Bland í poka - Ný barnaplata eftir Snorra Helgason

Söngvarinn landsþekkti, Snorri Helgason, hefur gert barnaplötu með tíu nýjum lögum. Með mun fylgja lítil bók. Safnað er fyrir útgáfunni á Karolina fund.

IMG_3042.jpg
Auglýsing

Bland í poka er safn nýrra barna­laga eftir Snorra Helga­son. Platan hefur að geyma 10 lög flutt af Snorra og hljóm­sveit hans ásamt úrvala­liði gesta­söngv­ara m.a. Sögu Garð­ars­dótt­ur, Valdi­mar Guð­munds­syni, Hug­leiki Dags­syni, Hall­dóru Geir­harðs­dótt­ur, Katrínu Hall­dóru Sig­urð­ar­dóttur og Teiti Magn­ús­syn­i. 

Teikn­ar­inn Elín Elísa­bet Ein­ars­dóttir hefur gert teikn­ingar við öll lögin á plöt­unni sem munu fylgja útgáf­unni ásamt textum og gít­ar­hljómum í lít­illi bók sem hönn­uð­ur­inn ­Bobby Breið­holt setur upp.   

Fólk getur valið hvort það kaupi bók­ina með eða án geisla­disks þannig að ef þú og fjöl­skyldan þín hlust­ið að­al­lega á tón­list í óefn­is­legu formi t.d. á Spoti­fy þá getur þú fjár­fest í þess­ari eigu­legu bók og notið þess að blaða í henni á meðan hlustað er á tón­list­ina. 

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég var að vinna að tón­list byggða á íslensku þjóð­sög­unum í nokkur ár sem að kom svo út á plöt­unni Margt býr í þokunni árið 2017. Til þess að gera þá tón­list þurfti ég að lesa mikið af þjóð­sögum og sökkva mér ofan í þann heim sem þær eru sprottnar úr með öllum sínum morðum og ­sifja­spelli og almennum drunga. Oftar en ekki var ég að vinna að þess­ari þjóð­lagatón­list í algeri ein­angrun í þröngum dal við mynni Súg­anda­fjarð­ar, nánar til­tekið í Galt­ar­vita. Til þess að við­halda geð­heils­unni í allri þess­ari ein­angrun með höf­uðið á kaf í öllu þessu myrkri fór ég nán­ast ósjálfrátt að semja tón­list sem var algjör and­stæða við það, lít­il, skrítin og björt barna­lög. Þetta var nán­ast eins og varn­ar­við­bragð.

Auglýsing
Smátt og smátt fóru þessi lög að taka á sig mynd og fleiri hug­myndir að fæð­ast og úr varð þetta safn laga.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Það er í raun og veru ekk­ert ákveðið þema fyrir utan það að fagna krafti og gleð­i ­barns­and­ans. Ég hef alltaf verið mik­ill aðdá­andi kæru­leys­is­legrar og gleði­legar popptón­listar og lang­aði til að semja svo­leiðis tón­list. Tón­listin á þess­ari plötu er undir miklum áhrifum frá­ brit­poppi eins og blur og sillí hliðum bítl­ana.Snorri Helgason Mynd: Elín Elísabet Einarsdóttir 

Um það leiti sem ég var að semja þessa tón­list var ég líka mikið að hlusta á brasil­íska tón­list frá 7. og 8. ára­tugnum og áhrif frá því má einnig vel greina í tón­list­inni sbr. lagið Litla kisa sem er eftir brasil­íska tón­list­ar­mann­inn Caeta­no Veloso ­með nýjum texta eftir mig. 

Svo þegar kom tími á að ganga frá útgáf­unni þá heyrði ég í Bobby Breið­holt hönn­uði og Elín­u El­ísa­bet­u Ein­ars­dóttur teikn­ara og við fórum strax mikið að spá í klass­ísku skand­in­av­ísku ­barna­plöt­unum og bók­unum og teikn­ing­unum sem fylgja þeim: Tove J­ans­son og múmínálfa­heim­ur­inn, Tor­björn Egner og Kar­dímommu­bær­inn og Dýrin í Hálsa­skóg­i og Einar Áskell eft­ir G­unn­illu Bergström. Þá kvikn­aði sú hug­mynd um að gera teikn­ingar við öll lögin dálítið í þessum stíl sem myndi fylgja plöt­unni í lít­illi bók með söng­textum og gít­ar­hljóm­um. Þannig getur fólk, börn og full­orðn­ir, skoðað þessa bók á meðan hlustað er á tón­list­ina hvort sem það er á Spoti­fy eða á geisla­disk.“



Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk