Hasar, spenna og harka

Elí Freysson safnar nú fyrir fantasíusögu sem byggð er á víkingatímanum og segir frá uppkomnum systkinum sem þurfa í sameiningu að flýja undan bæði mennskum óvinum og yfirnáttúrulegum öflum.

Auglýsing
Feigðarflótti

Feigð­ar­flótti er fantasíu­saga byggð á vík­inga­tím­an­um, og segir frá upp­komnum systk­inum sem þurfa í sam­ein­ingu að flýja undan bæði mennskum óvinum og yfir­nátt­úru­legum öfl­um. Hasar, spenna og harka.

Elí Freys­son er 36 ára gam­all Akur­eyr­ing­ur, sem hefur kosið sér það í líf­inu að vera rit­höf­und­ur. Á árunum 2011 til 2015 gaf hann út fimm fantasí­ur/f­urðu­sögur hér á landi: Meist­ari Hinna Blindu, Ógn­ar­máni, Kall­ið, Kistan og Eld­máni. Eftir þetta fór hann yfir í að skrifa á ensku, en vill nú reyna að gefa út nýtt verk í heima­land­in­u. 

Elí er á ein­hverfu­róf­inu og hefur síð­ustu ár flutt fyr­ir­lestra um rösk­un­ina, og gefið út rit ætlað for­eldrum og kenn­ur­um.

Auglýsing

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Núna í vor opn­aði Akur­eyr­ar­bær fyrir umsóknir um lista­manna­styrk. Mér datt í hug að skrifa stutt verk sem ég gæti gefið skól­unum í bænum til að ýta undir lestur ung­menna. Vildi ég þá hafa það þjóð­legt, en líka spenn­andi til að vekja áhuga og halda athygli. Þannig setti ég saman hug­mynd að furðu­sögu um vík­inga: Heim sem svipar mjög til þess sem við könn­umst við úr íslend­inga­sög­un­um, nema hvað tröll, galdr­ar, draug­ar, huldu­fólk og allt þetta er raun­veru­legt. Styrk­ur­inn gat samt bara farið til eins aðila, og varð ég ekki fyrir val­inu. Eins og vill ger­ast sat hug­myndin þó eftir og tældi mig, og ég fór að leita ann­arra leiða til að gera hana að veru­leika.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Elí Freysson Mynd: AðsendSagan ger­ist í landi er minnir mjög á Noreg á vík­inga­öld. Sögu­hetj­urnar eru systk­ini: Kapp­inn Bárður og seið­konan Magn­hild­ur. Þau eiga rétt að lands­svæði sem setur hefur í eyði um nokk­urt skeið, en þegar þau eru á far­alds­fæti verða þau fyrir árás óvina ætt­ar­inn­ar, sem vilja losna við þau og eigna sér land­ið. Nú þurfa þau að flýja nokk­urra daga leið yfir óbyggð­ir, haf, fjöll og skóga til að kom­ast í öruggt skjól, ávallt með víga­menn á hæl­un­um. 

Og meira en víga­menn reynd­ar, því göldrum er beitt gegn þeim og ógur­leg for­ynja eltir þau einnig lát­laust. Munu þau þurfa að beita öllu sínu þreki, klókind­um, vopn­fimi og dulúð­legri þekk­ingu til að hafa betur af. Sagan verður skrifuð í mínum dæmi­gerða stíl, með hröðum takti og miklum has­ar. Ég er einnig búinn að taka af bóka­safn­inu heil­ann bunka af efni um vík­inga til að fá inn­blást­ur.

Ef af þessu verður ætla ég enn að sjá til þess að ein­tök af Feigð­ar­flótta kom­ist í skól­ana hérna á Akur­eyri.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent