Barnabókin „Ævintýri í Bulllandi“

Mæðgin dunduðu sér við að skrifa barnabók á meðan að COVID-faraldurinn hélt samfélaginu í samkomubanni. Þau safna nú fyrir útgáfu hennar á Karolina fund.

20200520_085354 (1).jpg
Auglýsing

Erna Marín Kvist, multik­un­stner, er höf­undur og mynd­skreytir bók­ar­innar Ævin­týri í Bull­landi. Þegar COVID-far­ald­ur­inn geis­aði og sam­komu­bann var inn­leitt dund­uðu mæðginin Erna Marín og yngri sonur henn­ar, Sindri Nóel, sér við skrif barna­bók­ar. Þau búa í nágrenni við Laug­ar­dal­inn og not­uðu umhverfi sitt sem inn­blástur við skrif bók­ar­inn­ar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Öll þurfum við okk­ar griða­stað á skrýtnum og stundum erf­iðum tím­um. Eins og margir fund­u ör­ugg­lega fyrir þá vorum við mikið saman og mikið heima fyrir í sam­komu­bann­inu. Það var eig­in­lega ­nauð­syn­legt að hafa eitt­hvað skemmti­legt og öðru­vísi fyrir stafni og úr því þró­að­ist barna­bók­in Æv­in­týri í Bull­land­i.“

Bókin fjallar um ævin­týri Sindra og Sunnu sem eru að leika sér á leik­velli í Laug­ar­dalnum og gleyma ­sér í gleði og leik. Þau enda í Hús­dýra­garð­inum þar sem þau bulla með alls kon­ar ­kunn­ug­leg æv­in­týri og búa jafn­framt til sín eig­in.

„Sjálf hef ég ótrú­lega gaman af ævin­týrum og töfra­heimi barna. Börn eru gædd gáf­um, næmni og ­sköp­un­ar­gleði sem við full­orðna fólkið gleymum stundum í amstri dags­ins. Börn og for­eldrar hafa ef­laust kynnst hvor öðru betur síð­ast­liðnar vikur og full­orðnir jafn­vel tengst betur sínu innra barn­i. Það finnst mér­ ­gjöf­ul ­upp­skera í kjöl­far COVID. Mark­mið þess­arar bókar er börn og full­orðnir geta átt ­góðar stundir saman með upp­byggj­andi og jákvæðum skila­boð­u­m. 

Auglýsing
Þessi bók er mér hjart­ans mál, ég hef lagt mig alla fram við mynd­skreyt­ing­ar, hand­ritið er til­búið og mig langar mikið til að geta gefið hana út. Ef okkur tekst að safna fyrir útgáfu bók­ar­innar þá vil ég koma henni til sem flestra barna í erf­iðum aðstæð­um. Til dæmis á Barna­spít­ala Hrings­ins, Barna­hús, Kvenn­athvarfið og fleiri staði þar sem börn í við­kvæmri stöðu eru að finna. Ég hef sjálf reynslu af því að vera barn í erf­iðum aðstæðum og þá voru ævin­týri og sköpun minn flótti og björg­un. Við ­mæðginin viljum þakka kær­lega fyrir allan stuðn­ing og minnum líka alla á að leika og bulla meira ­sam­an. Það er hollt og gott fyrir sál­ina.“

Hér er hægt að styrkja og taka þátt í söfnun Ernu.

Verk­efnið er einnig með­ Face­book ­síðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk