völ­und­ar­húsið er í raun­inni mynd­lík­ing sem ég nota í þessu sam­hengi og það sem ég er að reyna að segja, er að lífið er enda­laust af þrautum og völ­und­ar­hús­um. En eins og frændi minn ­Bob Mar­ley ­sagði einu sinni er það eins sem skiptir máli: „Don't worry a­bout a t­hing, cause every litt­le t­hing is ­gonna be al­right.“

Hvenær kemur platan út?

Það er ekki komin stað­fest dag­setn­ing, en ef allt gengur eins og áætlað er þá kemur hún út í sept­em­ber. Við ætlum þó að gefa út eitt lag af plöt­unni aðeins fyrr, bara svona til að gefa smá smakk af þessu. Ég er orð­inn gríð­ar­lega spenntur að sleppa tak­inu og gefa þetta út.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk