Persónuleg bók sem kafar ofan í erfiða hluti og samskipti við mismunandi fólk

Halldóra Sigurðardóttir er að undirbúa útgáfu fyrstu bókar sinnar, Dauða egósins. Hún safnar fyrir útgáfunni á Karolina Fund.

Halldóra Sigurðardóttir.
Halldóra Sigurðardóttir.
Auglýsing

Hall­dóra Sig­urð­ar­dóttir hefur starfað við þýð­ingar og ­leið­sögu­mennsku en hefur núna ákveðið að

gefa út sína fyrstu bók sem heitir Dauði egós­ins en þar kryfur hún mál­efni hjart­ans af mik­illi

ein­lægni.

Hvaðan kom þessi hug­mynd að skrifa þessa bók?

„Hún er eig­in­lega búin að vera að gerj­ast í mér í mörg ár en lengi vel vildi ég ekk­ert hafa með það að skrifa bók en ég fann sífellt fyrir meiri pressu og fann að ég yrði að kom­a ­upp­lif­un­um mínum í orð og koma þannig þessum skila­boðum frá mér. Það hefur ýmis­legt gerst í mínu lífi og ýmsar upp­lif­an­ir ­sem höfðu mikil áhrif og í kjöl­farið fór ég að skoða fólk og aðstæður út fá öðru sjón­ar­horni og setja hlut­ina kannski í aðeins meira sam­hengi. Þetta er mjög per­sónu­leg bók þar sem ég kafa djúpt ofan í erf­iða hluti og sam­skipti við mis­mun­andi fólk.“

Auglýsing
Þú hefur starfað við þýð­ingar en ert að fara alveg inn á nýjan vett­vang, hvernig er sú til­finn­ing?



„Það var í byrjun mjög stressandi til­hugsun og ég veit ekki hversu oft ég hef hætt við og hugs­að ­með mér „nei Dóra hvað ertu að ger­a?“ En svo kom að því að ég tók ákvörðun og það var ekki aftur snúið og nú hugsa bara með mér að það er spenn­andi að prófa eitt­hvað nýtt. ­Leið­sögu­mennskan er eins og flestir vita komin í hlé, hversu langt vitum við ekki en eitt­hvað verð­ur­ ­maður að hafa fyrir stafni á með­an.“

Um hvað fjallar bók­in?

„Það er frekar erfitt að segja í stuttu máli, ég vil líka ekki gefa alveg sögu­þráð­inn uppi en ég er aðal­lega að kryfja hvernig við erum búin að vera að horfa á líf­ið, þ.e. með aug­unum okkar og þessum hefð­bundnu skyn­færum og hvernig mörg okkar bregð­umst við, svo­lítið eins og lauf í vindi en það er að mínu mati til betri leið. Við mann­fólkið erum svo stór­kost­leg og svo miklu stærri og kraft­meiri en við gerum okkur grein fyrir og ég er svo­lítið að benda á það í þess­ari bók, þannig að skila­boðin eru mjög jákvæð í lokin þó ég þurfi að fara í gegnum erf­iða hluti til að útskýra það. Bestu sög­urnar að mínu mati eru sögur sem eru sannar og gefa les­and­anum einnig tæki­færi á að finna sig í sög­un­um. Þetta er því mjög mann­leg bók og ég held að allir muni finna sig að ein­hverju leyti í henn­i.“

Þú þýddir Leynd­ar­málið var það ekki?

„Jú og ég fjalla aðeins um hana í bók­ina minni því þessi hún hafði gíf­ur­leg áhrif á mig þegar ég var að þýða hana og það er ekki laust við að ég hugsi með mér núna að þessi bók gæti jafn­vel komið að góðum notum í kjöl­far krepp­unnar sem við okkur blasir núna. Ég tel að hún geti hjálpað fólki að horfa á lífið sitt og krepp­una með öðrum augum og finna kraft­inn sem býr innra til að leysa öll þessi vanda­mál ­sem bíða okk­ar.“

Ertu langt komin með bók­ina?

„Já, ég er frekar langt komin með hana, er í fyrstu umferð að fara yfir text­ann og geri ráð fyrir að ­gefa bók­ina út í sum­ar, eða eins fljótt og mögu­legt er.“

Eitt­hvað sem þú vilt segja okkur að lok­um?

„Já mig lang­aði til að deila með ykkur að þetta er mjög áríð­andi og krefj­andi verk­efni sem ég er að ­taka mér fyrir hend­ur, ég er að gefa ykkur hjarta mitt í þessa bók og mér þætti mjög vænt um ef þið ­mynduð leggja mér lið og styrkja útgáfu bók­ar­inn­ar. Mig langar einnig að bæta við að ég ætla að ­gefa öllum föngum á Íslandi þessa bók og líka Kvenna­at­hvarf­inu, Vogi, Konu­koti, Sam­hjálp og öllum þeim frá­bæru stöðum sem eru fyrir fólk í erf­ið­leik­um, Það væri því dásam­legt ef þið gætuð hjálpað mér að láta þessa útgáfu verða að veru­leika.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk