Símon Vestarr er söngvari, hljóðfæraleikari og lagahöfundur sem ólst upp í Efra-Breiðholti. Faðir hans vígði hann inn í hljóðfæraleik þegar hann var tólf ára og hlaut hann upprunalega tónlistarþjálfun sína að miklu leyti í kirkjustarfi, sem hann hefur síðar fjarlægst. Hann hefur verið lengi að í músík og tekið þátt í ýmsum gjörningum en að mestu leyti hefur hann flögrað undir radarnum í hinni íslensku tónlistarsenu í gegnum árin og lítið gefið út af eigin efni.
Á síðari árum hefur hann haft sig meir í frammi, sérstaklega með rokktríóinu sínu, Kingkiller. Sú sveit hefur gefið út lög sem hafa hlotið mikla stúdíó-meðferð á meðan sólóefni Símonar hefur verið í örlítið hrárri hljómgæðum.
Nú þótti honum hins vegar kominn tími til að gera sólóplötu eftir háum hljómgæðastaðli og því hafði hann samband við Karolina Fund.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Allt frá því að ég var unglingur að stelast í diska hjá frændfólki og kunningjum með hljómsveitum eins Led Zeppelin, Trúbrot og Santana hefur mig langað að gefa út plötu sem er að mestu leyti tekin upp á órafmögnuð hljóðfæri og vísar í tíðarandann sem var í tónlist í kringum 1970. Tolkien-innblásnar ballöður Led Zeppelin, seiðandi slagverk Santana og stóru raddanirnar hjá Trúbrot og CSNY sendu mig alltaf á framandi staði í huganum og ég vildi búa til mínar eigin hugarlendur í tónum og textum. Að gefa þá tónlist út á vínyl skipti líka miklu máli.
Eyvindur Karlsson, spilafélagi minn til margra ára, lét verða af þessu á síðasta ári. Hann gaf út sitt efni á disk og plötu undir listamannsnafni sínu, One Bad Day, eftir að hafa
safnað fyrir framkvæmdinni á Karolina Fund. Og eftir að hafa fylgst nokkrum sinnum með stúdíóvinnu Ása Jó (trymbilsins í Kingkiller) small hugmyndin saman. Ég átti lög sem ég vildi að sem flestir fengju að heyra; sum ný af nálinni, önnur sem voru örlítið eldri á demó- upptökum og eitt eða tvö sem höfðu verið samin fyrir lifandis löngu. Mér fannst þau öll verðskulda vandaðan flutning og hljóðblöndun og spilun í útvarpi.“
Segðu okkur frá þema verkefnisins?
„Fever Dream er heiti titillagsins en líka heildarstef allrar plötunnar. Textarnir í lögunum fjalla allir á einn eða annan hátt um að eltast við eitthvað sem gufar upp um leið og hönd á festir.
Hugmyndin um veruleikaskynjun okkar sem óráðsmartröð er eitt helsta viðfangsefni austrænna heimspekihefða og varð ég fyrst almennilega hugfanginn af henni eftir að hafa séð mexíkósku kvikmyndina La Montaña Sagrada. Ljóð plötunnar fjalla á ská um guðdóm og rómantík og fleira sem við teljum okkur skilja en sjáum í gegnum kámugan glugga sjálfsmeðvitaðrar hugsunar.
Platan er mjög innileg í eðli sínu og markmið mitt er að hún hreyfi við hlustandanum. Svo eru mörg lögin líka ryþmísk og vel til þess fallin að dansa berfættur við innan um kerti og reykelsi í stofunni á dimmum miðvikudagskvöldum.“
Verður haldið upp á það þegar söfnuninni lýkur?
„Svo sannarlega. Útgáfutónleikar verða haldnir í Hannesarholti og hægt er að kaupa sér miða á þá með áheiti, auk þess sem hlustunarpartí verður haldið þegar mixi og master er lokið. Hægt er að gerast þátttakandi í þeim gleðskap, þar sem hlustað verður á plötuna í fyrsta sinn og sungið og trallað á óguðlegum tíma heima hjá mér, með áheiti. Einnig er hægt að bóka mig til að halda lengri eða styttri tónleika með því að leggja í púkk. Ég hlakka til að hitta sem allra flesta á þessum viðburðum. Að deila lögunum mínum með fólki sem elskar tónlist er eitt það skemmtilegasta sem ég geri.“